Fleiri fréttir

Ísraelsmenn hunsa ályktun Sþ

Ísraelsmenn ætla að halda framkvæmdum áfram við öryggismúr á Vesturbakkanum, þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi samþykkt ályktun í gærkvöldi þar sem þess er krafist að hann verði rifinn niður. Raanan Gissin, einn af ráðgjöfum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segir það vera rétt Ísraelsmanna að verja sig gegn Palestínumönnum.

Þingfundur kl. 13:30 í dag

Önnur umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefst á Alþingi klukkan 13:30 í dag en allsherjarnefnd samþykkti verulegar breytingar á frumvarpinu í gær. Samkvæmt breytingartillögunum verða fjölmiðlalögin, sem forseti Íslands synjaði staðfestingar, felld úr gildi en engin lög um eignarhald á fjölmiðlum sett í staðinn.

Háir bílaskattar úreltir

Háir bílaskattar í Danmörku eru úrelt fyrirbæri segir skattasérfræðingurinn Flemming Lind Johansen í samtali við dagblaðið Politiken í dag. Hann bendir á að sum ákvæði laga þessa efnis hafi staðið óbreytt frá 1924 og því sé löngu orðið tímabært að endurskoða þau.

5-7 ára fangelsi fyrir smygl

Krafist er 5-7 ára fangelsis yfir konu frá Síerra Leóne sem tekin var í Leifsstöð með um fimmþúsund e-töflur þann 10. júní síðastliðinn. Efnin fundust í farangri konunnar en það vakti mikla athygli að hún er barnshafandi.

Tveir al-Kaída menn drepnir

Tveir menn, grunaðir um aðild að hryðjuverkasamtökunum al-Kaída, féllu í skotbardaga í Ríad í Sádi-Arabíu í nótt. Í yfirlýsingu frá innanríkisráðuneyti landsins segir að þrír aðrir grunaðir hryðjuverkamenn hafi særst en setið var um heimili Saleh al-Awfi sem er talinn leiðtogi samtakanna í Sádi-Arabíu. 

Baðstrendur í París

Íbúar og ferðamenn í París geta næstu vikurnar skellt sér á baðströnd í borginni því í dag opna þrjár baðstrendur á þriggja og hálfs kílómetra löngu svæði á Signubökkum. Þetta er þriðja sumarið í röð sem settar eru upp strendur í borginni en þær verða opnar næstu sex vikurnar.

Launavísitalan hækkaði í júní

Launavísitala fyrir júnímánuð er 251,1 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,1%.

Geta pissað á matinn sinn

Svangir hermenn með takmarkaðar vatnsbirgðir og einungis þurrmat í farteskinu geta bráðum farið að nota óhreint vatn eða jafnvel þvag til koma í veg fyrir vatnsskort. Bandaríski herinn hefur framleitt sérstakan poka með þurrmat sem er með síu á endanum. Sía þessi nær að sía 99% af bakteríum úr vökvanum, hvort sem um ræðir óhreint vatn eða þvag.

Komu í veg fyrir eldsvoða

Ungir drengir komu í veg fyrir eldsvoða í íbúð að Ásabraut 11 í Reykjanesbæ aðfararnótt sunnudags samkvæmt fréttavef Víkurfrétta í dag. Segjast drengirnir hafa heyrt í reykskynjara í húsinu og runnið á hljóðið. Þegar þeir litu inn um gluggann í húsinu sáu þeir reyk og höfðu samband við neyðarlínuna þegar í stað.

Japan og S-Kórea lofa aðstoð

Japan og Suður-Kórea ætla að leggja stjórnvöldum í Norður-Kóreu lið í efnahagsmálum, þegar og ef kjarnorkudeila landanna leysist. Þetta kom fram á blaðamannfundi Junichiro Koizumis, forsætisráðherra Japans, og Roh Moo-hyuns, forseta Suður Kóreu, í morgun.

Nauðlenti skammt frá Húsafelli

Lítil eins hreyfils flugvél nauðlenti skammt frá Húsafelli um 10:55 í morgun. Flugmaðurinn, sem er kona, lét flugturninn í Reykjavík vita skömmu eftir slysið og sagðist vera ómeidd. Hún var ein um borð.

Ísraelum gert að rífa múrinn

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um að Ísraelum beri að rífa niður múrinn sem þeir eru að reisa við Vesturbakkann. Stjórnvöld í Ísrael mótmæla ályktuninni og ætla að halda áfram að reisa múrinn.

Stjórnarandstaðan ber kvíðboga

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnarandstaðan beri kvíðboga fyrir þeirri sáttagjörð sem stjórnarflokkarnir hafa lagt fram með stofnun fjölmiðlanefndar. Hann segir að stjórnarandstaðan muni áfram sýna samstöðu í fjölmiðlamálinu og leggja fram mótaðar tillögur innan fjölmiðlanefndarinnar.

Málskotsréttur forsetans afnuminn?

Málskotsréttur forseta Íslands verður hugsanlega afnuminn við endurskoðun stjórnarskrárinnar sem boðað hefur verið til. Mögulegt er að í staðinn verði fleiri en ein leið til að skjóta lagafrumvörpum til þjóðarinnar.

Gæsluvarðhald verði framlengt

Þess verður krafist fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að gæsluvarðhald yfir manninum, sem er grunaður um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar í Stórholti, verði framlengt en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 6. júní.

Tafir á umferð um Vesturlandsveg

Vegna framkvæmda á Vesturlandsvegi undir Esjubergi við Enni og Tinda verða tafir á umferð. Þar hafa tímabundið verið sett upp umferðarljós og er aðeins umferð úr annari áttinni hleypt í gegn í einu. Við þetta geta myndast langar biðraðir. Ökumenn eru beðnir vara sig á því að aka hratt og að gæta sín á hvössum brúnum.

Al-Kaída hótar Evrópuþjóðum

Hryðjuverkamenn úr röðum al-Kaída, sem starfa í Evrópu og fara þar huldu höfði, hafa hótað Búlgaríu og Póllandi árásum, dragi ríkin ekki herlið sitt frá Írak.

Davíð frá störfum á næstunni

Við setningu þingfundar rétt í þessu sagði Halldór Blöndal, forseti Alþingis, að Davíð Oddsson forsætisráðherra myndi ekki taka þátt í störfum þingsins á næstunni vegna veikinda. Eins og greint hefur verið frá var <span>Davíð fluttur á Landspítala-háskólasjúkrahús í nótt vegna verkja í kviðarholi og er hann í rannsókn á sjúkrahúsinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. </span>

Ánægður með stöðu málsins

Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segist mjög ánægður með stöðuna í fjölmiðlamálinu. Hann telur að nú hafi náðst langþráð sátt sem bæði þing og þjóð hafi óskað eftir.

Unga fólkið fer til Eyja

Straumurinn um verslunarmannahelgina virðist helst liggja til Eyja að sögn starfsmanns Flugfélags Íslands. Einnig mikið bókað til Akureyrar og Egilsstaða. Undirbúningur fjölda útihátíða um allt land stendur sem hæst. Engin óveðursský sjáanleg, segir veðurfræðingur.

Hafnar beitingu fjölmiðla í málinu

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og aðaleigandi Norðurljósa, hafnar því að hafa beitt fjölmiðlum fyrirtækisins gegn stjórnvöldum í fjölmiðlamálinu.

Nefndarálit flutt á þinginu

Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, flutti nefndarálit meirihlutans. Í því tekur frumvarpið stakkaskiptum frá því stjórnarflokkarnir kynntu það fyrir aðeins sautján dögum þar sem ekki er lengur lagt fram nýtt frumvarp í stað þess sem var fellt úr gildi.

Ríkisendurskoðun svarar ráðherra

Ríkisendurskoðun sendi fyrr í dag fjármálaráðherra svar við athugasemdum sem gerðar voru við skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. Geir H. Haarde fjármálaráðherra gagnrýndi skýrsluna harðlega á dögunum og sagði hana ónákvæma.

Ekkert varðskipanna við eftirlit

Varðskipið Ægir kemur til hafnar í vikunni og stoppar í nokkra daga. Þá verður ekkert varðskipanna þriggja við eftirlit á landhelgislínunni. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir gæslustörf með eðlilegum hætti en skipin þurfi sitt viðhald. 

4 látnir í bílasprengju

Fjórir hið minnsta létust þegar öflug bílasprengja sprakk í suðurhluta Bagdad fyrir stundu. Að minnsta kosti þrír bílar skemmdust í sprengingunni en ekki er vitað hvort um sjálfsmorðsárás var að ræða. 

Hótað að sprengja Eiffelturninn

Eiffelturninn í París var rýmdur nú fyrir stundu eftir að hótað var að sprengja sprengju í turninum. Lögregla rannsakar málið en telur að um gabb hafi verið að ræða.

Al-Zarqawi ber af sér sakir

Óvissa ríkir nú um hvort það hryðjuverkaforinginn Abu Musab al-Zarqawi hafi í raun staðið fyrir því að setja fé til höfuð Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks.

Ísland fær 40 tonn

Íslendingar mega veiða 40 tonn af túnfiski á þessu ári samkvæmt tillögum Atlantshafstúnfiskveiðiráðinu og þurfa útgerðir sem áhuga hafa á slíkum veiðum að sækja um slíkt fyrir mánaðarmót. Er þetta magn tíu tonnum meira en á síðasta ári en eftir miklu er að slægjast þar sem túnfiskur er ein verðmætasta sjávarafurð sem til er.

Athugasemdum vísað til föðurhúsa

Ríkisendurskoðun vísar athugasemdum fjármálaráðuneytis vegna umdeildrar skýrslu um framkvæmd fjárlaga árið 2003 að mestu til föðurhúsanna og stendur við flest það sem þar stóð. Þetta kemur fram í bréfi Sigurðar Þórðarsonar, ríkisendurskoðanda, til ráðuneytisins en alls setti ráðuneytið út á níu atriði í upphaflegri skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Fálkaorðan á Ebay

Eitt af æðstu heiðursmerkjum íslenska ríkisins, hin íslenska fálkaorða, er nú til sölu á bandaríska uppboðsvefnum Ebay og hafa áhugasamir fjóra daga til stefnu til að slá út núverandi boð sem eru rúmar 18 þúsund krónur. Alls átta aðilar hafa gert tilboð hingað til.

Lítil spilling en margt að varast

Lítil spilling er á Íslandi en stjórnvöld þurfa þó að huga betur að öllum reglum til að fyrirbyggja slíkt í framtíðinni. Þetta er frumniðurstaða Greco, samstarfshóps nokkurra Evrópuríkja, sem metur og berst gegn spillingu innan opinberrar stjórnsýslu.

Heita aðstoð við Norður-Kóreu

Um leið og kjarnorkudeilunni á Kóreuskaga lýkur munu Japan og Suður-Kórea hefjast handa við að hrinda í framkvæmd samstarfsverkefnum við Norður-Kóreu auk þess að veita efnahagsaðstoð.

Gæsluvarðhaldið framlengt

Gæsluvarðhald yfir 45 ára gömlum manni, sem grunaður er um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar í Stórholti, var í dag framlengt í Héraðsdómi Reykjavíkur um þrjár vikur, eða til 11. ágúst.

Grænlenskt sorp til Íslands?

Sorp frá Grænlandi mun kannski verða flutt til eyðingar á Ísafirði áður en langt um líður. Þetta var meðal þess sem rætt var á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar með Jens Napaatoq, samgönguráðherra Grænlands, í dag.

Harðar umræður á Alþingi

Harðar umræður hafa verið á Alþingi um fjölmiðlalögin í dag. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnarflokkana fyrir það hvernig málið hefur þróast síðustu mánuði og talaði Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, um sjálfskaparvíti ríkisstjórnarinnar og taldi málið allt komið á byrjunarreit.

Lést í umferðarslysi

Tékknesk kona lést í umferðarslysi á Vatnsnesvegi í Vestur-Húnavatnssýslu í gærkvöldi. Fimm voru í bílnum og var einn fluttur alvarlega slasaður með þyrlu á sjúkrahús. Aðrir voru fluttir til aðhlynningar á heilsugæslustöðina á Hvammstanga.

Bandarísk þyrla skotin niður

Þrír bandarískir hermenn létust þegar þyrla sem þeir voru í var skotin niður yfir borginni Ramadí í vesturhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir lögreglunni þar í borg og eru írakskir skæruliðar sagðir hafa verið þarna að verki.

Arafat sagður bera mesta ábyrgð

Jasser Arafat, forseti Palestínu, sætir harðari gagnrýni þessa dagana en hann er vanur. Palestínuþing ályktaði gegn honum og enn bólar ekkert á lausn á deilunni um yfirstjórn öryggismála.

6 útlendingum rænt í Írak

Írakskir uppreisnarmenn rændu sex erlendum ríkisborgurum í dag. Þeir hafa hótað að taka mennina af lífi en þeir eru frá Indlandi, Keníu og Kúveit og vinna fyrir kúveiskt verktakafyrirtæki. Mannræningjarnir krefjast þess að fyrirtækið hætti starfsemi í Írak.

Banaslys við Valdalæk

Banaslys varð við Valdalæk, skammt frá Hvammstanga, um klukkan 10 í gærkvöld. Tékknesk kona á fertugsaldri lést þegar bíll, sem hún var farþegi í, fór út af veginum og valt. Svo virðist sem ökumaður bifreiðarinnar hafi misst stjórn á henni í lausamöl.

Hvalveiðiráðið fundar fram á kvöld

Engin niðurstaða hefur fengist á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítalíu. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, býst við að fundað verði fram að miðnætti.

Hunsa vilja Sameinuðu þjóðanna

Ísraelar hyggjast í engu fara eftir óskum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Allsherjarþingið samþykkti með miklum meirihluta atkvæða ályktun þar sem þrýst er á Ísraela að virða úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag um að hætta framkvæmdum við vegginn sem þeir eru að reisa milli sín og Palestínumanna, á palestínsku landsvæði.

Davíð gekkst undir aðgerð

Forsætisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu rétt áðan þar sem segir að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi verið lagður inn á Landspítalann við Hringbraut síðastliðna nótt vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra og gekkst forsætisráðherra undir aðgerð þar sem gallblaðran og hægra nýra voru fjarlægð.

Cruz hitti fjölskyldu sína

Angelo de la Cruz, filippseyski gíslinn sem mannræningjar í Írak létu lausan í gær eftir að hafa haldið honum í tvær vikur, hitti fjölskyldu sína í dag. Kona og bróðir Angelos komu til Sameinuðu arabísku furstadæmanna með flugi frá Jórdaníu og það var tilfinningarík stund þegar Angelo og kona hans hittust.

Sakar son um að stela Svarta dauða

"Sonur minn tók þetta örlagaríka skref. Hann sveik mig," segir Valgeir Sigurðsson, veitingamaður, sem þekktur er fyrir að framleiða Svarta Hann hefur stefnt syni sínum, Sigurði Tómasi Valgeirssyni, fyrir að hafa haft af sér ævistarfið með ólöglegum hætti.dauða.

Sjá næstu 50 fréttir