Aðför að stéttarfélögum sjómanna 21. september 2004 00:01
Nýtt útgerðarfélag utan um ísfiskstogarann Sólbak frá Akureyri er háalvarleg aðför að stéttarfélögum sjómanna, segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna og fiskimannasambands Íslands og formaður í félagi skipstjórnarmanna. "Þetta er það grófasta sem ég hef horfst í augu við í kjaramálum sjómanna," segir Árni.Hann segir málaferli koma til greina ef ekki gangi að sporna við breytingunni með öðrum hætti. "Ég bind mestar vonir við að Alþýðusambandið komi að málunum og félög innan þess neiti að afgreiða skipið. Það væri öflugustu viðbrögðin," segir Árni. Hann segir erfitt að sjá hvernig fyrirtækið ætli að vera með annan fótinn innan Landssambands íslenskra útvegsmanna en hinn úti. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfyrirtækisins Brims eiganda rekstrarfélags Sólbaks, segir möguleika á að allt fyrirtækið verði dregið út úr LÍÚ. "Ég hef þá trú að útgerðarmaðurinn og sjómaðurinn verði að geta talað saman og rætt framtíðina, sem er útgerðin. Hvort sem það er í gegn um heildarsamtök eða ekki verður að koma í ljós," segir Guðmundur. Árni segir eðlilegra ef Guðmundur hefði samið við samtök sjómanna um kjör. "Í staðinn stillir hann körlunum sínum upp með hótunum og notar verstu leið gagnvart þeim til að ná sínum markmiðum fram," segir Árni: "Áhöfnin á Rauðanúpi sem heitir nú Sólbakur var að flosna upp við rækjuveiðar því enginn grundvöllur er fyrir þeim lengur. Sjómennirnir sáu fram á atvinnuleysi. Þeir voru því kjörin fórnarlömb til að stilla upp við vegg og láta þá ganga að hugmyndum fyrirtækisins," segir Árni. Guðmundur segir útgerðina hafa beðið forystumenn sjómanna um nútímalegri kjarasamninga í byrjun júlí og aftur í september. Þeir hafi ekki tekið undir þær óskir. Samningarnir hafi því verið gerðir án þeirra aðkomu. "Ef heildarsamtök sjómanna ætla að standa á móti tækninýjungum þá verða menn ekkert inni í samtökunum. Forystumenn sjómanna átta sig ekki á að það er félagafrelsi á Íslandi, bæði fyrir sjómenn og útgerðir," segir Guðmundur. Sjómenn Sólbaks standi utan verkalýðsfélaga. >
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira