Erlent

Solana gagnrýnir Ísrael

Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í heimsókn sinni til Ísrael í gær að aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum bryti í bága við alþjóðalög. Solana fullyrti þetta á blaðamannafundi sem hann og Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, sátu báðir. Fyrir þremur dögum síðan reiddust ísraelsk yfirvöld út í Evrópusambandið fyrir að taka undir ályktun Sameinuðu þjóðanna um að múrinn skuli rifinn. Shalom sagði afstöðu Evrópusambandsins vera sér vonbrigði; með þessu væri það að stuðla að því að Palestínumenn geti ráðskast með Sameinuðu þjóðirnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×