Unnið í kapp við tímann 5. ágúst 2004 00:01
Miklir vatnavextir eru í Jökulsá á Dal, þriðja daginn í röð, og þeir mestu hingað til. Flæðir nú vel yfir brúna. Unnið er í kapp við tímann að hækka varnarstíflu við vinnusvæðið en vinna lagðist niður eftir að vatn lak í gegnum stífluna. Nokkrar skemmdir urðu í gærkvöldi á brúnni. Búast má við flóðum næstu daga. Úrkoma og hlýindi með tilheyrandi jökulbráðnun veldur því að vatn hækkar verulega í ánni á þessum tíma og hefur vatnsflaumurinn aukist dag frá degi. Jökulsá náði upp á brúna í gærkvöldi en um daginn náði vatnsyfirborðið upp undir hana. Brúin hefur verið lokuð og hefur klakaruðningur borist úr Brúarjökli og niður með ánni. Guðmundur Pétursson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun, segir að nú undir kvöld hafi áin enn verið að vaxa og vatnið virtist meira en í gær. Brúin skemmdist nokkuð eftir flóðið í gær, það er að segja brúargólfið og handriðið, en burðarvirki brúarinnar er óskemmt. Guðmundur telur að hún eigi að þola meira flóð en í gær, til dæmis eins og það sem nú stendur yfir. Hann segir að gólfið og handriðið hafi verið styrkt og vonast er eftir að brúin standi þetta af sér, jafnvel þótt hún fari á kaf. Umferð yfir brúna hefur verið stöðvuð en það hefur ekki áhrif á starfsemina því allir flutningar fara yfir varnarstífluna, fyrir utan umferð ferðamanna sem ekki komast á staðinn á meðan þetta ástand varir. Eins og fram hefur komið var ákveðið að hækka stífluna um fimm metra og búið er að hækka hana nú þegar um fjóra. Hún verður jafnvel hækkuð um tvo metra til viðbótar. Vatn lak í gegnum hana í gær og var um þriggja metra djúpt vatn á vinnusvæðinu innan við hana. Það þýddi að vinna lagðist niður um tíma, sem og í dag. Stíflan er nú þegar orðin 490 metra há. Háspennukapall liggur meðfram brúnni yfir Jökulsá en að sögn Guðmundar hefur tekist að verja hann. Öðrum kapli verður jafnvel bætt við. Nú síðdegis var flogið yfir Brúarjökul til að kanna jökulröndina. Miðað við veðurspá má búast við áframhaldandi flóðum á næstu dögum samkvæmt Guðmundi. Eins og fram hefur komið hafa önnur af tveimur hjáveitugöngum ekki undan en svo virðist sem stífla sé í þeim. Ekki verður hægt að kanna það fyrr en vatnsmagnið fer niður fyrir 500 rúmmetra á sekúndu, en til viðmiðunar má geta þess að í gær var rennslið, þegar mest var, um 870 sekúndurúmmetrar.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira