Innlent

Mengun 15 sinnum yfir viðmið

Svifryk í andrúmslofti í Reykjavík fór fimmtán sinnum yfir viðmiðunarmörk á síðasta ári, oftar en nokkru sinni áður. Þetta kemur fram í skýrslu Umhverfisstofu Reykjavíkur. Talið er að aukin notkun bíla og breytt veðurfar í borginni hafi haft þessi áhrif. Svifryk mælist mest á þurrviðrisköflum að vetrarlagi þegar jörð er snjólaus. Í og í kringum Reykjavík myndast rykið vegna slits á malbiki undan nagladekkjum, dísilreyk, jarðvegsrofi á heiðum austan borgarinnar og salti sem berst frá sjónum. Svifryk getur haft skaðleg áhrif á heilsu manna, sér í lagi fólks með langvinna lungnasjúkdóma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×