Búið að leita þar sem líkið fannst 4. ágúst 2004 00:01
Lík Sri Rahmawati fannst í hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í gær. Líkið var vandlega hulið með grjóti og erfitt að sjá að nokkuð hefði verið sett í sprunguna sem er um þriggja metra djúp. Felustaðurinn er innan þess svæðis sem lögregla og björgunarsveitarmenn höfðu leitað á síðustu daga. Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati, vísaði lögreglu á réttan stað eftir að honum var sagt að rannsókn lögreglu sýndi að fyrri staðsetning sem hann gaf upp stæðist ekki. Ljóst er að Hákon Eydal benti vísvitandi á rangan stað til að villa um fyrir lögreglu. Á þriðjudaginn í síðustu viku sagði Hákon lögreglu að hann hefði varpað líki Sri í sjóinn fram af klettum á Presthúsatanga í Hofsvík á Kjalarnesi. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni í Reykjavík var lögreglan ekki sátt við tilvísun Hákonar eftir athugun og rannsókn á Kjalarnesinu. Í framhaldinu var Hákoni sagt að frásögn hans gæti ekki gengið upp eftir vettvangsrannsókn á Presthúsatanga og nágrenni. "Þá féllst hann á að vísa okkur á líkið, sem var í hraunsprungu í Almenningi sem er innan þess svæðis sem við höfðum leitað á. Búið var að ganga svæðið," segir Ómar Smári. Líkið var vandlega hulið með grjóti og var erfitt að sjá að nokkuð hefði verið sett í sprunguna, sem er um þriggja metra djúp. Líkið var í drapplituðum poka eins og Hákon hafði lýst. Lögreglan vildi ekki segja frekar til um hvort einhverjir hlutir hefðu fundist í sprungunni. Ómar Smári segir að þó að sakborningur gefi lögreglu upplýsingar varðandi rannsókn mála megi ekki miða rannsókn út frá því að frásögnin sé sönn. Vissulega verði að athuga ábendinguna vel og þá kanna hvort hún geti staðist.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira