Fleiri fréttir

Námuslys í Rússlandi

Þremur námuverkamönnum var bjargað úr kolanámu í borginni Vorkuta í Norður-Rússlandi eftir sólarhringsveru í námunni. Náman féll skyndilega saman í gær og var lengi vel talið að allir mennirnir hefðu farist. Einn maður lést og þriggja er enn saknað.

Síamstvíburar aðskildir

Tveggja ára gamlir síamstvíburar frá Indónesíu voru aðskildir á sjúkrahúsi á Filippseyjum í dag. Að sögn lækna heilsast tvíburunum vel en þeir voru undir skurðarhnífnum í ríflega sautján klukkustundir.

Vandi færður milli borgarhluta

Ákvörðun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um að fjarlægja aðra færanlega kennslustofu af tveimur sem Brosbær, frístundaheimili Engjaskóla, hefur til umráða, raskar starfsemi leikjanámskeiða sem nú fara fram á staðnum.

Hverfandi áhrif vegna háspennulína

Umhverfisnefnd Austur-Héraðs berst á næstunni svar frá Landsvirkjun varðandi athugasemdir Sigurðar Arnarsonar, bónda á Eyrarteigi í Skriðdal, vegna deiliskipulags við bæinn þar sem Fljótsdalslínur 3 og 4 liggja. Sigurður segir nálægð við línustæðið gera hús hans óíbúðarhæft og verðlaust.

Unnið í kapp við tímann

Miklir vatnavextir eru í Jökulsá á Dal, þriðja daginn í röð, og þeir mestu hingað til. Flæðir nú vel yfir brúna. Unnið er í kapp við tímann að hækka varnarstíflu við vinnusvæðið en vinna lagðist niður eftir að vatn lak í gegnum stífluna. Nokkrar skemmdir urðu í gærkvöldi á brúnni. Búast má við flóðum næstu daga.

Cartier-Bresson látinn

Franski ljósmyndarinn Henri Cartier-Bresson er látinn, 95 ára að aldri. Bresson er þekktur fyrir götuljósmyndir sínar en hann var einn af fyrstu ljósmyndurum í heiminum sem gerðu daglegt líf að viðfangsefni sínu og var frumkvöðull á sviði fréttaljósmynda.

Afskipti stjórnvalda auka vandann

Kjarasamningar milli útvegsmanna og sjómanna taka ekki mið af aukinni afkastagetu og tækninýjungum nýrra fiskiskipa, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Athugasemdir gerðar við hemlabúnað

Flutningabíllinn, sem ekið var út af brúnni í Laxá í Laxárdal á þriðjudaginn, stóðst ekki skoðun í apríl vegna athugasemda sem meðal annars voru gerðar við aksturshemla og stýrisbúnað, að sögn Jóns Hjalta Ásmundssonar, tæknistjóra ökutækjasviðs Frumherja.

Afstýri deilum við stjórnarkjör

Nýjar reglur hafa verið settar um inntöku nýrra félaga í Sjálfstæðisflokkinn eftir að hluti Heimdellinga kærði meðferð stjórnar á inntökubeiðnum nýrra félaga í aðdraganda aðalfundar og kosninga í stjórn félagsins í fyrra. </font />

Árás á Heathrow undirbúin

Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída hafi uppi áform um að gera árásir á flutningaskip.

Haglél seinkar Sumarferðum

Seinkun varð á flugi ferðaskrifstofunnar Sumarferða til og frá Alicante á Spáni vegna hagléls á Spáni. Flugvélin sem átti að flytja farþega á milli Spánar og Íslands fékk á sig haglél í fyrradag þannig að lakk á nefi flugvélarinnar flagnaði af. 212 farþegar áttu að fara með sömu vél til Spánar í hádeginu í gær.

Vörubíll varð alelda

Vörubíll varð alelda á Snæfellsnesvegi vestan við Stykkishólm um miðjan dag í gær. Tveir menn voru í bílnum. Þeir drápu á vél bílsins og forðuðu sér út þegar þeir urðu varir við reyk í húsi bílsins. Þar biðu þeir eftir hjálp.

Kveikti í tveimur húsum

Húsráðendur á Vopnafirði sáu að kveikt hafði verið í gardínum í svefnherberginu þegar þeir komu heim úr ferðalagi í fyrrakvöld.

Stefnir í stórslys við Geysi

"Það stefnir í stórslys við Geysi ef ekki verða settar upp nákvæmar merkingar á svæðinu," sagði Harpa Harðar leiðsögumaður og starfsmaður í Goethestofnuninni í Reykjavík. Hún kveðst hafa orðið vitni að því að fólk hafi beinlínis sett sig í lífshættu við að standa of nærri Geysi í Haukadal, sem hafi þá gosið, öllum að óvörum.

Óttaðist um líf sonar síns daglega

Sólbjörg Linda Reynisdóttir, móðir fjögurra ára drengs með bráðaofnæmi fyrir jarðhnetum, óttaðist á hverjum degi í tvö ár um líf sonar síns, Arnþórs Birkis Sigurðssonar. Hún telur vítamíndropa hafa vakið ofnæmið en segist heldur vera farin að slaka á núna.

Tekið fastar á aukaefnunum

Í endurskoðaðri reglugerð um merkingar á matvælum með tilliti til hugsanlegra ofnæmisvalda verður tekið fastar á merkingu aukaefna heldur en í gildandi reglugerð, að sögn Helgu Bjarnadóttur, staðgengils forstöðumanns matvælasviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Endurskoðun reglugerðarinnar er þegar hafin.

Arafat hylltur í Ramallah

Hundruð stuðningsmanna Yassers Arafats, forseta Palestínu, voru samankomin á götum Ramallah borgar á Vesturbakkanum í dag til að hylla forsetann. Stuðningur við Arafat hefur minnkað síðustu misseri en samkoman í dag sýnir að hann nýtur enn mikils stuðnings meðal þegna sinna.

Tvöfalt launakerfi nefndakónga

Tveir alþingismenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar telja það vera almannahagsmuni að birta laun sem ríkið greiðir einstaklingum fyrir setu í nefndum og ráðum. Sérfræðingar úr einkageiranum, sem fegnir séu til að gefa nefndum aukna vigt, fá greidda útselda vinnu ofan á venjuleg nefndarlaun.

Kaupa í Tékklandi

Fjárfestahópur sem í eru meðal annars Íslenskir fjárfestar hefur keypt yfir 70 prósenta hlut í tékknesku fjarskiptafyrirtæki.

Þjóðminjasafnið á áætlun

Þjóðminjasafnið verður opnað 1. september næstkomandi og ekki deginum seinna. Framkvæmdir eru á lokastigi, segir þjóðminjavörður, og starfsmenn vinna nótt sem nýtan dag jafnt innan húss sem utan, til þess að ekki verði frekari tafir á opnun safnins.

Vatn rauf skarð í varnargarð

Hættuástand skapaðist við virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka í gærkvöldi þegar vatnsflaumur Jökulsár á Dal rauf skarð í varnargarðinn sem verndar vinnusvæði þeirra er starfa við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Vatn hefur runnið undir garðinn og þurfti í gær að rýma vinnusvæðið.

Dýrkeypt fyrir þjóðina

Fjöldatakmarkanir í Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri munu reynast íslensku þjóðinni dýrkeyptar þar sem hundruð einstaklinga er gert ókleift að stunda æðri menntun, að því er þingflokkur Samfylkingarinnar heldur fram.

Málið ekki í höfn

"Þarna er um að ræða lítið skref í rétta átt en engu að síður er langt í land ennþá," segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.

Ístak með lægsta tilboðið

Ístak átti lægsta tilboð í nýjan kerskála og aðrar byggingar vegna þriðja áfanga Norðuráls á Grundartanga, þ.e. stækkunar álversins úr 90 þúsund tonnum í 180 þúsund tonn. Tilboðin voru opnuð 29. júlí sl. Tilboð Ístaks var upp á röska 3,2 milljarða króna en hæsta tilboðið, frá Íslenskum aðalverktökum, var rúmlega 3,6 milljarðar.

Búið að leita þar sem líkið fannst

Lík Sri Rahmawati fannst í hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í gær. Líkið var vandlega hulið með grjóti og erfitt að sjá að nokkuð hefði verið sett í sprunguna sem er um þriggja metra djúp. Felustaðurinn er innan þess svæðis sem lögregla og björgunarsveitarmenn höfðu leitað á síðustu daga.

Burðarás á bankaveiðum

Fjárfestingarfélagið Burðarás keypti í gær 3,38 prósenta hlut í breska bankanum Singer and Friedlander sem KB banki á fimmtung í.

Ógnarstjórn flæmir burt starfsmenn

Á annan tug íslenskra starfsmanna hefur flæmst úr starfi að Kárahnjúkum vegna hrokafullrar framkomu yfirmanna undirverktakafyrirtækisins Sodexho. Kvartanir hafa streymt frá starfsfólkinu, en yfirmennirnir láta ekki segjast. Trúnaðarmaður á svæðinu staðfestir þetta.

Stöðugleiki forsenda alls

Halldór Ásgrímsson tekur við embætti forsætisráðherra 15. september. Hann boðar ekki miklar breytingar heldur segist ætla að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið á undanförnum árum. Mikilvægt að endurskoðun stjórnarskrár fari ekki fram í ljósi ákveðins máls. </font /></b />

Hlaup í Jökulsá á Dal

Hlaup kom í Jökulsá á Dal síðdegis í gær og um klukkan hálf sjö var brúnni við Fremri- Kárahnjúk lokað, enda var vatnsyfirborðið þá alveg að ná upp í brúargólfið og farið var að skola úr fyllingum við brúarendana.

Drap einn og særði 5 í Noregi

Víðtæk leit stendur enn yfir að manni sem stakk einn mann til bana og særði fimm í sporvagni í Osló í Noregi síðdegis í gær. Maðurinn sem lést var tuttugu og þriggja ára en meðal hinna særðu er tveir lífshættulega slasaðir, kona á fertugsaldri og rúmlega fimmtugur karlmaður.

Banaslys við Krossanesbraut

Karlmaður á fertugsaldri beið bana þegar stór grjótflutningabíll sem hann ók fór fram af háum vegkanti við Krossanesbraut og valt þegar hann hafnaði ofan í fjöru. Þetta var svonefnd búkolla og vann ökumaðurinn að því að breikka veginn.

Bjargað úr brennandi tjaldi

Vörður á tjaldstæðinu í Laugardal í Reykjavík bjargaði í nótt tveimur mönnum út úr brennandi tjaldi og sakaði þá ekki. Þeir höfðu sofnað út frá logandi kerti sem líklega hefur oltið um.

Öryggisviðbúnaður aukinn

Öryggisviðbúnaður hefur verið aukinn á ellefu flugvöllum og í tveimur höfnum til viðbótar í Bandaríkjunum. Tom Ridge, yfirmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, segir þetta gert í kjölfar rannsóknar á gögnum Al-Kaída.

Slapp ótrúlega lítið meiddur

Ökumaður á stórum malarflutningabíl slapp ótrúlega lítið meiddur eftir að hann ók út af brúnni yfir Laxá í Laxárdal í gær og bíllinn hafnaði á hvolfi í grýttum árfarveginum, meira en tíu metrum neðar. Ökumaðurinn var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík.

Fellibylur í Norður-Karólínu

Fellibylurinn Alex olli flóði í Norður-Karólínu ríki Bandaríkjanna í gær. Hundruð heimila og bíla urðu vatninu að bráð og rafmagn fór af hjá þúsundum íbúa. Íbúar á svæðinu segja þetta versta veður sem hafi gengið yfir svæðið í þrjátíu ár. Vindhraði náði 160 kílómetra hraða á klukkustund.

3 kíló af amfetamíni haldlögð

Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík og Tollgæslan í Reykjavík hafa lagt hald á þrjú kíló af amfetamíni sem smyglað var til landsins með Dettifosi en andvirði þess gæti numið yfir 30 milljónum króna.

Brennuvargur kveikti í bílum

Kveikt var í þremur bílum vestur á Melum í Reykjavík í nótt og tilraun gerð til að kveikja í þeim fjórða. Kveikt var í fyrsta bílnum um klukkan tvö og hinum tveimur með klukkustundar millibili. Slökkviliðið var kallað á vettvang í öllum tilvikum og skemmdust bílarnir mikið. 

Fólkið enn þungt haldið

Maður og kona liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir harðan árekstur jeppa og fólksbíls við Kotströnd á Suðurlandsvegi á mánudaginn. Þau eru ekki úr lífshættu og er báðum haldið sofandi og í öndunarvél.

Ný stjórn í Tékklandi

Forseti Tékklands, Vaclav Klaus, skipaði í morgun hina nýju ríkisstjórn landsins formlega í embætti undir forystu forsætisráðherrans, Stanislavs Gross, sem er aðeins 34 ára gamall og yngsti forsætisráðherra í Evrópu. Þrjátíu og níu dagar eru liðnir síðan fráfarandi forsætisráðherra Tékklands, Vladimir Spidla, sagði af sér.

Átök í Mósúl í morgun

Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar.

Útskrifaður eftir rannsókn

Ökumaður malarflutningabílsins sem ók út af brúnni yfir Laxá í Laxárdal í gær var útskrifaður af slysadeild eftir rannsókn. Bíllinn hafnaði á hvolfi í grýttum árfarveginum, meira en tíu metrum neðar, en áður hafði bíllinn sópað sterku vegriði á brúnni niður á löngum kafla.

Milljarða framkvæmdir í hættu?

Óttast er að grjóthrun hafi stíflað hjárennslisgöng fram hjá virkjanaframkvæmdunum við Kárahnjúka þannig að milljarða framkvæmdir gætu verið í hættu. Göngin voru grafin inn í gljúfurvegginn ofan við vinnusvæðið við aðalstífluna og opnast svo neðan við vinnusvæðið.

Gíslar látnir lausir

Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir.

Aldrei meiri verðmunur

Meðaltalsverðmunur á bensínlítranum í Reykjavík og Hafnarfirði er nú kominn upp í sjö krónur eftir að Orkan í Reykjavík hækkaði lítrann í 107,30 krónur í morgun. Munurinn hefur aldrei verið svona mikill á sjálfsafgreiðslustöðvunum, Hafnfirðingum í vil, en þar í bæ má enn fá bensínlítrann á u.þ.b. hundrað krónur.

Sjá næstu 50 fréttir