Maður um þrítugt í gæsluvarðhald 13. júní 2004 00:01
Maður um þrítugt var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um aðild að stóru fíkniefnamáli, þar sem maður var handtekinn í Leifsstöð 24. maí síðastliðinn með eitt kíló af amfetamíni og annað eins af kókaíni. Meintur samverkamaður var handtekinn síðdegis í fyrradag og yfirheyrður í gær. Það leiddi síðan til þess að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Umræddur maður er af höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur áður komið við sögu í fíkniefnamálum og verið dæmdur fyrir. Upphaf þessa máls er að Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli fann fíkniefnin við eftirlit á íslenskum manni sem var að koma frá Kaupmannahöfn þann 24. maí. Hafði hann falið efnin innanklæða á nokkrum stöðum en hafði ekki límt þau á líkamann eins og gjarnan er gert þegar um er að ræða tilraunir til smygls af þessu tagi. Maðurinn reyndist vera með eitt kíló af kókaíni og eitt kíló af amfetamíni. Er þetta mesta magn þessara efna sem einn maður hefur reynt að smygla inn í landið til þessa. Hann var úrskurðaður í 3 vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur daginn eftir komuna til landsins. Umræddur maður er 39 ára. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur hann gerst brotlegur við lög áður. Fíkniefnalögreglan verst frekari frétta af málinu, en rannsókn stendur enn yfir.
Fréttir Innlent Mest lesið Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Farþeginn enn í haldi lögreglu Innlent Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Ummæli Þórunnar dapurleg Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Fleiri fréttir Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Sjá meira