Innlent

Þróunin góð segir Guðni

Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir ekkert að því að fjársterkir menn kaupi upp jarðir og framleiðslu og að tugir jarða séu í eigu sömu manna. Þetta sé framfaraþróun sem styrki búin og sveitina. Undanfarið hafa verið fluttar fréttir af því að fjársterkir menn hafi keypt upp jarðir og framleiðslu, og að tugir jarða séu nú í eigu sömu manna. Jón Bjarnason, Vinstri grænum, fór fram á utandagskrárumræðu um þetta, sagði að bændur væru nú að snúa aftur í átt að því að verða leiguliðar, og kenndi jarðalögum sem Alþingi samþykkti í vor um. Hann spurði því landbúnaðarráðherra hvort að ríkisstjórnin ætlaði að grípa til einhverra lagasetninga. Ráðherra sagði að áður hafi hann verið snupraður fyrir að vera rómantískur sveitakall, en nú sé sveitin komin í tísku. Hann sagði sjálfsagt að fara yfir spurningarnar, en ekkert mætti gera til þess að stöðva þróunina, sem hefði verið mjög gagnleg. Þessi svör þótti stjórnarandstöðunni rýr og lýsti þingmenn yfir áhyggjum sínum af stöðunni. Guðni sagðist ætla að skoða málið í ráðuneytinu. Hann sagði jarðirnar verðmætar í dag, ólíkt því sem þær hafi verið. Þingmennirnir hefðu skammað sig fyrir fimm árum og gerðu enn, enda væri gott að búa við nöldrið sitt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×