Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leystur úr fangelsi fyrir mistök Foringja hryðjuverkamannanna sem myrtu nær 200 manns í hryðjuverkaárásunum í Madríd í vor var sleppt úr fangelsi fyrir mistök fyrir tveimur árum síðan. Allekema Lamari, einn sjö manna sem sprengdu sig í loft upp þegar lögreglan umkringdi þá 3. apríl, er talinn hafa verið foringi mannanna sem gerðu sprengjuárásirnar á lestarstöðvum í Madríd. 21.10.2004 00:01
Atlansskip unnu mál við ríkið Atlantsskip unnu í dag mál gegn ríkinu í Hæstarétti, en rétturinn segir að ríkinu hafi verið óheimilt að þrengja skilgreiningu um skipafélög sem mega annast sjóflutninga fyrir varnarliðið. 21.10.2004 00:01
Áttu von á deilum um varnarmál Framtíðarhópur Samfylkingarinnar bjóst við því að tekist yrði um tillögur vinnuhóps um varnarmál þegar áfangaskýrsla var kynnt á flokksstjórnarfundi um síðustu helgi. 21.10.2004 00:01
Spjöll unnin á leiðum Spjöll hafa verið unnin á leiðum í kirkjugarðinum í Keflavík. Spellvirkjar hafa velt við um það bil tuttugu legsteinum, rifið upp krossa og brotið skildi með nöfnum látinna í mél. Eins hafði ýmsu smálegu, eins og lugtum og öðru skrauti, verið dreift eins og hráviði um allan garð. 21.10.2004 00:01
Átta ára dómur fyrir misþyrmingar Bandaríski hermaðurinn Ivan Fredericks var í gær dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að misþyrma föngum í fangelsinu Abu Ghraib í Írak. Fredericks, háttsettasti hermaðurinn til að verða ákærður fyrir fangamisþyrmingar, játaði sök í fyrradag. 21.10.2004 00:01
Fyrsti innflytjandi í ráðherrastól Ibrahim Baylan varð í gær fyrsti innflytjandinn í sögu Svíþjóðar til að taka við embætti ráðherra í stjórn landsins. Göran Persson forsætisráðherra skipaði Baylan í embætti menntamálaráðherra í uppstokkun sinni á ráðherrum sænsku stjórnarinnar. 21.10.2004 00:01
Breskir hermenn á átaksvæði Breska ríkisstjórnin ákvað að senda 850 breska hermenn inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers í Írak svo Bandaríkjamenn geti sótt fram gegn íröskum vígamönnum af meiri krafti. Bretarnir taka sér stöðu vestur af Bagdad á svæði þar sem súnnímúslimar hafa gert daglegar árásir á bandaríska hermenn og íraska lögreglumenn. 21.10.2004 00:01
Klagið reykingafólkið Írar eiga að hafa samband við yfirvöld ef þeir verða vitni að því að fólk brýtur lög sem banna reykingar á krám og veitingastöðum. Þetta er upplagið í fimm vikna auglýsingaherferð sem írska tóbaksvarnaeftirlitið hratt í framkvæmd í gær. 21.10.2004 00:01
Strippað í fangelsi Fangavörðum í Hof fangelsinu í suðurhluta Noregs brá í brún þegar þeir litu inn í samkomusal fanganna og sáu nektardansmey stíga dans fyrir fangana. Atvikið átti sér stað á menningarkvöldi sem fangelsisyfirvöld höfðu samþykkt að fangarnir fengju að halda en voru með öllu grunlaus um að þeir réðu sér nektardansmey til að skemmta föngunum. 21.10.2004 00:01
Herþotur sendar til verndar Katsav Tvær austurrískar herþotur voru sendar á loft til að verja þyrlu Ísraelsforseta eftir að flugumsjónarmenn tilkynntu að lítilli flugvél væri flogið í átt að þyrlunni. Af ótta við að einhver kynni að ætla að ráðast á Moshe Katsav, forseta Ísraels, ákváðu yfirvöld að taka enga áhættu. Hættan reyndist þó lítil þar sem um var að ræða einkaflugmann í útsýnisflugi. 21.10.2004 00:01
Standa saman að hjálparstarfi ABC hjálparstarf hefur samið við Þróunarsamvinnustofnun Íslands um samstarf í hjálparstarfi við fátæk og munaðarlaus börn í fjórum löndum þar sem Þróunarsamvinnustofnunin starfar nú þegar. Löndin eru Malaví, Mósambík, Namibía og Úganda. 21.10.2004 00:01
Slitnaði upp úr viðræðum Upp úr viðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaga slitnaði nú undir kvöld. Ríkissáttasemjari lagði fyrir deilendur í dag hugmynd að lausn sem ekki náðist sátt um. Hann hyggst ekki boða til nýs sáttafundar fyrr en eftir hálfan mánuð. 21.10.2004 00:01
Landeigendur unnu Ríkið beið ósigur í Hæstarétti í dag þegar staðfest var að land innan tiltekinna jarða í Árnessýslu teldust ekki til þjóðlendna, eins og ríkið krafðist. Landeigendur segja langri og erfiðri baráttu þar með lokið. Lögmaður landeigenda segir dóminn fela í sér skilaboð til ríkisins um að gæta hófs í kröfum sínum. 21.10.2004 00:01
Milljónir tonna af sandi fuku Það tekur náttúruna að minnsta kosti fimm ár að vinna upp þá landeyðingu sem varð í ofsarokinu í byrjun vikunnar, þegar milljónir tonna af sandi fuku yfir landið. Svörðurinn er nú sérstaklega viðkvæmur fyrir öðrum eins veðurofsa, og óskar landgræðslustjóri sér nú helst af öllu mikillar snjókomu til að vernda landið. 21.10.2004 00:01
Fækkar ef dregur úr karlmennsku Nauðgunum fækkar ef dregið er úr karlmennskudýrkun í samfélaginu. Þetta segir mannfræðingur sem leitar svara við því í meistararitgerð sinni af hverju karlmenn nauðga. Hún segir nauðganir algengar á Vesturlöndum, en fátíðar í menningarsamfélögum þar sem er jafnræði milli kynjanna. 21.10.2004 00:01
Þróunin góð segir Guðni Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir ekkert að því að fjársterkir menn kaupi upp jarðir og framleiðslu og að tugir jarða séu í eigu sömu manna. Þetta sé framfaraþróun sem styrki búin og sveitina. 21.10.2004 00:01
Fyrir Mannréttindadómstólinn Ólafur Björnsson, lögmaður jarðeigenda í Biskupstungum, segir þá fagna niðurstöðu Hæstaréttar þar sem eignarréttur þeirra yfir eigin jörðum sé staðfestur. Línur milli afréttar og jarða haldi þrátt fyrir að ríkið hafi gert kröfu um hluta af jörðum skjólstæðinga hans. 21.10.2004 00:01
Nauðsynlegt prófmál "Niðurstaða Hæstaréttar staðfesti eignarrétt landeigenda og ég óska þeim til hamingju með það," segir Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. "Rétturinn tekur þó á hinn bóginn undir aðrar kröfur sem ríkið gerði." Hann segir að það hafi verið nauðsynlegt að reka málið alla leið í Hæstarétt til að fá skýra niðurstöðu um ákveðin grundvallaratriði sem kunna að hafa þýðingu í öðrum þjóðlendumálum. 21.10.2004 00:01
Deilan um landið á tímamótum Jarðeigendur í uppsveitum Biskupstungna halda jörðum sínum óskertum en afréttur sem þeir gerðu kröfu til verður að þjóðlendum samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Ríkið gerði kröfu um hluta jarðanna. Með dómnum er staðfestur úrskurður óbyggðanefndar frá því árið 2000. Þetta er fyrsti dómur Hæstaréttar í þjóðlendumáli. 21.10.2004 00:01
Mengun 15 sinnum yfir viðmið Svifryk í andrúmslofti í Reykjavík fór fimmtán sinnum yfir viðmiðunarmörk á síðasta ári, oftar en nokkru sinni áður. Þetta kemur fram í skýrslu Umhverfisstofu Reykjavíkur. Talið er að aukin notkun bíla og breytt veðurfar í borginni hafi haft þessi áhrif. Svifryk mælist mest á þurrviðrisköflum að vetrarlagi þegar jörð er snjólaus. 21.10.2004 00:01
Lokatilraun til samninga brást Kennarasambandið vill semja sér við hvert sveitarfélag í næstu kjarasamninga. Fundum samninganefndanna verður ekki framhaldið næstu tvær vikurnar nema eitthvað nýtt komi fram. Sveitarfélögin segjast ekki munu óska eftir nýjum fundum. Allt er því strand í kennaradeilunni.</b /> 21.10.2004 00:01
Lögfræðingur skoðar rétt bæjarins Sveitarstjórnin í Súðavík hefur fengið lögfræðing til að meta hvort um verkfallsbrot yrði að ræða, eins og verkfallsstjórn kennara telur, fari dagvistun barna fram í íþróttahúsi bæjarins í verkfalli kennara. 21.10.2004 00:01
Skemmdir í kirkjugarði í Keflavík Skemmdir voru unnar í kirkjugarðinum við Aðalgötu í Keflavík í gær. Fimm krossar voru losaðir upp og 21 legsteini var velt við. Einn legsteinn var brotinn sem og nokkur luktarhús, blómaker og styttur. 21.10.2004 00:01
Gríðarlegt áfall að ekki samdist Fundarslitin í Karphúsinu eru gríðarlegt áfall, segir Stefán Jón Hafstein formaður fræðsluráðs Reykjavíkur. "Það sem gerist núna kallar á varfærin viðbrögð. Það má alls ekkert út af bregða," segir Stefán Jón. 21.10.2004 00:01
32. dagur verkfalls "Á jákvæðan hátt sendur fólk saman," segir Ólafur Loftsson formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Kennarar hafi hreina samvisku því kröfur þeirra séu á engan hátt óréttmætar. 21.10.2004 00:01
Borgin mismunar börnum Reykjavíkurborg mismunar fötluðum börnum með því að greiða einungis úr neyð einhverfra barna í verkfalli kennara, segir Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir. 21.10.2004 00:01
Zarqawi á lista Sameinuðu Þjóðanna Hryðjuverkahópar sem lúta stjórn Abus Musabs al-Zarqawis í Írak eru nú komnir á alþjóðlegan lista Sameinuðu þjóðanna yfir hryðjuverkasamtök. Það þýðir að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna ber að gera allt sem í þeirra valdi er til að koma í vef fyrir ferða félaga í samtökunum, leggja hald á vopn þeirra og frysta fjármuni sem rekja má til þeirra. 20.10.2004 00:01
Fjölda lamba og kinda bjargað Fjölmennu liði björgunarsveitarmanna tókst að bjarga tugum ef ekki hundruðum lamba og kinda, sem voru hætt komin í Eiðaþinghá á Fljótsdalshéraði í gær. Þegar björgunarmenn komu á vettvang við erfiðar aðstæður, voru margar kindur við það að örmagnast þar sem blautur snjór hafði sest í ullina og hálf forsið, þannig að kindurnar voru að sligast og örmagnast. 20.10.2004 00:01
Eitthvað að gerast Talið er að einhver hreyfing hafi komist á samningaviðræður kennara og sveitarfélaga á fimm klukkustunda samningafundi hjá Ríkissáttasemjara í gær og hefur hann boðað deilendur aftur á fund klukan eitt í dag. Menn verjast þó nánari fregna af fundinum, en í dag hefur verkfall kennara staðið í réttan mánuð. 20.10.2004 00:01
Verið að gera við brúnna Vegagerðarmenn eru nú byrjaðir að gera við brúnna yfir Núpsvötn austan við Kirkjubæjarklaustur, eftir að hluti af nýrri málmklæðningu á brúargólfinu flettist upp í veðurofsanum í gærmorgun. Þjóðvegi eitt var þá lokað á milli Skeiðarár og Lómagnúps og er hann það enn. Vegagerðarmenn gátu ekkert aðhafst í gær vegna veðurofsans. 20.10.2004 00:01
Logaði í heyi fram á kvöld Glæður loguðu í heyi að bænum Knerri á Snæfellsnesi alveg fram á kvöld í gærkvöldi, efitr að þar kviknaði í í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að á milli 600 og 700 fjár drápust þegar fjárhúsin brunnu. Talið er að þetta sé eitthvert mesta búfjártjón hjá einum bónda í Íslandssögunni. 20.10.2004 00:01
Hætta á hryllilegri hungursneyð Hætta er á hungursneyð í Darfur í Súdan, sem gæti orðið mun verri en nokkur hungursneyð sem sést hefur á undanförnum áratugum. Þetta er mat sérfræðinga alþjóða Rauða krossins. Talsmenn barnaverndarsjóðs Sameinuðu þjóðanna greindu jafnframt frá því að öryggi í Darfur væri ennþá mjög ábótavant. 20.10.2004 00:01
Hollingshorst fékk Booker verðlaun Booker-verðlaunin, einhver þekktustu bókmenntaverðlaun Bretlands, hlýtur í ár rithöfundurinn Alan Hollingshorst fyrir bókina The Line of Beauty. Hún fjallar um samkynhneigðan lífsnautnasegg á stjórnarárum Margret Thatcher í Bretlandi. Í einu atriða bókarinnar dansar söguhetjan meira að segja við Thatcher uppfullur af eiturlyfjum og gjörsamlega út úr heiminum. 20.10.2004 00:01
Börðu dóttur sína og systur Írakskir feðgar voru handsamaðir í Ósló í gær þar sem þeir höfðu beitt tólf ára gamla stúlku ofbeldi. Feðgarnir, sem eru 36 og 20 ára gamlir og eru faðir og bróðir stúlkunnar, sættu sig ekki við að hún ætti orð við norska jafnaldra sína af gagnstæðu kyni. Þeir hugðust taka hana með sér til Íraks þar sem þeir höfðu fundið mannsefni fyrir hana. 20.10.2004 00:01
Geðsjúks morðingja leitað Geðsjúks morðingja er leitað í Linköping í Svíþjóð. Maðurinn, sem er um tvítugt, réðist á konu á sextugsaldri í gærmorgun og stakk hana til bana, eftir því sem talið er að ástæðulausu. Átta ára gamall drengur var skammt hjá og kallaði hann þegar í stað á hjálp. Morðinginn vatt sér því næst að drengnum og drap hann. 20.10.2004 00:01
Viðurkennir samband en neitar öðru Danski þingmaðurinn, sem var handtekinn í gær, viðurkennir ad hafa haft samband vid þrettán ára dreng á Internetinu, en neitar að hafa stundað kynlíf med honum. Danska lögreglan, sem nú yfirheyrir þingmanninn, telur ad hann hafi áður reynt ad setja sig í samband vid fleiri unga drengi og boðið þeim greiðslu fyrir kynlíf. 20.10.2004 00:01
2 í gæsluvarðhald vegna morðs Tveir menn á fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Danmörku til 11. nóvember, vegna morðs á leigubílstjóra á sunnudagskvöld. Við yfirheyrslur yfir mönnunum tveimur í gær kom fram að þeir verða í einangrun til annars nóvember. 20.10.2004 00:01
Breytti nafninu í „hvalborgari" Ungur norskur slátrari hefur fengið samþykkta breytingu á skírnarnafni sínu. Espen Scheide er slátrari í Þrándheimi, og nýlega rakst hann á síðu á netinu, þar sem hægt er að sækja um nafnbreytingu. Espen leist vel á það og heitir nú ekki lengur Espen, heldur Keikoburger. 20.10.2004 00:01
Sambúð getur af sér drengi Pör sem búa undir sama þaki á þeim tíma þegar barn er getið eru líklegri til að eignast stráka en pör sem ekki búa saman. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri könnun sem virðist ótvírætt sýna að umhverfisaðstæður við getnað geti að einhverju leyti ákvarðað kyn barnsins. 20.10.2004 00:01
Stöðva starfsemi vegna mannráns Alþjóðlegu hjálparsamtökin Care International hafa ákveðið að stöðva alla starfsemi sína í Írak í kjölfar þess að öfgahópar rændu í gær Margaret Hassan, yfirmanni samtakanna í Írak. Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi myndband af Hassan þar sem hún er með hendur bundnar aftur fyrir bak. 20.10.2004 00:01
10 milljarða hækkun lífeyris Lífeyrisskuldbindingar ríkisins hækka um 10 milljarða sé miðað við rúmlega 16 prósent hækkun dagvinnulauna kennara. Hækki laun kennara um 35 prósent á samningstímanum hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um allt að 20 milljarða. 20.10.2004 00:01
Bílbeltanotkun ábótavant Bílbeltanotkun í hópbifreiðum og bílaleigubílum er verulega ábótavant að mati framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar umferðarslysa. Hann segir nauðsynlegt að fara af stað með sérstaka herferð þar sem brýnt er fyrir fólki að nota bílbelti í hópbiffreiðum. Aðeins þrír þeirra 48 sem voru í rútunni sem valt nálægt Hvalfjarðargöngunum í gær notuðust við bílbelti. 20.10.2004 00:01
Lítil spilling á Íslandi Ísland lendir enn og aftur á lista með þeim löndum heims sem þykja til fyrirmyndar hvað varðar heiðarleika og gagnsæi í stjórnkerfinu. Ísland og Danmörk deila þriðja til fjórða sætinu sem minnst spilltu lönd heims. 20.10.2004 00:01
Allt að 92% kostnaðar í fræðslumál Dæmi eru um að 92% af heildartekjum aðalsjóðs sveitarfélaga renni til fræðslumála. Þetta kemur fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers, þingmanns Samfylkingarinnar. 20.10.2004 00:01
Kominn í skikkjuna Jón Steinar Gunnlaugsson hefur hafið störf við Hæstarétt. Hann hefur þegar hlýtt á munnlegan málflutning í þremur málum. 20.10.2004 00:01