Fleiri fréttir

170 Palestínumenn fá frelsi

Ísraelsmenn samþykktu í morgun að láta 170 Palestínumenn lausa úr fangelsi eftir að Egyptar gáfu ísraelskum njósnara frelsi á dögunum, að því er ísraelsk útvarpsstöð hefur eftir ráðamönnum þar í landi. Fangarnir verða látnir lausir á næstu dögum.

9% hækkun í kjölfar nýju lánanna

Frá því bankarnir fóru að bjóða íbúðarlán hefur verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hækkað um tæp 9% sem er mesta hækkun á svo skömmum tíma sem orðið hefur. Þegar fasteignaverð hækkaði hvað mest í uppsveiflunni frá árinu 1999 til 2000 komst þriggja mánaða hækkun aldrei yfir rétt rúm 7%.

Stjórnarmyndun enn í gangi

Hörðum höndum var unnið að því í alla nótt að ná samkomulagi um myndun þjóðstjórnar í Ísrael. Enn munu samningamenn sitja við samningaborðið til að reyna að finna lausn á því hvernig breyta má lögum á þann veg að Simon Peres geti orðið aðstoðarforsætisráðherra. Takist það er búist við því að formlega verði greint frá myndun nýrrar stjórnar í dag.

Óttaðist ekki um líf sitt

Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður, sem var um borð í flugvél British Airways þegar öryggi í flugstjórnarklefa brann yfir á föstudag, segist ekki hafa óttast um líf sitt, enda hafi hann ekki áttað sig á alvarleika aðstæðnanna fyrr en eftir á. Auk Sigurðar Kára var fjármálaráðherra og fjórir aðrir íslenskir þingmenn um borð í vélinni.

Kosningastarfsmenn drepnir í Írak

Öflug bílsprenging sprakk fyrir stundu í borginni Kerbala í Írak. Í það minnsta tíu fórust. Þrír starfsmenn kjörstjórnar fyrir kosningarnar í næsta mánuði voru drepnir í Bagdad fyrr í morgun.

Eignir Yukos á uppboði í dag

Lykileignir rússneska olíufélagsins Yukos verða seldar á uppboði í dag - að sögn fréttaskýrenda á góðu verði, finnist rétti kaupandinn.

Tíu hermenn drepnir í Nepal

Uppreisnarmenn úr röðum Maoista í Nepal drápu tíu hermenn í austurhluta landsins í morgun. Ofbeldisverkum og árásum hefur mjög fjölgað í landinu að undanförnu og í það minnsta sjötíu hafa fallið undanfarna viku eða svo.

Bílvelta á Suðurnesjum

Bílvelta varð á Garðvegi við svokallaðan Ellustekk skömmu fyrir hádegi samkvæmt Víkurfréttum. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur en hann náðist á hlaupum við innkomuna í Garðinn. Hann var fluttur til Keflavíkur til sýnatöku og skoðunar. Bifreiðin er nokkuð skemmd.

Átökin í Darfur verði stöðvuð

Stjórnvöld í Súdan ákváðu í dag að leggja sitt af mörkum til að stöðva átökin í Darfurhéraði og óskuðu eftir því við Sameinuðu þjóðirnar og Afríkusambandið að þau biðluðu til uppreisnarmanna að gera slíkt hið sama. Frá þessu var greint að loknum neyðarfundi sem boðað var til í dag vegna ástandsins í héraðinu.

Rumsfeld undirritar öll bréf

Donald Rumsfeld mun hér eftir undirrita öll samúðarbréf sem send eru ættingjum fallinna hermanna. Rumsfeld og varnarmálaráðuneytið hafa verið gagnrýnd undanfarið fyrir það virðingarleysi sem sýnt er þeim Bandaríkjamönnum sem eiga um einna sárast að binda vegna Íraksstríðsins með því að senda nánast algjörlega staðlað samúðarbréf með tölvuskrifaðri undirskrift ráðherrans.

48 látnir og 10 særðir í Najaf

Að minnsta kosti 48 eru látnir og 90 særðir eftir sjálfsmorðsárás í hinni heilögu borg Najaf í Írak í dag. Árásarmaðurinn ók bíl upp að strætisvagnastöð, þar sem mikill mannfjöldi var samankominn, og sprengdi sig þar í loft upp. 

Verð aldrei hækkað jafn hratt

Fasteignaverð hefur aldrei hækkað jafnhratt á höfuðborgarsvæðinu og undanfarna þrjá mánuði. Verðið hefði hins vegar lækkað eða staðið í stað ef íbúðalán bankanna hefðu ekki komið til, að mati greiningardeildar KB banka.

Gætu orðið rasssíðir við að smala

Landeigendur á Norðausturlandi eru undrandi yfir kröfum ríkisins um þjóðlendur í fjórðungnum. Þeir töldu að stjórnvöld hefðu dregið einhvern lærdóm af nýlegum Hæstaréttardómi vegna jarðamála í uppsveitum Biskupstungna. Ríkið gerir kröfu um 95 prósent lands Brúar í Jökuldal. </font /></b />

Útlendingum haldið frá landinu

Íslensk stjórnvöld leita að öllum hugsanlegum ástæðum til að koma í veg fyrir að útlendingar frá fjarlægum löndum komist til landsins eða fái að dveljast hér, segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. Hann telur að framkvæmd útlendingalaganna sé mun strangari en sjálf löggjöfin.

Þekktasta fórnarlambið á batavegi

Þekktasta fórnarlamb stríðsins í Írak er á batavegi. Ali Abbas, drengurinn sem missti hendurnar þegar sprengja lenti á heimili hans í Bagdad, vill snúa aftur heim til að starfa með öðrum sem misst hafa útlimi.

Átthagarnir í andlitinu

Það sést á Íslendingum hvaðan af landinu þeir koma. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa komist að því að tengsl eru á milli átthaga og erfða fólks. Gera má ráð fyrir að þessi tengsl séu enn sterkari í stærri löndum. Þessi niðurstaða breytir erfðafræðirannsóknum í framtíðinni.

Hættulegt liðagigtarlyf

Varað er við lyfinu Celebra, sem notað er við liðagigt, þar sem það eykur líkurnar á kransæðastílfu og heilablóðfalli. Landlæknir ráðleggur fólki sem notar lyfið að ræða við lækninn sinn.

Orkuveitan vill víðtækari leyfi

Orkuveita Reykjavíkur hefur óskað eftir svörum Skipulagsstofnunar um hvort sjö boranir til rannsóknar á Hellisheiði þurfi umhverfismat. Fjórar þeirra eru á nýju svæði.

Málshöfðun í farvatninu

Gremja og reiði ríkja í garð hafnfirskra bæjaryfirvalda, sem fyrr á árinu ákváðu að fela einkafyrirtæki að annast ræstingar stofnana bæjarins.

Skeljungur skammist sín

Ungir jafnaðarmenn skora á Skeljung að skammast sín fyrir það sem kallað er í ályktun ósvífnar hótanir í garð Kópavogsbæjar. Skeljungur gerði athugasemdir við að Atlantsolíu væri úthlutað lóð að Dalbraut í Kópavogi, við hlið bensínstöðvar Skeljungs, og sendi Kópavogsbæ erindi þess efnis.

Varað við gitgarlyfi

Komið hefur í ljós að neysla gigtarlyfsins Celebra geti stuðlað að kransæðastíflu og heilablóðfalli. Langtímarannsóknum á lyfinu hefur verið hætt og ráðleggur Landlæknisembættið fólki sem notar það að ræða málin við lækni sinn í næstu heimsókn.

62 liggja í valnum eftir daginn

Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð.

Jafnvel flogið beint til Japan

Sæmundur Pálsson heldur hugsanlega til Japan í dag til að fylgja Bobby Fischer til Íslands. Til greina kemur að fljúga beint til Tókýó og leigja til þess einkaþotu enda flugleiðin löng og hefðbundið farþegaflug tímafrekt.

Hansína er nýi bæjarstjórinn

Hansína Á. Björgvinsdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Kópavogi á fyrsta vinnudegi á nýju ári. Hún þurfti góðan umhugsunarfrest áður en hún ákvað að takast á við verkefnið. "Það hafði aldrei hvarflað að mér að þurfa að kljást við þetta verkefni," segir hún. </font /></b />

Ungbarnasund styrkir börnin

Ungbarnasund styrkir börnin og eflir skynfæri þeirra og jafnvægi, segir Snorri Magnússon sem kennt hefur ungbarnasund í fjórtán ár. Barnalæknar hér á landi telja óvarlegt að fullyrða að ungbarnasund skaði ónæmiskerfi barnanna, eins og gert er í sænskri rannsókn.

Misjafn erfðabreytileiki

Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar sýnir að sterk tengsl eru milli búsetu og erfðabreytileika. Kári Stefánsson segir niðurstöðurnar mikilvægar og þær megi nota til að hanna tilraunir til að einangra erfðamengi og kortleggja ákveðna sjúkdóma. </font /></b />

Bush maður ársins í annað sinn

Bandaríska tímaritið Time hefur útnefnt George W. Bush Bandaríkjaforseta mann ársins og segir hann hafa mótað stjórnmálin upp á nýtt með endurkjöri sínu fyrr á árinu.

Tugþúsundir mörgæsa í lífshættu

Tugþúsundir mörgæsaunga á Suðurskautslandinu gætu orðið hungurmorða á næstu vikum vegna risaísjaka sem lokar af veiðisvæði foreldra þeirra. Ísjakinn er þrjú þúsund ferkílómetrar, sá stærsti sem menn hafa séð. Vísindamenn telja að unganna bíði aðeins dauði. Í ísjakanum er jafnmikið vatn og rennur um ána Níl á áttatíu árum.

Segja Musharraf svíkja loforð

Um það bil fjögur þúsund manns mótmæltu á götum Rawalpindi í Pakistan fyrirætlunum Pervez Musharraf forseta um að sitja áfram sem yfirmaður heraflans, en hann hafði áður lofað að láta af stjórn hans nú í árslok.

Hrottaleg morð í Frakklandi

Tvær hjúkrunarkonur voru myrtar á hrottafenginn hátt á geðsjúkrahúsi í borginni Pau í Suður-Frakklandi á laugardag. Önnur konan var skorin á háls en hin var hálshöggvin og höfuð hennar sett upp á sjónvarpstæki, samkvæmt því sem kemur fram á vef BBC. Málið hefur vakið mikinn óhug um allt Frakkland.

Fyrsta vélin með íslenskt leyfi

Fyrsta Dornier 228 flugvélin með íslenskt rekstrarleyfi hefur hafið flug. Ungur Grindvíkingur starfrækir vélina og ætlar að herja á Skotlandsmarkað. Hann segir það vel koma til greina að reka slíka vél hér á landi innan skamms, ef vel gengur.

Yukos selt á 600 miljarða

Óþekkt fyrirtæki sem nefnist Baikalfinansgroup keypti Yuganskeneftegaz, dótturfyrirtæki rússneska olíufyrirtækisins Yukos, á uppboði í gær. Kaupverðið var tæplega 600 milljarðar króna og fara peningarnir upp í skattskuldir Yukos sem sagðar eru nema 1.800 milljörðum króna.

Tugir létust í Najaf og Karbala

Mesta mannfall á einum degi í Írak í nokkra mánuði varð í gær þegar tvær sprengjur sprungu í helgustu borgum sjíamúslima. Þrír starfsmenn kosninganefndar voru skotnir til bana. Myndband með tíu íröskum gíslum sýnt.

Rumsfeld skrifaði ekki ættingjum

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir að skrifa ekki persónulega undir bréf sem send eru fjölskyldum fallinna hermanna. Rumsfeld lét sérstaka vél skrifa undir bréfin.

Rúrí stefnir íslenska ríkinu

Listakonan Rúrí hefur stefnt íslenska ríkinu og kristnihátíðarnefnd vegna ágreinings um bótaskyldu vegna útilistaverks sem skemmdist á kristnihátíð árið 2000. Bótaskyldan byggist á lagaákvæðum í Jónsbók frá árinu 1281. Málið hefur verið tekið fyrir í héraðsdómi.

Atlantsskip styrkir veik börn

Fyrirtækið Atlantsskip hefur ákveðið að veita Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna styrk í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina sinna.

Montaði sig af barninu

Lisa Montgomery var á föstudag kærð fyrir að hafa kyrkt konu til bana og rænt barni hennar úr móðurkviði. Barnið er við góða heilsu. Montgomery og maður hennar gengu um með barnið á veitingastað og montuðu sig af því nokkrum tímum áður en þau voru handtekin.

Milljarða bætur fyrir ruslpósts

Dómstóll í Iowa hefur dæmt þrjú fyrirtæki til þess að greiða netþjónustufyrirtæki 63 milljarða króna í skaðabætur fyrir ruslpóst sem þau sendu.

Eldsvoði í ferju

Eldur braust út í ferju sem flutti nokkur hundruð manns frá Sikiley til meginlands Ítalíu. Ferjan var dregin til baka til hafnar.

170 fangar látnir lausir

Ísraelsk stjórnvöld munu láta 170 palestínska fanga lausa úr fangelsi á næstu dögum. Ástæðan er samkomulag stjórnarinnar og egypska forsetans Hosni Mubarak. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði ákvörðunina vera "góðverk" og sýna "mikla vináttu" í garð egypska forsetans.

Tómir kjörstaðir í Turkmenistan

Kjörstaðir í Turkmenistan voru nánast tómir þegar kosið var á þing í landinu. Yfirvöld brugðu á það ráð að ganga í hús til þess að fá fólk til að kjósa.

Vélsleðamenn skullu saman á stökki

Tveir menn, hvor á sínum vélsleðanum, skullu saman í stökki sem varð til þess að annar slasaðist alvarlega. Mennirnir voru að leika sér að stökkva yfir veginn yfir á Hauganes í Eyjafirði þegar sleðar þeirra skullu saman.

Ekki samið fyrir jól

Tónlistarkennarar og sveitarfélögin ná ekki samkomulagi um kjör kennaranna fyrir jól eins og stefnt var að. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður Félags tónlistarkennara, segir launaliðinn taka sinn tíma. Menn séu ekki sömu skoðunar hvað hann varði.

Sjá næstu 50 fréttir