Líðan Davíðs góð 22. júlí 2004 00:01
Líðan Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, eftir aðgerð sem hann gekkst undir í gær, er sögð góð. Hann hefur verið fluttur á legudeild Landspítalans. Davíð Oddsson var fluttur á bráðadeild Landspítalans í fyrrinótt vegna gallblöðrubólgu og við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra. Forsætisráðherra gekkst undir aðgerð þar sem gallblaðran var fjarlægð og einnig nýrað. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu gekk aðgerðin að óskum. Hann hefur verið fluttur á legudeild og líðan hans er sögð góð. Framfarir eru eðlilegar eftir aðgerð sem þessa að sögn lækna. Rétt er taka fram að batahorfur eftir slíkar aðgerðir eru góðar. Að sögn Ársæls Kristjánssonar þvagfæraskurðlæknis er algengt að fyrirferð eða æxli greinist í nýrum, eða á milli 40 og 50 tilvik á ári. Stór hluti þessa fólks gengst undir aðgerð. Ef æxlið reynist staðbundið og er numið í burtu eru miklar líkur á að fólk nái sér að fullu. Nýrun eru afar öflug og fullorðinni manneskju nægir að hafa rúmlega þriðjung af öðru þeirra til að það gegni sínu hlutverki. Gallblöðrubólga er einnig algeng en þá er gallblaðran fjarlægð eins fljótt og auðið er. Á þriðja hundrað slíkar aðgerðir eru framkvæmdar á ári hverju. Fólki reiðir yfirleitt ágætlega af og einungis lítill hluti þarf á lyfjagjöf að halda. Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, segir ekki hægt að segja til um hve lengi lengi Davíð verður fjarverandi. Eðlilegt sé að nokkurn tíma taki að ná fullri heilsu. Halldór Ásgrímsson er nú starfandi forsætisráðherra.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira