Löggæslukostnaður komi frá ríkinu 22. júlí 2004 00:01
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn telur að aðstandendur árvissra viðburða og útihátíða með menningar- og sögulegt gildi eigi ekki að standa straum af tilfallandi löggæslukostnaði. Kostnaður vegna löggæslu í Vestmannaeyjum um verslunamannahelgi hefur verið tvær til þrjár milljónir síðastliðin ár. Löggæslukostnaður hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri er enginn þó þar sé von á þúsundum manna um verslunarmannahelgina, með tilheyrandi álagi á löggæslu því hátíðin þarf ekki skemmtanaleyfi frá lögreglustjóra. Samkvæmt lögum er lögreglustjórum heimilt að binda skemmtanaleyfi því skilyrði að lögreglumenn verði á skemmtistað og leyfishafi greiði kostnað af því. Þegar um viðburði sem ekki kalla á útgáfu skemmtanaleyfis er ekki hægt að rukka þann sem stendur að atburðinum fyrir löggæslukostnað, þrátt fyrir hann falli sannarlega til. Ef sú staða kemur til dæmis upp að löggæslukostnaður verði meiri á Akureyri en í Vestmannaeyjum, verður hann greiddur úr ríkissjóði. Þetta þykir aðstandendum Þjóðhátíðar í Eyjum súrt í broti. Geir Jón segist skilja áhyggjur aðstandenda útihátíða og telur að það sé hægt að fara aðra leið við innheimtu löggæslukostnaðar. "Ég geri greinarmun á hátíðum sem hafa langa hefð og eru árviss viðburður og þeim sem eru haldnar í eitt skipti í von um skyndigróða. Ef vitað er af árvissum viðburði á ákveðnu svæði má skipuleggja fjárheimildir lögreglunnar í ljósi þess svo hægt sé að bregðast við löggæsluþörfinni." Geir Jón telur þetta auk þess stuðla að vönduðum undirbúningi útihátíða sem verði síður fýsilegur kostur sem fyrirtæki til skyndigróða. Stefán Eiríksson hjá dóms- og kirkjumálaráðuneyti segir mikilvægt að hafa í huga að núverandi fyrirkomulag sé í samræmi við skýr ákvæði lögreglulaga. Hann segir að það megi velta fyrir sér ýmsum breytingum á þessu fyrirkomulagi eins og Geir Jón leggur til, en það kalli á lagabreytingar og fram að því verði að fara eftir gildandi lögum.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Sjá meira