Kraftmeiri með hverjum degi 14. ágúst 2004 00:01 "
Mér líður ágætlega, þetta er allt að koma," sagði Davíð Oddsson þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti síðan hann var lagður inn á sjúkrahús hinn 21. júlí. Davíð segir að læknar telji batahorfur góðar. "Þetta er allt mælt í prósentum og sem betur fer er ég réttu megin í þeim efnum." Hann segir það hafa verið skrýtna breytingu og mikla lífsreynslu að vera fluttur skyndilega á sjúkrahús. "Tveimur dögum eftir að hafa verið störfum hlaðinn komst ég ekki framúr rúminu nema með hjálp tveggja hjúkrunarkvenna. Því gleymi ég ekki að það er hægt að verða öðrum háður um einföldustu hluti." Davíð segir gott að hafa kynnst heilbrigðiskerfinu innan frá. "Starfsemi sjúkrahússins gengur markvisst fyrir sig og fólk í heilbrigðisstétt vinnur erfitt og flókið starf af mikilli samviskusemi og elju." Hann segir ekki víst hvenær hann snúi aftur til starfa, hann þurfi að virða sjúkdóminn og fara eftir því sem læknarnir segi sér. "Ég er kraftlaus en finn máttinn vaxa dag frá degi. Ég hef lesið mikið eftir að ég kom heim, gengið um gólf og gert léttar leikfimiæfingar og þess á milli farið upp í rúm eins og mér er sagt að gera." Davíð tók á móti Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og eiginkonu hans að heimili sínu. Hann sagði þetta hafa verið ánægjulegan vinafund. "Göran var ánægður með ferðina hingað og fundinn sem hann átti með Halldóri Ásgrímssyni um síðustu helgi. Hann var líka afskaplega heppinn með veður." Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna um síðustu helgi sagði Persson það nauðsynlegt fyrir Norðurlöndin að Ísland og Noregur gangi í Evrópusambandið og að Svíar myndu styðja aðildarumsókn þeirra. "Göran hefur aldrei sagt Íslendingum fyrir verkum í samtölum við mig, enda veit hann að ég myndi henda honum út," segir Davíð. "Þetta er málum blandið því við höfum þekkst lengi og hann þekkir afstöðu okkar til Evrópusambandsins."
Fréttir Innlent Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira