Hátt í þúsund manns létust 21. september 2004 00:01
Hátt í eitt þúsund manns týndu lífi í gríðarmiklum flóðum í kjölfar fellibylsins Jeanne á Haíti. Þetta mikla manntjón er rakið til gróðureyðingar landsins sem aftur er rakin til fátæktar og pólitískrar óstjórnar. Ríflega sex hundruð lík hafa þegar fundist og talið er að þau verði fleiri sem finnast þegar flóðin taka að sjatna. Bærinn Gonaives á norðurströnd Haítí marar að mestu í kafi og enn hefst fólk við uppi á húsþökum. Erfitt hefur verið að komast til þeirra staða sem verst urðu úti og björgunar- og hjálparstarf er því rétt að byrja. Flóð leika Haíti að öllu jöfnu mjög grimmt og jafnvel minnstu rigningar geta valdið manntjóni. Ástæðan er gríðarleg gróðureyðing. Yfir níutíu prósent af öllum trjágróðri í landinu hefur verið eytt og þar hafa aðallega sárafátækir íbúar verið að verki í leit að eldiviði. Þegar enginn er gróðurinn er ekkert sem heldur aftur af rigningarvatninu sem streymir niður fjöllin og færir allt á kaf. Um átta milljónir manna búa á Haíti sem er eitt af fátækari löndum heims og það allra fátækasta á vesturhveli jarðar. Rekja má ástæður þessarar miklu örbirgðar til þeirrar pólitísku óstjórnar sem ríkt hefur í landinu. Jean Bertrand Aristide, fyrrverandi forseti, var hrakinn frá völdum í febrúar vegna spillingar. Um þrjú þúsund friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á Haíti en landið er nánast stjórnlaust og glæpahópar virðast þar ráða öllu.
Erlent Fréttir Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Sjá meira