Öllum reglum fylgt til hlítar 22. júlí 2004 00:01 "
Þessum athugasemdum lögmanna sækjenda á hendur einkavæðingarnefnd er alfarið vísað á bug," segir Stefán Jón Friðriksson hjá fjármálaráðuneytinu vegna gagnrýni þeirrar er fram hefur komið á störf nefndarinnar í seinna útboði ríkisins á hlut sínum í Íslenskum aðalverktökum fyrir rúmu ári síðan. Stefán sem starfar fyrir nefndina segir alveg ljóst að öllum reglum hafi verið fylgt til hlítar í þessu útboði og öllum öðrum sem fyrir nefndina hafa komið. Tvö þeirra fjögurra fyrirtækja sem buðu í þau tæpu 40 prósent sem í boði voru kærðu útboðið til Fjármálaeftirlitsins og hefur lögmaður þeirra látið hafa eftir sér að ekki aðeins hafi allar leikreglur verið brotnar heldur telur hann einnig að ríkissjóður hafi beinlínis verið hlunnfarinn. Segir hann víst að þeir sem á endanum hlutu hnossið, Eignarhaldsfélag AV, hafi haft vitneskju um dulin verðmæti fyrirtækisins sem aðrir höfðu ekki aðgang að. Er þar bent á nokkur stórverkefni sem tilkynnt var um skömmu eftir að útboðsfresti lauk og einnig að verðmæti svokallaðs Blikastaðalands hafi margfaldast við endurmat fyrirtækisins skömmu síðar. Þannig hafi verðmæti Íslenskra aðalverktaka hækkað til muna á skömmum tíma. Hafa nokkrir þingmenn Vinstri grænna ennfremur vakið athygli á þessu og lögðu þeir fram fyrirspurnir til forsætisráðherra á þingi í vor en hann svaraði þeim engu. Einkavæðingarnefnd heyrir undir forsætisráðuneytið. Óháðir aðilar hafa einnig gefið til kynna að undarlega hafi verið staðið að málum. Þannig setti Verðbréfastofa, sem mat tilboðin fyrir hönd einkavæðingarnefndar, spurningarmerki við þátttöku Eignarhaldsfélagsins í útboðinu. Einn fundarmanna nefndarinnar lét bóka í mars á síðasta ári að Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefði gefið sitt álit á þeim tilboðum sem fram voru komin og margir telja ekki ólíklegt að vegna þess hve Fjármálaeftirlitið hefur unnið lengi að rannsókn málsins hafi þeir komist að því að ekki var allt með felldu. Engar upplýsingar var að hafa um framgang rannsóknarinnar þegar eftir því var leitað.
Fréttir Innlent Mest lesið Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Fleiri fréttir Fimm ára drengur var skilinn eftir í bíl Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Sjá meira