Innlent

Fólkið enn þungt haldið

Maður og kona liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir harðan árekstur jeppa og fólksbíls við Kotströnd á Suðurlandsvegi á mánudaginn. Þau eru ekki úr lífshættu og er báðum haldið sofandi og í öndunarvél. Maðurinn, sem ók jeppanum, fór í aðgerð í gær og gekk hún vel að sögn lækna. Þeir þrír sem voru í hinum bílnum slösuðust ekki verulega í árekstrinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×