Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmiðlalögin felld úr gildi Alþingi felldi fjölmiðlalögin úr gildi rétt fyrir hádegi með 32 atkvæðum að lokinni þriðju umræðu málsins. Breytingar allsherjarnefndar á fjölmiðlafrumvarpinu voru fyrst samþykktar við aðra umræðu á Alþingi í gærkvöld með 31 atkvæði stjórnarliða. 28 sátu hjá og fjórir greiddu ekki atkvæði. 22.7.2004 00:01
Gíslar grátbiðja um miskunn Sjö gíslar eru enn í haldi mannræningja í Írak. Myndband með gíslunum sýnir þá grátbiðja mannræningjana um að sýna sér miskunn. 22.7.2004 00:01
Barroso kosinn forseti ESB Fyrrverandi forsætisráðherra Portúgal, hinn 48 ára gamli Jose Manuel Duraou Barroso, verður næsti forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Barroso vann meirihluta atkvæða á þingi Evrópusambandsins í Strassborg í morgun. Barroso tekur við af Romano Prodí frá Ítalíu. 22.7.2004 00:01
400 látnir í flóðum á Indlandi Hátt í 400 manns hafa látið lífið í miklum flóðum í héraðinu Hihar á Indlandi síðustu daga. Óttast er að kólerufaraldur kunni að brjótast út í kjölfarið. Herinn er í viðbragðsstöðu í borginni Gauhati í Assam-héraði en þar hafa ár flætt yfir bakka sína. Óttast er að flytja þurfi yfir tvær milljónir borgarbúa á brott. 22.7.2004 00:01
Upplýsingarnar ekki endanlegar Ríkisendurskoðandi og fulltrúar fjármálaráðuneytisins voru boðaðir á fund fjárlaganefndar Alþingis í morgun til að fara yfir skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2003. Formaður fjárlaganefndar segir upplýsingar í skýrslunni ekki vera endanlegar. 22.7.2004 00:01
Meint sniðganga kosningaloforðs Stjórn Bandalags háskólamanna mótmælir harðlega að menntamálaráðherra hafi sniðgengið kosningaloforð um að endurskoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna, í samstarfi við hagsmunasamtök endurgreiðenda. 22.7.2004 00:01
Fischer verði gefnar upp sakir Skáksamband Íslands beinir þeim eindregnu tilmælum til forseta Bandaríkjanna að fyrrverandi heimsmeistara í skák, Bobby Fischer, verði gefnar upp sakir og ákærur á hendur honum, fyrir að hafa brotið viðskiptabann Bandaríkjanna gegn Júgóslavíu árið 1992, verði felldar niður. 22.7.2004 00:01
Skýrsla um 11. sept. gerð opinber Bandarískum stjórnvöldum og leyniþjónustum mistókst árum saman að gera sér grein fyrir umfangi þeirrar ógnar sem stafaði af íslömskum öfgamönnum, og þau þjáðust af sameiginlegum skorti á ímyndunarafli. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar vestan hafs sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2001. 22.7.2004 00:01
Skipað í héraðsdómarastöður Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað Sigrúnu Guðmundsdóttur, hæstaréttarlögmann, í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Ásgeir Magnússon, hæstaréttarlögmann, í embætti héraðsdómara sem fyrst um sinn mun ekki eiga fast sæti við tiltekinn dómstól. Skipað er í stöðurnar frá 1. september næstkomandi. 22.7.2004 00:01
Hljóðbylgjur orsaka hvalreka Hljóðbylgjutækjum, sem m.a. eru notuð af herjum til þess að greina óvinakafbáta í undirdjúpunum, er kennt um þá miklu aukningu sem orðið hefur á því að hvalir stranda og festast á landi. Þetta kom fram á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem lýkur á Sorrento á Ítalíu í dag. 22.7.2004 00:01
Bílvelta og árekstur Fólksbíll valt í Kömbunum við Hveragerði rétt fyrir hádegi í dag. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur á heilsugæsluna í Hveragerði til aðhlynningar. Maðurinn slapp án teljandi meiðsla. 22.7.2004 00:01
Dregur úr byggingu einbýlishúsa Verulega hefur dregið úr byggingu einbýlishúsa á Íslandi á síðari áratugum miðað við það sem áður hefur þekkst. Þess í stað hefur mesti vöxturinn verið í háhýsum með fleiri en sex íbúðir og er nú svo komið að ríflega en helmingur af nýju íbúðahúsnæði er í stóru fjölbýli. 22.7.2004 00:01
Bann gegn ruslpósti virkar Bann á ruslpósti í Ástralíu virðist bera árangur en yfirvöld bönnuðu ruslpóst fyrir þremur mánuðum síðan. Mörg netfyrirtæki hafa látið af óumbeðnum ruslpóstsendingum, sérstaklega hefur póstur sem inniheldur hvers kyns klám snarminnkað 22.7.2004 00:01
Herinn vill aukafjárveitingu Bandaríska varnarmálaráðuneytið þarf aukafjárveitingar í september að andvirði um 873 milljarða króna til að standa straum af kostnaði vegna veru hersins í Írak og Afganistan.Það er þrisvar sinnum meira en yfirmenn hersins gerðu ráð fyrir í apríl síðastliðnum. 22.7.2004 00:01
Serbar leita stríðsglæpamanns Yfirvöld í Serbíu-Svartfjallalandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur meints stríðsglæpamanns sem flúði fyrir viku síðan. 22.7.2004 00:01
Solana gagnrýnir Ísrael Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í heimsókn sinni til Ísrael í gær að aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum bryti í bága við alþjóðalög. Solana fullyrti þetta á blaðamannafundi sem hann og Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, sátu báðir 22.7.2004 00:01
Súdanir gagnrýna Vesturlönd Utanríkisráðherra Súdan segir afskipti Bandaríkjanna og Bretlands af ógnaröldinni í Darfur-héraði vera óeðlileg og minna um margt á framkomu þeirra gagnvart Írak áður en ráðist var inn í landið. 22.7.2004 00:01
Endur af tjörninni ætar Ekkert bendir til þess að endur sem veiddar eru í Laugardal eða við Reykjavíkurtjörn séu óhæfar til neyslu samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Umhverfis- og heilbrigðisstofnun Reykjavíkur. 22.7.2004 00:01
Hraðatakmörkunum breytt á Bíldudal Byggingarnefnd Vesturbyggðar leggur til að takmörkun á hámarkshraða við Bíldudal verði færð og hámarkshraðamerkingar málaðar á yfirborð vegar. Í síðustu viku lést stúlka þegar ekið var á hana. 22.7.2004 00:01
Milljón Rúmena meinað að ferðast Tæplega milljón Rúmenum hefur verið meinað að yfirgefa landið það sem af er árinu. Flesta skortir fé til ferðalaga vegna reglna ESB. 22.7.2004 00:01
Hundrað tilfelli pyntinga Bandarískir hermenn hafa gerst sekir um að misþyrma föngum í Írak og Afganistan í að minnsta kosti 94 tilfellum síðan haustið 2001. Þetta eru niðurstöður rannsóknar bandaríska hersins sem var gerð eftir að upp komst um stórfelldar misþyrmingar á föngum í Írak í vor. 22.7.2004 00:01
Stórt skref tekið í hvalveiðimálum Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítalíu, segir að stórt skref hafi verið stigið í rétta átt á fundinum með þeirri ákvörðun að stefnt yrði að því að ljúka við endurskoðun á veiðistjórnunaráætlun fyrir ársfundinn sem haldinn verður í Suður-Kóreu á næsta ári. 22.7.2004 00:01
Löggæslukostnaður komi frá ríkinu Yfirlögregluþjónn segir að gera eigi ráð fyrir löggæslukostnaði vegna árvissra útihátíða í fjárheimildum lögreglunnar. Dómsmálaráðuneyti segir vert að skoða slíkar tillögur en lögum verði fylgja fram að því. </font /></b /> 22.7.2004 00:01
Myrkrahöfðinginn til Brussel Maðurinn sem eitt sinn var nefndur myrkrahöfðinginn vegna áhrifa sinna í breskum stjórnmálum kann að vera á leiðinni til Brussel til starfa hjá Evrópusambandinu. 22.7.2004 00:01
Stoppuðu flugræningja og slepptu Fjórir flugræningjar voru stöðvaðir á flugvellinum skömmu áður en þeir flugu farþegavél á bandaríska varnarmálaráðuneytið. Þeim var hleypt í gegn og þannig fór síðasti möguleikinn til að stöðva þá út um þúfur. Stjórnvöld vanmátu hættuna sem stafaði af al-Kaída og gátu því ekki varist henni. 22.7.2004 00:01
Deila um húsbréfakerfið Hörð bréfaskipti hafa átt sér stað á milli Íbúðalánasjóðs og Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) vegna breytinga á húsnæðislánakerfinu sem tók gildi 1. júlí. Aðilarnir saka hver annan um ófagleg vinnubrögð. 22.7.2004 00:01
Ekki lengur boðið Eftir að Hollendingar tóku við forystu í Evrópusambandinu hefur EFTA löndunum ekki verið boðið á samráðsfundi um samkeppnishæfni. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ræddi þetta við Denis MacShane, Evrópumálaráðherra Bretlands, á fundi þeirra á miðvikudag. 22.7.2004 00:01
Guðrún lekur enn olíu Yfirvöld og umhverfissamtök í Noregi krefjast svara við því hvers vegna enn sé vart við olíuleka úr togaranum Guðrúnu Gísladóttur sem sökk við strönd Noregs í júní 2002. 22.7.2004 00:01
Gagnrýni Verslunarráðs ómakleg Forstjóri Landmælinga Íslands vísar því alfarið á bug að stofnunin hafi nýtt sér hugmyndir einkafyrirtækja og gert að sínum eins og Verslunarráð Íslands ýjar að á heimasíðu ráðsins. 22.7.2004 00:01
Enginn vöxtur hérlendis Helsti vöxtur íslenskrar kaupskipaútgerðar er á erlendum vettvangi sé henni skapaður grundvöllur til þess af íslenskum stjórnvöldum enda sé ljóst að kaupskipastóllinn mun ekki vaxa meira hér á landi en þegar er orðið. Þetta kom fram á fundi forsvarsmanna félags skipstjórnarmanna með forstjóra Eimskipa og sagt er frá á heimasíðu félagsins. 22.7.2004 00:01
Öllum reglum fylgt til hlítar "Þessum athugasemdum lögmanna sækjenda á hendur einkavæðingarnefnd er alfarið vísað á bug," segir Stefán Jón Friðriksson hjá fjármálaráðuneytinu vegna gagnrýni þeirrar er fram hefur komið á störf nefndarinnar í seinna útboði ríkisins á hlut sínum í Íslenskum aðalverktökum fyrir rúmu ári síðan. 22.7.2004 00:01
Bylgjan á toppnum Fleiri hlustuðu á útvarpsstöðina Bylgjuna heldur en Rás 2 í nýjustu fjölmiðlakönnun Gallup sem birt var í gær. Er þetta í fyrsta sinn síðan Gallup hóf kannanir af þessu tagi í apríl 1999 sem Rás 2 er ekki á toppnum og er munurinn 1.6 prósent. Könnunin var gerð vikuna 18. - 24. júní og voru tæp 1300 manns í úrtakinu. 22.7.2004 00:01
Erfið samningsstaða sjómanna Samningsstaða sjómanna er erfið þar sem stjórnvöld standa við bakið á útvegsmönnum. Það hafi sýnt sig við lagasetningar á löglegri verkfallsboðun sjómanna árið 2001, 1998 og 1994. Þetta segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. 22.7.2004 00:01
Líðan Davíðs góð Líðan Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, eftir aðgerð sem hann gekkst undir í gær, er sögð góð. Hann hefur verið fluttur á legudeild Landspítalans. 22.7.2004 00:01
Kveðst sleppa stjórn öryggissveita Jasser Arafat, Palestínuforseti, er sagður hafa lofað því að veita ríkisstjórn Ahmed Qureia forsætisráðherra aukin völd, þess á meðal full yfirráð yfir öryggissveitum Palestínumanna. Þetta sagði palestínski þingmaðurinn Imad Falloyuji eftir að Arafat ræddi við þingmenn. Fallouji sagði Qureia hafa lofað að skoða tilboð Arafats. 22.7.2004 00:01
Fjórtán látnir í umferðinni Þrír hafa látið lífið í umferðinni síðan 11. júlí. Fjórtán hafa alls látið lífið í umferðarslysum á árinu. Flest slysanna eiga sér stað nærri Reykjavík. Tveir hafa að meðaltali látið lífið í hverjum mánuði síðustu þrjátíu árin. 22.7.2004 00:01
Verkfall háseta hafrannsóknarskipa Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segir félagið vilja að kjarasamningurinn falli úr gildi eða verði uppsegjanlegur nemi stjórnvöld sjómannaafsláttinn úr gildi. 22.7.2004 00:01
Ný skip á dagskrá Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það sé vissulega á dagskrá að útvega Landhelgisgæslunni ný skip til eftirlits á sjó. Það sé eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar. 22.7.2004 00:01
Hálf milljón í styrk Íþróttabandalag Reykjavíkur fær hálfa milljón í styrk frá Reykjavíkurborg vegna Reykjavíkurmaraþonsins sem haldið verður þann 21. ágúst. Þetta var ákveðið á fundi borgarráðs á þriðjudag. 22.7.2004 00:01
Flugræningjarnir stoppaðir 11.9. Myndir úr eftirlitsmyndavélum á Dulles-flugvelli í Washington sýna að flugræningjarnir sem grönduðu flugvélunum þann 11. september 2001 voru teknir til hliðar við málmleitarhliðin en var síðan leyft að halda áfram, án frekari athugunar. 22.7.2004 00:01
Vonast eftir forsætisráðherrastól Halldór Ásgrímsson frestaði þingfundum í dag í fjarveru Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Halldór segir að hann voni að hann verði forsætisráðherra í haust eins og samið hafi verið um. 22.7.2004 00:01
Tsjernóbil verður ferðamannastaður Úkraínumenn reyna nú að lappa upp á ferðamannaiðnaðinn í landinu og hafa brugðið á það ráð að breyta Tsjernóbil-kjarnorkuverinu í ferðamannastað. Átján ár eru liðin frá því að kjarnorkuslys varð í Tsjernóbil en verinu var ekki lokað fyrr en árið 2000. Geislavirkni í verinu er 200 sinnum hærri en leyfilegt er en ferðamenn geta gist í verinu í nokkra daga án þess að veikjast. 22.7.2004 00:01
Fjölmiðlalögin felld úr gildi Fjölmiðlalögin voru felld úr gildi í dag. Stjórnarandstaðan sat hjá við afgreiðslu málsins og varaformaður Frjálslynda flokksins segir að stjórnarþingmenn hafi viljandi brotið stjórnarskrána. 22.7.2004 00:01
Hægt að semja um allt innan ESB Evrópumálaráðherra Breta, Denis MacShane, ræddi við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í morgun um Evrópusambandið og afstöðu Íslands gagnvart aðild. MacShane telur að hægt sé að semja um flest allt í tengslum við aðild. 22.7.2004 00:01
Kárahnjúkabók Ómars komin út Á meðan sumir segja Kárahnjúkavirkjun stærsta og jákvæðasta hagsmunamál Íslendinga segja aðrir hana stærsta umhverfishneyksli Evrópu. Þessi ólíku sjónarmið eru kynnt í nýrri bók Ómars Ragnarssonar, <em>Kárahnjúkar - með og á móti</em>, en verkið var kynnt á heldur óvenjulegum blaðamannafundi. 22.7.2004 00:01