Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrir ofan meðalhita í 28 mánuði Meðalhitinn í Reykjavík hefur nú mælst fyrir ofan meðallag í 28 mánuði í röð samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni. Meðalhitinn í höfuðborginni í júlímánuði mældist 11,5 stig, sem er 0,9 stigum hærri en í meðalári. 4.8.2004 00:01
Réðst á leikskólabörn með hnífi Starfsmaður í leikskóla í Pekíng í Kína gekk af göflunum í vinnunni og réðst á fimmtán nemendur og þrjá kennara með eldhúshnífi í morgun. Eitt barn lést og tvö særðust illa. Starfsmaðurinn er í haldi lögreglu en hann er fimmtíu og eins árs gamall og var vörður við skólann. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn framdi verknaðinn. 4.8.2004 00:01
Fleiri hækka afurðaverð nautakjöts Norðlenska og Borgarnes kjötvörur hafa nú bæst í hóp þeirra sláturleyfishafa sem hækkað hafa afurðaverð á nautgripakjöti til bænda að undanförnu að því er fram kemur á vefsíðu Landssambands kúabænda. Báðir sláturleyfishafarnir hafa jafnframt lækkað þyngdarmörk innan hins svokallaða UN 1 flokks. 4.8.2004 00:01
Bráðabirgðastífla hækkuð um 5 m Ákveðið hefur verið að hækka bráðabirgðastíflu við Kárahnjúka um fimm metra vegna stíflunar í hjárennslisgöngum fram hjá virkjanaframkvæmdunum á svæðinu. Göngin eiga að veita vatni fram hjá endanlegu stíflumannvirki á meðan það er í byggingu. 4.8.2004 00:01
Fuglaflensa í Suður-Afríku Landbúnaðaryfirvöld í Suður-Afríku gruna að fuglaflensufaraldur eigi sér nú stað í þremur fuglabúum þar sem strútar eru aldir í austurhluta landsins. Landbúnaðarráðherra héraðsins segir að sýni úr fuglabúunum þremur hafi a.m.k. til bráðabirgða verið greind sem afbrigði fuglaflensunnar sem herjað hefur í Asíu undanfarin misseri. 4.8.2004 00:01
Ráðherrar Norðurlandanna funda Forsætisráðherrar Norðurlandanna munu hittast á fundi í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð næstkomandi sunnudag, 8. ágúst, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Á fundinum verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál. 4.8.2004 00:01
Skuldsetja sig út áratuginn Útlit er fyrir að ólympíuleikarnir verði mun dýrari en grísk stjórnvöld stefndu að. Nú er svo komið að sérfræðingar eru farnir að lýsa áhyggjum af því að leikarnir íþyngi gríska ríkinu svo mjög að það kunni að taka gríska skattborgara tíu ár, hið minnsta, að borga reikninginn. 4.8.2004 00:01
Réðist á börn vopnaður hnífi Eitt barn lést og fimmtán slösuðust, þar af tvö alvarlega, þegar starfsmaður leikskóla réðst með hnífi að leikskólabörnum og kennurum þeirra. Þrír kennarar særðust í árásinni. 4.8.2004 00:01
Flugvél flaug á hús Sex létu lífið, þeirra á meðal tvö börn, þegar lítil flugvél flaug á hús við golfvöll í Austin í Texas. Vélin breyttist í eldhnött þegar hún lenti á húsinu og fórust allir sem voru um borð í henni. Þrennt var í húsinu þegar atvikið átti sér stað en þau sluppu öll við meiðsl. 4.8.2004 00:01
Grunaðir um aðild að Al-Kaída Þrettán menn sem grunaðir eru um að eiga aðild að Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum eru nú í haldi lögreglu í Bretlandi. Mennirnir, sem eru á aldrinum nítján til þrjátíu og tveggja ára, voru handteknir í borgunum Luton, Blackburn og Bushey, skammt norður af London. 4.8.2004 00:01
Óbreytt vísitala neysluverðs Landsbankinn spáir óbreyttri vísitölu neysluverðs í ágúst sem myndi þýða að 12 mánaða verðbólga yrði áfram 3,6%. Gera má ráð fyrir að útsöluáhrif vegi töluvert þungt til lækkunar en hækkun bensínverðs að undanförnu mun vega á móti að stórum hluta segir í tilkynningu frá bankanum. 4.8.2004 00:01
Bandaríska sendiráðinu lokað Nokkrum deildum bandaríska sendiráðsins í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, verður lokað á morgun, fimmtudag, vegna öryggisráðstafana að því er segir í tilkynningu frá sendiráðinu í dag. 4.8.2004 00:01
Aukið álag á vegina Aukin umferð vöruflutningabifreiða um þjóðvegi hefur í för með sér aukið slit á vegum og sumstaðar aukna slysahættu. Auknar líkur á banaslysi þegar þyngdarmunur bifreiða í árekstri er mjög mikill, segir formaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa. 4.8.2004 00:01
Uppsetning vinnubúða hafin <span class="frettatexti">Akrafell, skip Samskipa, kom til Reyðarfjarðar á mánudag með fyrsta hluta vöruflutninga sem félagið annast fyrir Fjarðaál vegna uppsetningar vinnubúða fyrir álversuppbygginguna eystra. </span> 4.8.2004 00:01
Harðir bardagar í Mósúl Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum. 4.8.2004 00:01
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést þegar vörubifreið valt við Krossanes í gær hét Þorgeir Ingi Ingason, til heimilis að Mánahlíð 9 á Akureyri. Þorgeir Ingi var þrjátíu og sex ára, ókvæntur og barnlaus og bjó í foreldrahúsum. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir. 4.8.2004 00:01
Væntir samkomulags við tollinn Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, telur ekki að vandkvæði ættu að vera fyrir sægarpinn Hafstein Jóhannsson, kafara frá Akranesi, að afhenda Byggðasafni Akraness seglskútuna Eldingu að gjöf. "Hafsteinn er mikill sægarpur sem gert hefur garðinn frægan," segir Gísli.og vísar meðal annars til siglingarafreka Hafsteins. 4.8.2004 00:01
3 kíló af amfetamíni í Dettifossi Þrjú kíló af amfetamíni fundust í Dettifossi, skipi Eimskipafélagsins. Sjaldan hefur verið lagt hald á jafn mikið af efninu. Söluverðmæti þess gæti numið á fjórða tug milljóna króna. 4.8.2004 00:01
Vegið að mannlegri virðingu fólks Vegið er að mannlegri virðingu og sjálfræði hælisleitenda með því að greiða þeim ekki vasapeninga, að mati Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns. Um síðustu áramót tók félagsþjónusta Reykjanesbæjar við umsjá fólks sem hér leitar pólitísks hælis og um leið var látið af greiðslum vasapeninga. 4.8.2004 00:01
Kveikt í fjórum bílum Kveikt var í fjórum bifreiðum í vesturbæ Reykjavíkur í fyrrinótt og tilraun var gerð til að kveikja í einni til viðbótar. Bílarnir fjórir eru stórskemmdir. 4.8.2004 00:01
Eignaverð hefur hækkað um 20% Eignaverð hérlendis hefur hækkað um tuttugu prósent að raunvirði á síðustu 12 mánuðum samkvæmt eignaverðsvísitölu KB banka. Í henni er vegið saman markaðsvirði þriggja helstu eignaflokka landsins, þ.e.a.s. fasteigna, hlutabréfa og skuldabréfa. 4.8.2004 00:01
Hækka afurðaverð á nautakjöti Norðlenska og Borgarnes kjötvörur hafa ákveðið að hækka afurðaverð á nautgripakjöti til bænda auk þess sem þyngdarmörk innan UN1 flokksins hafa verið lækkuð, sem þýðir að nautgripir fara yngri í slátrun en áður. 4.8.2004 00:01
Heitasti júlí í sjö ár Hiti hefur mælst yfir meðallagi í Reykjavík 28 mánuði í röð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Í júlímánuði mældist meðalhiti 11,5 stig á celsíus sem er 0,9 gráðum meira en í meðalári. 4.8.2004 00:01
Gyðingar flytjast til Ísraels Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili. 4.8.2004 00:01
ESB brýtur alþjóðalög Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar. 4.8.2004 00:01
Auglýst eftir hirðfífli Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár. 4.8.2004 00:01
Súdanir mótmæla ályktun SÞ Rúmlega 100 þúsund manns komu saman á götum Khartúm, höfuðborgar Súdans, og mótmæltu ályktun Sameinuðu þjóðanna sem veitir súdönskum yfirvöldum mánaðarfrest til að stöðva ofsóknir vígasveita í Darfur-héraði. Mótmælin voru skipulögð af hinu opinbera. 4.8.2004 00:01
90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina. 4.8.2004 00:01
Fangar struku í Svíþjóð Þrír menn struku úr fangelsi í grennd við Stokkhólm í Svíþjóð með aðstoð grímuklæddra manna sem báru skotvopn. Þetta er í annað skiptið á rúmri viku sem fangar strjúka úr sænsku fangelsi. 4.8.2004 00:01
Brúnni yfir Jöklu lokað aftur Búið er að loka brúnni yfir Jökulsá á Dal aftur vegna vatnavaxta og er ekki útilokað að vatnsyfirborðið nái hærra en í flóðinu í gær. Ákveðið hefur verið að hækka varnarstíflu um fimm metra í varúðarskyni. Önnur hjárennslisgöngin hafa ekki undan, væntanlega vegna stíflu. 4.8.2004 00:01
Morðvopnið hjá líkinu í gjótunni Lögregla fann í dag kúbein sem talið er að Hákon Eydal hafi notað til að myrða Sri Ramawati. Það lá í sömu gjótu og líkið af henni sem fannst í Hafnarfjarðarhrauni í gær. 4.8.2004 00:01
Vildi bjarga fólkinu „Ég verð að bjarga fólkinu,“ flaug í gegnum huga Guðjóns Magnússonar vörubílstjóra áður en hann steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti. Guðjón, sem vinnur hjá Bergverki í Borgarnesi, var að flytja möl á stórum fjögurra öxla vörubíl þegar hann kom að einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal. 4.8.2004 00:01
Hélt ég myndi deyja Guðjón Magnússon, 24 ára bifreiðastjóri frá Borgarnesi segist þakka æðri máttarvöldum að enginn hefði meiðst alvarlega þegar 28 tonna trukkur sem hann ók steyptist rúma 10 metra niður í stórgrýttan árfarveg Laxár á Dölum við Búðardal. Ástæðan var sú að jeppi var fyrir á einbreiðri brúnni. 4.8.2004 00:01
Ráðist á lögfræðing Viktor Stefán Pálsson, lögfræðingur og sviðsstjóri hjá Vestmannaeyjabæ tilkynnti líkamsárás til lögreglu um helgina. Samkvæmt heimildum DV átti árásin sér pólitískar rætur. 4.8.2004 00:01
Ónákvæm kort Landmælinga Íslands Dæmi eru um að ár renni upp í mót og heilu og hálfu fjöllin vanti á landakort af Íslandi frá Landmælingum Íslands. Forstjóri stofnunarinnar kennir fjárskorti um. 4.8.2004 00:01
Mótmæla leðurfatnaði í Gay Pride Íslenskur dýravinur, hommi, lesbía og Búkolla mótmæltu því á Austurvelli í dag að samkynhneigðir íklæddust leðri. Þau segja að á bak við hverja leðurskó, svipu eða leðurjakka liggi ólýsanleg þjáning dýra og að föt úr gervileðri eða gúmmíi séu jafn kynþokkafull og leðrið. 4.8.2004 00:01
Umdeild lög sett í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti í dag lög sem kveða á um að ýmis niðurgreiðsla á opinberri þjónustu verði felld niður. Lögin er hluti af umsvifamiklum umbótum á velferðakerfinu í Rússlandi. 4.8.2004 00:01
Sri Chinmoy lyfti 308 kg manni Hinn 73 ára gamli Shri Chinmoy lyfti rúmlega 300 kílógramma Bandaríkjamanni í síðustu viku. Tilgangurinn með því var að vekja fólk til meðvitundar um offituvandann. 4.8.2004 00:01
Jarðgöng biluð Vatnavextir í Jöklu sem ollu því að brú fór undir vatn eru ekki meiri en búast má við í venjulegu sumri. Mesta flæðið á síðustu dögum var 820 rúmmetrar á sekúndu en að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, er alvanalegt að flæði fari upp í 900 rúmmetra á sekúndu yfir sumarið. 4.8.2004 00:01
Vítamíndropar taldir valda ofnæmi Grunur leikur á því, að notkun A- og D-vítamíndropa, sem innihéldu jarðhnetuolíu hafi hleypt af stað jarðhnetuofnæmi hjá ungabörnum hér á landi. Lyfjastofnun innkallaði þessa dropa í fyrra. Hópur foreldra þarf að hafa bráðasprautur við hendina, vegna þessa illvíga ofnæmis. </font /></b /> 4.8.2004 00:01
Rökin eingöngu pólitísk Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem greiða mest til landbúnaðar. Helstu rök gegn því að hætta stuðningi við íslenskan landbúnað eru pólitísk og ástæðurnar huglægar, segir Gylfi Magnússon hagfræðingur. Formaður landbúnaðarnefndar vill halda stuðningi áfram. </font /></b /> 4.8.2004 00:01
Bráðasprautan alltaf við hendina Tveggja ára snáði, Kjartan Sveinn Guðmundsson greindist með jarðhnetuofnæmi fyrir fáeinum vikum. Foreldrar hans hafa neyðarsprautuna alltaf við hendina. Þau þurfa ætíð að vera á vaktinni, ekki einungis varðandi það sem barnið lætur ofan í sig, heldur með hvað þau borða sjálf.</font /></b /> 4.8.2004 00:01
Endurmæling hnitakerfis hafin Hafin er endurmæling á hnitakerfi landsins, svo kölluðu grunnstöðvaneti. Þetta umfangsmikla verkefni hófst við mælistöð nálægt Reykholti í Borgarfirði. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra var viðstödd og hóf fyrstu mælinguna ásamt mælingamönnum frá Landmælingum Íslands. Að því loknu hófu 19 mælingahópar mælingar á 34 mælistöðvum á Norðurlandi. 4.8.2004 00:01
Banaslys við Krossanes Banaslys varð á Akureyri síðdegis í dag þegar malarflutningabíll valt ofan í fjöru sunnan við Krossanes, skammt utan Akureyrar. Ökumaður á fertugsaldri lést. Tildrög slyssins eru ekki ljós. Unnið er að breikkun á vegi á þessum stað en stór vinnuvél, sem oft er kölluð búkolla, var að flytja jarðefni þegar hún lenti fram af vegi og valt ofan í fjöru. 3.8.2004 00:01
Steyptist 27 metra í stórgrýti Það liggur við að hægt sé að tala um kraftaverk að vörubílsstjóri skyldi komast lítið skaddaður úr slysi sem varð í Búðardal síðdegis í dag. Maðurinn var að flytja möl í vörubíl til Búðardals þegar hann kemur að einbreiðri brú yfir Laxá við Laxárdal. 3.8.2004 00:01