Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heiðin gröf við Kolkuás Gröf sem talin er heiðin fannst við Kolkuás, nálægt Hólum í Hjaltadal, í vikunni. Mannabein og svínakjálki voru í gröfinni. Fundurinn er afar óvæntur segja fræðimenn sem vinna að uppgreftri á svæðinu. 14.8.2004 00:01
Kraftmeiri með hverjum degi "Mér líður ágætlega, þetta er allt að koma," sagði Davíð Oddsson þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti síðan hann var lagður inn á sjúkrahús hinn 21. júlí. 14.8.2004 00:01
Davíð verður utanríkisráðherra Davíð Oddsson forsætisráðherra gerir ráð fyrir að taka við starfi utanríkisráðherra þegar Halldór Ásgrímsson tekur við sem forsætisráðherra hinn 15. september næstkomandi. Hann segir að herþoturnar á Keflavíkurflugvelli fari hvergi. 14.8.2004 00:01
Davíð verður utanríkisráðherra Davíð Oddsson forsætisráðherra ætlar að taka við utanríkisráðuneytinu 15. september þegar Halldór Ásgrímsson tekur við lyklavöldum í stjórnarráðinu. Hann segist vera að sækja í sig styrk og kraft eftir aðgerðirnar miklu sem hann fór í á dögunum. 14.8.2004 00:01
Mesur hiti á Hellu Veðurblíðan heldur áfram að leika við landsmenn og var gott veður um allt land í gær. Hæstur mældist hitinn á Hellu og var 25 stig þegar mest var. 14.8.2004 00:01
Vopnahlésviðræður út í sandinn Vopnahlésviðræður við múslimaklerkinn Muqtada al-Sadr eru runnar út í sandinn. Hann hvetur landa sína til harðari baráttu gegn hinu „ameríska nýlenduveldi“. 14.8.2004 00:01
Fjölmenni á dönskum dögum Talið er að 8.500 manns séu í Stykkishólmi um helgina þar sem danskir dagar eru haldnir hátíðlegir. Er það margföldun á íbúafjölda en um 1.200 manns eru búsettir í Hólminum. 14.8.2004 00:01
Hundrað milljónir á land Guðmundur Einarsson ÍS frá Bolungarvík skilaði mestum verðmætum að landi af smábátum á síðasta ári. Aflaverðmætið var rétt tæpar 100 milljónir króna en þetta er sjötta árið í röð sem Guðmundur trónir á toppnum. 14.8.2004 00:01
Stjórnaskipti í Heimdalli Bolli Thoroddsen, 23 ára verkfræðinemi, var kjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi þess í gær. Bolli hlaut 495 atkvæði en Helga Árnadóttir, sem einnig var í kjöri, 396. 14.8.2004 00:01
Starfsfólk undir miklu álagi Þingmenn eru á öndverðum meiði um ágæti sparnaðaraðgerða Landspítala. Pétur Blöndal telur enn hægt að hagræða í heilbrigðiskerfinu en Þuríður Backman hefur áhyggjur af afleiðingunum. </font /></b /> 14.8.2004 00:01
Páfi í pílagrímsför Jóhannes Páll páfi annar hélt í pílagrímsför til lindanna í Lourdes í Frakklandi sem margir telja að lækni ýmis mein þeirra sem halda þangað í pílagrímsför. 14.8.2004 00:01
Sjúkraflutningamenn hóta uppsögnum Sjúkraflutningamenn við Kárahnjúka hótuðu uppsögnum vegna kjaramála og vinnuaðstæðna. Stöðugt eftirlit þarf með Impregilo til að launagreiðslur séu í lagi, segir trúnaðarmaður starfsmanna. 14.8.2004 00:01
Gífurlegt eignatjón og mannfall Öflugasti hvirfilbylurinn til að ríða yfir Flórída kostaði fimmtán manns hið minnsta lífið og olli gífurlegu eignatjóni sem skildi mörg þúsund íbúa eftir heimilislausa. 14.8.2004 00:01
Viðræður út um þúfur Tilraunir til að semja um vopnahlé í Najaf eftir meira en vikulanga bardaga virtust í gærkvöld við það að renna út í sandinn. Þar með eykst ótti manna við að bardagar brjótist út af fullum krafti á nýjan leik. 14.8.2004 00:01
Húsbílaferð um landið Stærsti húsbílafloti sem farið hefur um Evrópu ferðast nú hringinn í kringum Ísland. Tveir Íslendingar standa að komu húsbílanna eitt hundrað og fjórtán hingað til lands en eigendur þeirra koma úr húsbílaklúbbum víðs vegar af Norðurlöndunum. 14.8.2004 00:01
Frestur landeigenda framlengdur Frestur landeigenda á Héraði til andmæla vegna fyrirhugaðs eignarnáms Landsvirkjunar á fimm jörðum hefur verið framlengdur um viku. Einn landeigendanna segir fullkomlega óeðlilegt að iðnaðarráðuneytið, sem sé beinn aðili að málinu, eigi að ákveða hvort Landsvirkjun fái leyfi til þess að leggja háspennulínu á Héraði. 14.8.2004 00:01
Samnorrænn svifflugdagur í dag Samnorrænn svifflugdagur var haldinn á Norðurlöndunum í dag. Hér á landi fór hann auðvitað fram á Sandskeiðinu. Kristján Sveinbjörnsson, formaður Svifflugfélags Íslands, segir þennan dag helgast af því að svifflugmennirnir bjóði þeim sem vilji að fljúga. 14.8.2004 00:01
Paradís á jörð Hornstrandir skarta sínu fegursta í veðurblíðunni um þessar mundir. Töluverður fjöldi fólks hefur lagt leið sína á Hornstrandirnar í sumar til þess að njóta hrikalegrar náttúru og einstaks landslags. 14.8.2004 00:01
Brot og brák á hestbaki Tvær konur slösuðust þegar þær féllu af baki í Eyjafjarðarsveit í gærkvöldi. Önnur rifbeinsbrotnaði og hin brákaðist á hrygg. Þrennt var á ferð þegar hestar kvennanna fældust skyndilega og þær féllu af þeim. 13.8.2004 00:01
Al-Sadr heill á húfi Leiðtogi uppreisnarmanna sjíta-múslima í Írak, Moqtada al-Sadr, er ekki særður eftir árásir Bandaríkjamanna á borgina Nafaj í gær eins og talsmenn hans héldu fram í morgun, segir innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks. 13.8.2004 00:01
Fjölskylda slapp úr eldi Fjölskylda slapp naumlega og ómeidd út úr brennandi húsi sínu við Brekkubæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun. Talsverður eldur logaði í húsinu, sem er tveggja hæða raðhús, þegar fjölmennt slökkvilið kom á vettvang. 13.8.2004 00:01
63 látnir í fellibyl í Kína Sextíu og þrír létust og átján hundruð eru slasaðir eftir að fellibylurinn Rananim gekk yfir Kína í gærkvöldi. Nærri tvö hundruð eru alvarlega slasaðir og yfir átján þúsund byggingar hrundu til grunna. 13.8.2004 00:01
Hvalaskoðunarbátur strandar Hvalaskoðunarbáturinn Náttfari frá Húsavík virðist vera óskemmdur eftir að hann strandaði með ferðamannahóp við Lundey, skammt frá Húsavík, í gærkvöldi. Sjötíu og sjö farþegar og fjórir skipverjar voru um borð og voru björgunarsveitir kallaðar út. 13.8.2004 00:01
Fellibylurinn Charley á Kúbu Meira en hálfri milljón íbúa á strönd Flórída í Bandaríkjunum var fyrirskipað að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Charley sem gekk á land á Kúbu í gær. Þúsundir íbúar Kúbu yfirgáfu heimili sín einnig en vindhraði stormsins fer yfir fjörutíu metra á sekúndu. 13.8.2004 00:01
Flóðið náði ekki upp í brúargólf Flóðið í Jöklu í gærkvöldi var mun minna en í fyrrakvöld og náði ekki upp í brúargólfið sem fór á kaf kvöldið áður. Flóðahættan virðist liðin hjá og er það í samræmi við reiknilíkan verkfræðistofunnar Vatnaskila um framvindu mála. 13.8.2004 00:01
Bíllinn vóg salt Ung kona upplifði skelfileg augnablik í bíl sínum vestur á Snæfellsnesi í gærkvöldi, sem líklega má líkja við hæga endursýningu í bíó, þegar bíll hennar vóg salt á vegkantinum um stund uns hann valt á hvolf ofan í læk. 13.8.2004 00:01
Borgarísjakar við Húnaflóa Stór borgarísjaki er á reki skammt frá landi undan Hornströndum út af Húnaflóa og einnig sást til borgarísjaka austar í gærkvöldi eða út af Skagatá, austan við Húnaflóa. Jakarnir eru á siglingaleiðum en þeir eiga að sjást í radar. 13.8.2004 00:01
Sjálfstjórn fiskimiða nauðsyn "Það er algjört grundvallaratriði að Íslendingar hafi sjálfsforræði yfir fiskimiðunum ef við göngum í Evrópusambandið," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ. 13.8.2004 00:01
Hannes er umdeildur "Hannes er umdeildur maður í þjóðfélaginu og innan Háskólans og telur sjálfur að krossferð hafi verið í gangi gegn honum," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, í dómsal í gær er málflutningur fór fram í lögbannsmáli Hannesar gegn Siðanefnd Háskóla Íslands. 13.8.2004 00:01
Þjófur gómaður í nótt Lögreglumenn náðu að góma þjóf eftir innbrot í söluturn í austurborginni í nótt. Hann braut rúðu til að komast inn og tilkynntu nágrannnar um brothljóðin. Þegar lögregla kom á vettvang var þjófurinn á bak og burt en náðist á bíl skömmu síðar með þýfið um borð og hefur hann játað á sig verknaðinn. 13.8.2004 00:01
17 ára á 111 innanbæjar Um miðnætti í gær voru tveir ungir ökumenn teknir fyrir ofsaakstur á Njarðarbraut í Reykjanesbæ að því er vefur Víkurfrétta greinir frá. Drengirnir, sem eru 17 og 18 ára, mældust á 111 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km. 13.8.2004 00:01
Bandaríkin betur stödd George Bush Bandaríkjaforseti segist þess fullviss að Bandaríkin séu betur stödd nú en fyrir fjórum árum, bæði í innanríkismálum og utanríkismálum. Þessu lýsti forsetinn yfir í spjallþætti Larry King í gær þar sem hann sagði einnig að heimurinn væri öruggari staður eftir fjögurra ára setu sína á forsetastóli. 13.8.2004 00:01
Fannst látin við Hvítá Ólöf A. Breiðfjörð Guðjónsdóttir, sem saknað hefur verið síðan á föstudag, fannst látin á bökkum Hvítár í gærkvöldi. Síðast sást til hennar við Gullfoss á föstudagskvöldið. Það var bóndinn á Kópsvatni í Hrunamannahreppi sem fann líkið fyrir tilviljun en í undirbúningi var að hefja skipulega leit. Ólöf lætur eftir sig tveggja ára son. 13.8.2004 00:01
Eldurinn kviknaði út frá grilli Karl og kona sluppu naumlega og ómeidd út úr brennandi húsi sínu við Brekkubæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun. Eldurinn mun hafa kviknað út frá gasgrilli sem stóð úti við og náði eldurinn að teygja sig upp eftir húsveggnum, alveg upp í þakskeggið, svo eldurinn komst í þakklæðningu. 13.8.2004 00:01
Olíuverð ekki hærra í 20 ár Olíu- og bensínverð er nú í tuttugu ára hámarki. Íslensku olíufélögin segja engar forsendur fyrir þessu verði og vonast til að verð hér á landi þurfi ekki að hækka frekar. Olíumálaráðherra Sádi-Arabíu segir að spákaupmenn séu orðnir ótrúlega ósvífnir. 13.8.2004 00:01
Langhæsta stífla landsins Bráðabirgðavarnarstíflan við Kárahnjúka, sem nú hefur væntanlega lokið hlutverki sínu að mestu, er langhæsta stífla á landinu. Um þrjú þúsund malarhlöss af venjulegum vörubílum þurfti í hækkunina eftir að flóðin byrjuðu. 13.8.2004 00:01
Ástand al-Sadrs óvíst Sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr, foringi uppreisnarmanna sjíta í Írak, særðist í bardögum í Najaf í nótt að sögn talsmanna hans. Innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks segir þessar upplýsingar hins vegar rangar. 13.8.2004 00:01
Kópavogsbæ að kenna Aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir að það sé stjórnendum Kópavogsbæjar sjálfum að kenna að bærinn skuli borga hærra verð fyrir vatn frá Orkuveitunni en önnur bæjarfélög. Það hefur kostað bæinn yfir sjötíu milljónir króna. 13.8.2004 00:01
Ólympíuleikarnir settir í kvöld Ólympíuleikarnir í Aþenu verða settir með formlegum hætti í kvöld. Björk Guðmundsdóttir syngur lag á opnunarathöfn Ólympíuleikanna þar sem saman verða komnir 75.000 áhorfendur úr öllum heimshornum. 13.8.2004 00:01
Tryggingastríð hafið Tryggingastríð er hafið milli banka og tryggingafélaga. Hvor aðilinn um sig lofar viðskiptavinum bestu kjörum, öryggi og umhyggju. Það eru aðeins Landsbankinn og tryggingafélagið Alliance sem eru komin fram á vígvöllinn, eins og málið stendur nú, en búast má við að fleiri aðilar séu að vígbúast. 13.8.2004 00:01
Al-Sadr reynir að semja Bráðabirgðastjórnin í Írak segir að sjíta klerkurinn Moqtada al-Sadr sé að semja um að fá að yfirgefa bænahús í borginni Najaf, óáreittur. Klerkurinn hefur haldið sig þar síðan Bandaríkjamenn hófu stórsókn inn í borgina í gær. 13.8.2004 00:01
Skerðing upp á 11 þúsund tonn Skerðing aflamarksskipanna í þorski á komandi fiskveiðiári nemur um 11.000 tonnum, miðað við slægðan fisk, samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur gefið út. Þetta er vegna línuívilnunar og veiðiheimilda sem færðar verða dagabátum samkvæmt lögum frá síðastliðnu vori. Fréttavefur LÍÚ greinir frá þessu. 13.8.2004 00:01
Karl Gústaf skrópar í brúðkaup Sylvía, drottning Svíþjóðar, er sögð hafa talið Karl Gústaf konung ofan af því að vera viðstaddur brúðkaup besta vinar síns, greifans Noppe Lewenhaupts. Ástæðan mun vera sú að brúðurin er þrettán árum yngri en brúðguminn sem er 57 ára gamall. 13.8.2004 00:01
Öryggir strandflutningar tryggðir Stjórn Hafnasambands sveitarfélaga skorar á yfirvöld að sjá til þess að í samgönguáætlun, sem nú sé verið að endurskoða, verði gerð tillaga um leiðir til þess að tryggja örugga strandflutninga á Íslandi. 13.8.2004 00:01
Malaría í Darfúr Malaría hefur brotist út í flóttamannabúðunum í Darfúr-héraði í Súdan. Margar flóttamannabúðir þar skortir bæði hreint vatn og hreinlætisaðstöðu. Lifrarbólgufaraldur hefur einnig gengið yfir búðirnar. 13.8.2004 00:01