Fleiri fréttir

Ábyrgðin á KB-banka

KB banki og LÍN undirrituðu í dag samning þess efnis að ábyrgð KB banka getur komið í stað sjálfskuldarábyrgðar einstaklings sem hefur verið skilyrði námslána hjá LÍN. Í stað þess að tilnefna ábyrgðarmann, t.d. foreldri eða skyldmenni, geta námsmenn nú samið um bankaábyrgð á námslán sín beint hjá KB banka.

Látinn laus

Maðurinn sem varð Ragnari Björnssyni að bana á veitingastað í Mosfellsbæ fyrr í mánuðinum, var látinn laus í dag. Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms úr gildi.

Dvalarleyfisboðið stendur

Stjórnvöld ætla ekki að verða við beiðni Bandaríkjanna um að draga til baka landvistarleyfi til handa skákmeistaranum Bobby Fischer. Hann verður ekki heldur framseldur héðan. Lögfræðingur Fischers fundar með japönsku útlendingastofnuninni í dag.

Ekki herlaust land?

Er hið herlausa Ísland kannski alls ekkert herlaust þegar allt kemur til alls? Þessari spurningu er velt upp í erlendum stórblöðum í dag í ítarlegri umfjöllun um íslensku friðargæslusveitina. „Skaddaðar hugsjónir Íslands," segir í fyrirsögn í stórblaðinu International Herald Tribune í dag.

Fjölgun í landvinnslu Brims

Starfsfólki í landvinnslu Brims á Akureyri hefur síðan í haust fjölgað um nálægt fimmtán manns, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar.

Viðbúnaðurinn vegna brunalyktar

Talsmaður British Airways segir vinnureglu að viðhafa ítrustu varúðarráðstafanir þegar eitthvað bregður út af í flugi hjá félaginu og því hafi nokkur viðbúnaður verið á Heathrow-flugvelli síðasta föstudagskvöld vegna vélar sem í voru íslenskir þingmenn og ráðherra.

Innflutningur bannaður frá Asíu

Embætti yfirdýralæknis hefur framlengt bann við innflutningi frá Asíu vegna fuglaflensu. Bannað er að flytja til landsins lifandi fugla, frjóegg og hráar afurðir alifugla frá Kína, Taílandi, Suður-Kóreu, Malasíu, Víetnam, Japan, Kambódíu, Indónesíu, Laos, Pakistan og Hong Kong.

Aukin útgjöld vegna þunglyndis

Útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins vegna þunglyndislyfja hafa aukist um 8 prósent milli ára, þegar horft er til notkunarinnar frá janúar til nóvember.

IE vísar á bug ásökunum

Iceland Express segir yfirvöld ferðamála sjálf hafa gerst sek um að bregðast ferðaiðnaðinum með því að tefla á tæpasta vað hvað varði lögmæti fjárveitinga og vísar á bug fullyrðingum ferðamálastjóra á vef Ferðamálaráðs.

Dregur úr innlendri prentun

Hlutfall bókaprentunar innanlands hefur dregist saman um 3,4 prósent milli ára að því er fram kemur í könnun Bókasambands Íslands á prentun íslenskra bóka sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir jólin.

Þriggja og hálfs árs fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Sigurð Rúnar Gunnarsson í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Sigurður Rúnar var handtekinn þegar hann kom til landsins frá Amsterdam í maí. Í fórum hans fundust tæpt kíló af kókaíni og tæpt kíló af amfetamíni.

Borgin hefur ekki fylgt máli eftir

Í lok nóvember stóð mikill styr um sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg og íbúar mótmæltu þegar steinsteypukerjum var stillt upp fyrir framan það. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, sagði þá að það kæmi til greina af sinni hálfu að farið yrði fram á að sendiráð

Bókuð flugför færri en í fyrra

Bókuð flugför hjá Flugfélagi Íslands eru aðeins færri í ár en í fyrra. Árni Gunnarsson, sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins, segir að salan sé oft misjöfn milli jóla og velti mikið á hvort það séu brandajól eða ekki og í ár sé jólafríið til að mynda stutt.

Hvít jól um allt land

Siggi stormur segir að samkvæmt spám megi búast við hvítum jólum um allt land og fallegum snjó á aðfangadagskvöld. Séra Vigfúsi Þór Árnasyni finnst alltaf hátíðlegt þegar jörð er hvít um jól en minnir á að það er alltaf gott veður þegar klukkan slær sex á aðfangadag. </font /></b />

Friðargæslan í heimspressunni

Bandarísku stórblöðin New York Times og International Herald Tribune gerðu í gær að umtalsefni íslensku friðargæsluna og uppnámið sem hún hefur valdið hér á landi. Blaðamaður segir að myndir af íslenskum friðargæslumönnum gráum fyrir járnum hafa kallað fram naflaskoðun Íslendinga, sem sögð er friðelskandi þjóð.

Saksóknari stal korti kollega

Frönsk yfirvöld rannsaka mál saksóknara þar í landi sem er grunaður um að hafa stolið greiðslukorti þýsks starfsbróður síns og notað það til að greiða fund með vændiskonu.

Stjórnvöld hvika hvergi

Þrátt fyrir undrun og vonbrigði bandarískra stjórnvalda, munu þau íslensku standa við þá ákvörðun að veita Bobby Fischer dvalarleyfi. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra óttast ekki að sú ákvörðun munu hafa áhrif á samskipti þjóðanni, og segist jafnframt reiðubúinn að láta á það reyna með formlegum hætti, krefjist bandarísk stjórnvöld þess að fá Fishcer framseldan.

Landið minna en talið hefur verið

Ísland er þrjú hundruð ferkílómetrum minna en fullyrt hefur verið, en strandlengjan er sextán hundruð kílómetrum lengri en talið var. Þar með eru kennslubækur, kort og ýmsar aðrar upplýsingar úreltar að sögn framkvæmdastjóra Loftmynda sem hafa mælt landið af mikilli nákvæmni.

Hækkað á öllum vígstöðvum

Þjónustugjöld hækka um áramótin í Reykjavík þrátt fyrir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hafi varið hækkun útsvars með því að það væri skárri leið en að hækka þjónustugjöld. Borgarstjóri segir borgarbúa borga hlutfallslega minna fyrir þjónustuna en á undanförnum árum.

Verðið aldrei hærra

Fasteignaverð hefur aldrei verið hærra, aldrei hafa jafn margar fasteignir skipt um eigendur og nýbyggingar spretta upp. Fátt virðist þó benda til þess að verðið lækki í bráð og sérfræðingar spá því að fasteignir geti hækkað enn frekar í verði.

Sífellt grófari leikir

Tölvuleikir verða sífellt grófari og brögð eru að því að foreldrar geri sér ekki grein fyrir þessu. Grófasti leikurinn á markaðnum gengur út á að fremja morð á eins hrottafenginn hátt og mögulegt er.

Lítið var um áfallahjálp

Þrjátíu ár eru í dag frá því að snjóflóðin féllu á Neskaupstað og tólf manns fórust. Einn þeirra sem missti ættingja í flóðunum segir áfallahjálp nauðsynlega, en lítið var um slíkt á þessum tíma.

Fannst látin í höfninni

Pólsk kona fannst látin í höfninni á Blönduósi í gærmorgun. Samlandar konunnar söknuðu hennar um morguninn og létu lögreglu vita. Lögreglan fann konuna síðan í höfninni rétt áður en skipulögð leit hófst.

Laus úr haldi

Hæstiréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Lofti Jens Magnússyni, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað í varðhald til 27. janúar. Loftur Jens veitti Ragnari Björnssyni hnefahögg fyrr í mánuðinum á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ með þeim afleiðingum að Ragnar lést.

Flutti kókaín inn fyrir samfanga

Sigurður Rúnar Gunnarsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni.

Falsaði kaupverð

Maður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur til greiða 80 þúsund krónur í sekt fyrir skjalafals og tollalagabrot. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur tíu daga fangelsi hennar í stað.

Hrinti konu út úr bíl á ferð

Rúmlega tvítugur maður hefur í Héraðsdómi Vestfjarða verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og hótanir gegn ungri konu. Hann hristi hana, sló ítrekað í öxl hennar og hrinti henni að lokum út úr bíl á ferð í hringtorgi á Ísafirði.

Ósáttir við að undankeppnina vanti

Eurovisionfari án undankeppni rýrir atvinnuvettvang tónlistarmanna, segir Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Stöðugt hafi dregið saman hjá tónlistardeild Ríkisútvarpsins á síðustu árum.

Útboðsgögnum fyrir höfnina dreift

Fjórir hópar sem taka þátt í samkeppni um hönnun og rekstur ráðstefnumiðstöðva, tónlistarhúss og hótels á Austurhöfninni í Reykjavík fengu afhenta endanlega útboðslýsingu í gær.

Eindreginn vilji stjórnvalda

"Verulegur áhugi og eindreginn vilji er meðal stjórnvalda til að einfalda umsóknarferli fyrir virkjanaframkvæmdir," segir Helgi Bjarnason, skrifstofustjóri orku- og stóriðjumála.

Víðtæk áhrif á Hornafirði

Ráðgert er að segja upp starfsmönnum hjá Ratsjárstofnun á Stokksnesi við Hornafjörð. Þar starfa nú 12 til 13 manns en ekki liggur fyrir hvort öllum verður sagt upp.

Hagsmunamál þjóðarinnar í heild

Að mati Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Akureyri, eiga landsmenn allir að vera með í ráðum varðandi framtíð Reykjavíkurflugvallar. Segir hann aðalatriðið ekki vera staðsetningu flugvallarins heldur að samgöngur til og frá höfuðborginni verði jafn greiðar og þær eru í dag.

Knattspyrnuhöll á Reyðarfirði

Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð eiga í viðræðum við Alcoa og Bechtel um kostnaðarþátttöku í nýju fjölnota íþróttahúsi á Reyðarfirði. Lausleg kostnaðaráætlun hljóðar upp á hálfan milljarð króna og ganga viðræðurnar út á að Alcoa og Bechtel greiði tæpar 100 milljónir króna.

28 létust í umferðinni

Tuttugu og átta létust í umferðarslysum á Spáni um helgina eftir því sem spænska samgönguráðuneytið skýrði frá í gær.

Bush ver Rumsfeld

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom varnarmálaráðherra sínum Donald H. Rumsfeld til varnar í gær og sagði að hann ynni mjög gott starf. "Ég þekki hjartalag Rumsfelds.

Íraskir hermenn ekki tilbúnir

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna viðurkenndi í gær að íraskir hermenn væru ekki tilbúnir til þess að leysa bandarískar hersveitir í Írak af hólmi.

Serbar sniðganga ráðherra

Sameinuðu Þjóðirnar gagnrýndu í dag stjórn Serbíu fyrir að hvetja minnihluta Serba í Kosovo til að sniðganga stjórnkerfið í héraðinu.

Sjómaður sóttur í suðurhöf

Lífshættulega veikum, portúgölskum sjómanni var bjargað úr spænskum togara og fluttur í ástralskt varðskip á föstudag. Sjómaðurinn var sóttur í skipið skammt undan Suðurskautslandinu og var þegar haldið með hann áleiðis til Fremantle í Ástralíu.

Rússland ekki lengur frjálst

Freedom House, virt bandarísk stofnun sem fylgist með þróun pólitískra réttinda og almenningsfrelsis, tilkynnti í gær að Rússland hefði verið fellt úr flokki "frjálsra" ríkja í heiminum í ársskýrslu stofnunarinnar.

Njósnað um forseta Króatíu

Forsetakosningar fara fram í Króatíu í byrjun næsta árs og hljóp spenna í kosningabaráttunni áður en hún hófst þegar upp komst um að leyniþjónusta landsins hefði njósnað um Stipe Mesic, núverandi forseta.

Maður féll sex metra

Maður hlaut höfuðáverka eftir að hann féll um sex metra í loðnubræðslunni á Eskifirði á fimmta tímanum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem gert var að meiðslum hans. Líðan hans er sögð góð eftir atvikum og maðurinn með fullri meðvitund.

Fernt á slysadeild

Fernt fór á slysasdeild eftir harðan árekstur jeppa og fólksbifreiðar laust fyrir klukkan þrjú dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi í Svínahrauni þegar þeir rákust á.

Austurbyggð vaknar

Bjartsýni einkennir íbúa hins nýja sveitarfélags Austurbyggðar sem varð til með sameiningu Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar fyrir rúmu ári. Sveitarstjórinn segir byggðarlagið best varðveitta leyndarmál Austurlands. Væntanleg göng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar munu bæta búsetuskilyrðin til muna. </font /></b />

Halló Kongó

Íslendingar og Vestur-Kongóbúar hafa tekið upp stjórnmálasamband en stjórnvöld í landinu hafa áhuga á þróun fiskveiða.

Sjá næstu 50 fréttir