Fleiri fréttir

Fann kannabis á dvalarstað

Kona um fertugt var tekin á Selfossi í fyrrakvöld grunuð um að aka undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Í kjölfarið var gerð húsleit á dvalarstað konunnar og fundust þar sautján grömm af kannabis.

Tíu létust í Pakistan

Tíu létust þegar ráðist var á bílalest hershöfðingja í pakistönsku borginni Karachi. Hershöfðinginn slapp hins vegar lifandi. Miklar róstur hafa verið í borginni undanfarið. Stutt er síðan 25 létust í þriggja daga átökum í kjölfar morðs á klerki í borginni.

Mjög skýr markmið Reagans

"Það var mér alveg ljóst í þessum samtölum að það var ekki tilviljun ein að hann hafði náð þessari lýðhylli og þessum áhrifum í Bandaríkjunum," segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, um Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann ræddi við í opinberri heimsókn til Bandaríkjanna árið 1988.

Endurráðinn í lögregluna

Lögreglumaður, sem sýknaður var í Hæstarétti í síðasta mánuði fyrir ólögmæta handtöku, ranga skýrslugjöf og brot í opinberu starfi, hefur verið endurráðinn hjá lögreglunni.

Kvikmyndamiðstöðin braut reglugerð

Menntamálaráðuneytið hefur fellt úrskurð Kvikmyndamiðstöðvar Íslands um að neita kvikmyndafyrirtækinu Passport um kynningarstyrk vegna myndarinnar Þriðja nafnið úr gildi. Kvikmyndamiðstöðinni er gert að taka málið upp að nýju þar sem ekkert formlegt mat fór fram áður en ákveðið var að hafna umsókninni.

Sjálfsvígum fækkar

Sjálfsvígum bandarískra ungmenna hefur fækkað undanfarin ár og aðferðirnar sem þau beita til þess hafa breyst. Fyrir tólf árum frömdu að meðaltali 6,2 af hverjum hundrað þúsund tíu til nítján ára Bandaríkjamönnum sjálfsvíg. Árið 2001 var tíðnin komin niður í 4,6 sjálfsvíg á hver 100.000 ungmenni.

Endurbætur Reykjanesbrautar

Framkvæmdir eru að hefjast við endurbætur á Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð en Ístak átti lægsta tilboð: 533 milljónir króna. Lækjargötu í Hafnarfirði verður lokað frá og með næsta þriðjudegi en tvöfalda á Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Kaplakrika og á verkinu að vera lokið fyrir 1. nóvember, innan fimm mánaða.

Nýr prestur á Þingvöllum

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur falið sr. Kristjáni Val Ingólfssyni prestsþjónustu í Þingvallaprestakalli til loka ágústmánaðar. Mun hann meðal annars sinna helgihaldi á Þingvöllum yfir sumarmánuðina en það verður með fjölbreyttum hætti og verður leitast við að koma til móts við þarfir þeirra er sækja þennan þjóðarhelgidóm.

Maður um þrítugt í gæsluvarðhald

Maður um þrítugt var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um aðild að stóru fíkniefnamáli, þar sem maður var handtekinn í Leifsstöð 24. maí síðastliðinn með eitt kíló af amfetamíni og annað eins af kókaíni. Meintur samverkamaður var handtekinn síðdegis í fyrradag og yfirheyrður í gær.

Vill fresta skattalækkunum

Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, vill fresta fyrirhuguðum skattalækkunum haldi verðbólga áfram að hækka. Formaður Bandalags háskólamanna, Halldóra Friðjónsdóttir, segir einnig skattalækkanir ekki ráðlegar í haust, þær leiði til frekari niðurskurðar annars staðar í velferðarkerfinu.

Chesterfield vatnið hvarf

Íbúar við Chesterfield-vatn, nálægt Saint Louis í Bandaríkjunum, eru skelfingu lostnir eftir að vatnið þurrkaðist upp og hvarf á aðeins örfáum dögum. Chesterfield vatn var áður 10 hektarar, en eftir miklar rigningar fyrir nokkrum vikum hækkaði vatnsborðið verulega þar til um síðustu helgi að það var sem tappi væri tekinn úr baðkari og vatnið hvarf niður um holu eða öllu heldur niðurfall í því miðju.

Vilja banna umferð jeppa

Jeppaeigendur í París munu eiga um sárt að binda árið 2006 ef nýjar hugmyndir innan borgarstjórnar Parísar ganga eftir um að banna akstur allra jeppa í borginni. Er forsendan sú að létta örlítið á hinni gríðarlegu umferð sem teppir götur borgarinnar oft á dag og eru rökin þau að enginn þurfi á jeppa að halda í borgum.

Færri hross flutt út

Færi hross voru flutt út á fimm fyrstu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þá höfðu verið flutt út 619 hross á móti 591 nú. Ef litið er á útflutning til hinna ýmsu landa hafa verið flutt 30 hross til Austurríkis á móti 17 á sama tíma í fyrra. Samtals 116 hafa farið til Þýskalands nú á móti 91 í fyrra.

Innheimta skatttekna eykst

Innheimta skatttekna ríkisins jókst um 14,4 prósent á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt því sem kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Lést við Bláa lónið

Bandarískur ferðamaður af skemmtiferðaskipi hné skyndilega niður og lést á göngustíg við Bláa lónið í gær. Maðurinn, sem var hjartasjúklingur, kom með rútubíl að Bláa lóninu og var á göngu á stígnum um hraunið milli bílastæðisins og þjónustuhússins.

Kosið á Evrópuþing í dag

19 Evrópuþjóðir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa fullrúa til Evrópuþingsins, en þegar hafa sex af þjóðunum 25 lokið kosningu. Þetta eru fyrstu kosningar eftir stækkun Evrópusambandsins og eru um 350 milljónir manna á kjörskrá.

Fiskifræði Hafró gengur ekki upp

"Þessar tillögur frá Hafrannsóknarstofnun sanna það enn einu sinni að starfsmenn hennar vita ekkert í þennan heim né annan þegar kemur að fiskveiðum," segir Ásgeir Guðbjartsson, fyrrverandi skipstjóri á Ísafirði, vegna tillagna Hafró fyrir næsta fiskveiðiár.

Írar skerða möguleika útlendinga

Írskir kjósendur samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu ríkisstjórnarinnar um að skerða möguleika útlendinga á að hljóta ríkisborgararétt. Enda þótt niðurstaðan hafi verið talin afgerandi þar í landi, hefði hún ekki verið talin gild, ef ýmsar hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi hefðu verið til hliðsjónar.

Deilt á minnisvarða

Yfirvöld í Karelíuhéraði í Rússlandi hafa reist minnisvarða til heiðurs Júrí Andropov, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, sem var um fimmtán ára skeið yfirmaður leyniþjónustunnar KGB. Fjöldi ungmenna mótmælti þessu við afhjúpun minnisvarðans og færði lögregla fólkið á brott.

Fundu 20 ára gamalt lík

Lík karlmanns fannst í yfirgefnu fjölbýlishúsi á dögunum, rúmlega tuttugu árum eftir að hann er talinn hafa látist. Líkið fannst þegar verkamenn voru að ganga frá húsinu til niðurrifs. Ekkert var eftir af manninum nema beinagrindin og náttföt sem hann var klæddur í.

Tíu ára afmæli Reykjanesbæjar

"Besta afmælisgjöfin er líklega mjög góð niðurstaða í svokölluðu Bertelsmannsprófi sem er alþjóðlegur mælikvarði á gæði í stjórnsýslu," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á tíu ára afmæli bæjarins í gær.

Metaðsókn í Kennaraháskólann

Annað árið í röð er metaðsókn í Kennaraháskóla Íslands. Nemendur skólans er nú rúmlega 2300 og hefur fjölgað verulega á síðustu árum, að því er segir í frétt fá skólanum. Umsóknir um nám hafa aldrei verið fleiri en nú í vor. Því miður verður aðeins hægt að bjóða tæplega helmingi þessa hóps skólavist vegna fjárhagsramma skólans.

Þrjár hrefnur veiddar

Búið er að veiða þrjár hrefnur það sem af er sumri af þeim 25 sem stendur til að veiða í ár. Í fyrra tók það þrjú skip hálfan annan mánuð að veiða dýrin. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Hafró eru dýrin af svipaðri stærð og þau sem veiddust í fyrra en þau þóttu í magrara lagi.

Lítill drengur með eldspýtur

Lítill drengur sem var að fikta með eldspýtur, kveikti í rúminu sínu í kjallaraíbúð í fjölbýli við Flókagötu. Slökkviliðinu var tilkynnt um brunann fimm mínútur yfir átta í gærkvöldi og hafði lokið störfum tuttugu mínútum síðar. Reykkafarar slökktu eldinn og reykræsta þurfti íbúðina. Töluvert miklar skemmdir urðu á herbergi drengsins.

Dómur kveðinn upp á morgun

Dómur í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa, gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Jón Ólafsson stefndi Davíð skömmu fyrir áramót vegna ummæla sem féllu í viðtali við Ríkisútvarpið eftir að Jón hafði selt eigur sínar hér á landi með milligöngu Kaupþings-Búnaðarbanka.

Eldur á Flókagötu

Slökkvilið var kvatt að húsi við Flókagötu í Reykjavík í gærkvöldi en þar logaði eldur í rúmdýnu í lítilli íbúð. Eldurinn barst ekki út fyrir dýnuna og tókst fljótlega að kæfa hann. Mikill svartur reykur myndaðist hins vegar í íbúðinni, enda var þetta svampdýna sem brann, en íbúana sakaði ekki. Talið er að barn hafi kveikt í dýnunni.

Bílstuldur á Selfossi

Gestkomandi fólk á Selfossi kemst nú ekki til síns heima þar sem jeppanum þeirra var stolið fyrir utan hús ættingja þeirra í gærmorgun. Jeppinn er vínrauður á litinn af gerðinni Mitsubishi Pajero, árgerð 1990. Númer bílsins er SK-268. Lögreglan á Selfossi biður þá sem hafa orðið varir við bílinn að hafa samband.

Esjudagur fjölskyldunnar

Árlegur Esjudagur fjölskyldunnar er í dag en eins og nafnið gefur til kynna felst hann í því að ganga á Esju, borgarfjall Reykjavíkur. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis stendur fyrir Esjudeginum og er þetta sjötta árið í röð sem hann er haldinn. Í tilkynningu frá Sparisjóðnum segir að þetta sé sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem hver og einn geti fundi eitthvað við sitt hæfi.

Þorskeldi við hlið stóriðju

 Tvær fiskikvíar í Hvalfirði gegnt álveri Norðuráls hafa vakið athygli margra vegfarenda um Hvalfjörðinn síðustu mánuði og hafa þeir bent Fréttablaðinu á að fyrir utan nálægð álversins við kvíarnar séu viðkvæmar laxveiðiár í grenndinni. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er þarna um þorskeldi að ræða í annarri kvínni en hin stendur auð. 

HIV-sýkt börn eftir blóðgjöf

Eftirlit með indverskum blóðbönkum hefur verið hert til muna eftir að fregnir bárust af því að 30 börn hefðu smitast af HIV-veirunni við blóðgjöf á síðustu þremur árum. Fjölmiðlar í Kalkútta greindu frá því að börn niður í þriggja ára hefðu smitast en alls eru 58 blóðbankar starfræktir á vegum yfirvalda í Kalkútta.

Bæjarstjóri sýknaður

Líkurnar á því að Jason West, bæjarstjóri í New Paltz í New York-ríki, fari í fangelsi fyrir að gefa samkynhneigð pör saman minnkuðu heldur þegar dómari vísaði ákæru á hendur honum frá dómi. Ákæruvaldið getur þó áfrýjað úrskurðinum.

Geta haft ungabörn í fangelsinu

Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri innan fangelsisveggja, segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur og starfsmaður Fangelsisstofnunnar. Ófrísk kona var handtekin í Leifsstöð með 5.005 E-töflur í bakpoka á föstudag. Hún verður í einangrun á Litla-Hrauni til tveggja vikna og á fjögurra til sex ára dóm yfir höfði sér verði hún sakfelld.

Reykingalöggjöf hafnað?

Frjálshyggjufélagið hvetur stjórnvöld til að hafna öllum hugmyndum um sérstaka löggjöf um reykingar í fréttatilkynningu sem félagið sendi út. Þar segir að slík löggjöf sé óþörf þar sem eignarréttur leysi allan þann vanda sem reykingar kunna að valda öðrum en reykingamönnum.

KB banki styrkir námsmenn

Fimmtán námsmenn sem stunda nám á háskólastigi hafa fengið 200 þúsund kr. hver úr Námsmannalínu KB banka en styrkirnir eru veittir árlega. Er þetta fjórtánda árið sem bankinn veitir styrki úr Námsmannalínunni.

Bændur hafa áhyggjur af kálfadauða

Kálfadauði er vaxandi vandamál á íslenskum búum og hefur aukist umtalsvert allra síðustu ár. Baldur H. Benjamínsson, nautgriparæktarráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, segir það ekki hafa verið fyrr en fyrir um áratug síðan að meira fór að bera í milli í samanburði við önnur lönd.

Bush eldri áttræður

George H.W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar sér að halda upp á 80 ára afmæli sitt með því að fara í fallhlífarstökk um helgina.</font />

Danir rannsaka fangamisþyrmingar

Dönsk hermálayfirvöld hafa fyrirskipað rannsókn á ásökunum Dana, sem vann sem túlkur fyrir danska og bandaríska hermenn í Afganistan, þess efnis að hann hafi séð fanga pyntaða og myrta. Maðurinn sagði frá þessu skömmu eftir að myndir hófu að birtast af illvirkjum bandarískra hermanna í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.

Krafðist sex milljóna í bætur

Kjötvinnsla var sýknuð af rúmlega sex milljóna króna skaðabótakröfu, í Héraðsdómi Reykjavíkur, vegna slyss sem fyrrverandi starfskona varð fyrir á vinnustaðnum. Konan steig á mottu í kjötvinnslunni sem rann undan fæti hennar þannig að hún skall af nokkru afli í gólfið á hægri öxl. Bæklunarlæknir segir konuna bera varanlegan skaða sökum fallsins.

Íraskur ráðherra myrtur

Bassam Salih Kubba, varautanríkisráðherra hinnar nýju Íraksstjórnar, var skotinn til bana á leið sinni til vinnu í gær. Talið er að stuðningsmenn Saddams Hussein hafi myrt hann.

R-listinn að verða lítil klíka

"Auðvitað er það áhyggjuefni að þreyta komi í samstarf sem er á þriðja kjörtímabili. Það er eitt stærsta verkefnið fyrir okkur sem starfa fyrir og styðja Reykjavíkurlistann að verða ekki valdþreytunni að bráð," segir Helgi Hjörvar þingmaður og einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Reykjavíkurlistans í helgarviðtali við Fréttablaðið í dag.

Leitað að samverkamönnum

Ekki er hægt að greina frá framvindu rannsóknar í máli ófrískrar konu á þrítugsaldri, sem handtekin var á föstudag með 5.005 E-töflur í bakpoka, þar sem hún er í einangrun, segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Hann segir rannsóknina beinast að því að upplýsa hverjir samverkamenn konunnar séu.

Nóbelsverðlaunahafi styður Ástþór

Oscar Arias Sanches, fyrrverandi forseti Kosta Ríka og handhafi friðarverðlauna Nóbels, hefur lýst yfir stuðningi sínum við Ástþór Magnússon forsetaframbjóðanda. Sanches telur að vægi smáþjóða til að stuðla að friði sé heilmikið.

Konur geta haft börn í fangelsi

Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri innan fangelsisveggja, segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur og starfsmaður Fangelsisstofnunnar. Ófrísk kona var handtekin í Leifsstöð með 5.005 E-töflur í bakpoka á föstudag.

Ætla að halda áfram árásum

Háttsettur leiðtogi palestínsku Hamas-samtakanna, Mahmoud Zahar, sagði í gær að samtökin myndu halda áfram árásum sínum á Ísrael hvort sem Ísraelar drægju herlið sitt frá Gazaströndinni eða ekki. Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qureia heimsótti Gaza í gær til samráðsfundar við háttsetta heimamenn um framtíð svæðsins.

Færeyingar elska pitsur

Færeyingar hafa tekið miklu ástfóstri við pitsur og sódavatn og hefur færeyski landlæknirinn af þessu miklar áhyggjur enda hefur neysla á þessum vörum tífaldast á síðustu átta árum. Hann telur þýðingarmikið að koma á framfæri skilaboðum um skaðsemi þessarar neyslu og hefja fyrirbyggjandi aðgerðir sem fyrst.

Sjá næstu 50 fréttir