Fleiri fréttir

Keyrði út í tjörn

Betur fór en á horfðist þegar bíll keyrði út í tjörn rétt fyrir utan Flateyri á fimmta tímanum í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði fór allur bíllinn í kaf og tókst ökumanninum með naumindum að koma sér út úr bílnum. Hann þykir hafa sloppið ótrúlega vel og er lítið lemstraður.

Kostnaður hugsanlega ofmetinn

Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins nær kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin ekki fjörutíu milljónum. Forsætisráðherra hefur sagt við fjölmiðla að hann telji að kostnaðurinn muni verða á bilinu 100-200 milljónir.

Guðrún Vera hlýtur styrk

Guðrún Vera Hjartardóttir hlaut 250 þúsund króna styrk fyrir framlag sitt til myndlistar úr minningarsjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna og var afhentur við opnun Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í gær.

Hneyksli skekur stjórnvöld

Fyrir þrettán árum síðan var sú ákvörðun tekin af áströlskum stjórnvöldum að láta almenning ekki vita að blóð í blóðbönkum á ákveðnum svæðum í landinu væri líklega sýkt af lifrarbólgu C. Afleiðingar þessa eru að yfir 20 þúsund manns hafa smitast af veirunni og eru aðeins átta þúsund þeirra enn á lífi.

Dómur hjá Davíð og Jóni í dag

Í dag verður kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem Jón Ólafsson kaupsýslumaður, kenndur við Skífuna, höfðaði gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrir meiðyrði.

Ráðist á lögreglu á N-Írlandi

Kaþólsk ungmenni réðust að lögreglu vopnuð bensínsprengjum, múrsteinum, grjóti og blöðrum fylltum af málningu. Árásin var gerð þegar lögreglumennirnir fluttu atkvæði sem voru greidd í Belfast til talningar.

Sýslumaður setur lögbann

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur sett lögbann við sölu á bætiefninu Life Extension sem heildverslunin Arnarvík ehf. hefur selt til verslana Bónus undanfarnar vikur. Heildsalan Celsus heilsu- og hjúkrunarvörur ehf. krafðist lögbannsins, en hún hefur í nokkur ár flutt inn vörur undir sama heiti og telur sig hafa öðlast vörumerkjavernd á heitinu og umbúðum varanna.

Dóttir Saddams vill aftur heim

"Ef aldur væri mældur í angist og depurð hefði ég orðið áttræð í dag," sagði Raghad, elsta dóttir Saddams Hussein, í samtali við kvennatímaritið Sayidaty. Hún segir líf sitt hafa verið fullt af andlegri þjáningu og að hún myndi snúa aftur til Íraks ef hún ætti þess kost. Skilaboð hennar til föður síns væru einföld: "Ég elska þig."

Minna fylgi við aðild

Stuðningur við aðild Noregs að Evrópusambandinu hefur minnkað mjög síðasta mánuðinn, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birtist í Aftenposten. Nú segjast 52 prósent þeirra sem taka afstöðu vera fylgjandi aðild en voru 59 prósent fyrir mánuði.

Fjöldi vopna óskráður

Alls eru 71 skotvopn stolið eða týnt samkvæmt upplýsingum úr skotvopnaskrá Ríkislögreglustjóra, þar af hafa sextán glatast síðan árið 2000. Samkvæmt skránni eru um 50.000 skráð skotvopn á landinu.

Aðstæður móður ekki metnar

Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að Tryggingastofnun ríkisins hafi ekki metið megin málaðstæður þegar hún synjaði móður í fullu námi við HÍ um fæðingarstyrk veturinn 2001 til 2002. Forsendur Tryggingastofnunar voru að konan hefði ekki lokið tilskildum einingafjölda.

Brotthvarfi verði flýtt

Ísraelska ríkisstjórnin gæti byrjað að bjóða landtökumönnum á Gaza bætur fyrir að flytja þaðan þegar í næsta mánuði, þrátt fyrir að stjórnin hafi ekki ákveðið endanlega að flytja landnema á brott. Samkvæmt tímaáætlun sem var birt á fimmtudag var ekki gert ráð fyrir að bótagreiðslur hæfust fyrr en í ágúst.

McCain ekki með Kerry

Repúblikaninn John McCain hefur sagt John Kerry, forsetaefni demókrata, að hann myndi ekki þiggja útnefningu sem varaforsetaefni hans. AP-fréttastofan hefur þetta eftir ónafngreindum ráðamönnum í Demókrataflokknum.

Ástþór vill fresta kosningum

Ástþór Magnússon hefur kært Ríkisútvarpið til Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fyrir "grófa ritskoðun og alvarlegt brot" á þeim reglum sem séu við lýði. Vísar Ástþór í viðtal sem Kastljós tók við þýska fræðimanninn Dietrich Fischer í maí og sendi út í fyrrakvöld.

Nýr kafli að hefjast

<font face="Helv"> </font>Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti Íraksályktun Bandaríkjamanna og Breta í gærkvöldi með atkvæðum allra fimmtán ríkjanna sem eiga sæti í ráðinu. Ályktunin hefur tekið allnokkrum breytingum frá því hún var upphaflega lögð fram fyrir tveimur vikum.

Lýðræðið fótum troðið

"Þessar niðurstöður eru svo sem ósköp eðlilegar því að ég fæ ekkert að koma málefnum framboðsins til skila," segir Ástþór Magnússon, sem mældist með 0,6 prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Ráðherra fyrir borð

Ríkisstjórn Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, tapaði þingmeirihluta sínum í gær þegar húsnæðisráðherrann Effie Eitam sagði af sér í mótmælaskyni við samþykkt stjórnarinnar um brotthvarf frá Gaza.

Íranar sæta gagnrýni

Íranar eru gagnrýndir í ályktunartillögu sem Bretland, Frakkland og Þýskaland hyggjast leggja fyrir Alþjóða kjarnorkumálastofnunina.

RÚV kært til ESA vegna ruv.is

Eftirlitsstofnun evrópska efnahagssvæðisins, ESA, hefur til skoðunar kæru vegna reksturs Ríkisútvarpsins á ruv.is. Þetta er önnur kæran á hendur RÚV sem ESA hefur til skoðunar. Fyrri kæran barst frá Norðurljósum þar sem óskað var eftir því að kannað yrði hvort RÚV hafi rétt á að innheimta skylduáskriftargjöld auk þess að fá rekstrarfé af auglýsingatekjum.

Bannað að birta úrslit

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tilkynnt hollenskum stjórnvöldum að hún kunni að kæra þau ef úrslit úr kosningum til þings Evrópusambandsins verða birt á fimmtudag eins og búist er við.

Varað við sprengingum

Búið er að gefa út tilkynningu meðal íbúa í Hlíðahverfi um að vegna framkvæmda við færslu Hringbrautar megi búast við sprengingum og titringi samfara þeim.

Hrapaði í fjöruborðinu

Í það minnsta fjórtán manns létu lífið þegar farþegaflugvél hrapaði í Atlantshafið rétt undan strönd Afríkuríkisins Gabon.

Blóðugur bardagi

21 talibani lét lífið í bardögum við bandaríska og afganska hermenn í suðurhluta Afganistans. Fimm bandarískir hermenn og tveir afganskir særðust í bardaganum, sem braust út eftir að talibanarnir gerðu hermönnunum fyrirsát.

Skotið á bíl í Breiðholti

Skotið var á bíl á plani fjölbýlishúss í efra Breiðholti í gær. Skotið, sem fór í afturbretti bílsins, er 22 kalibera og er talið að því hafi verið skotið af stuttu færi.

Endurskoða aflareglu í þorski

Hafrannsóknastofnunin telur afar brýnt að endurskoða hið fyrsta þá aflareglu sem notuð er vegna þorskveiða hérlendis, þar sem reynslan sýni að afli undanfarinna ára hafi ekki verið í samræmi við markaða nýtingarstefnu íslenskra stjórnvalda.

Ekki ætlunin að ræða frumvarp

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að nefndin sem skipuð var um löggjöf um þjóðaratkvæðagreiðslu muni starfa fullkomlega sjálfstætt.

Halldór vill samstöðu

"Af lyktum fundarins er augljóst að forsætisráðherra hefur ekki minnsta áhuga á að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu og komandi þinghald," segir Össur Skarphéðinsson

Stuttur kveikur í húsráðanda

"Við hófum umræður um þessi mál og það er ljóst að það er afskaplega stuttur kveikurinn í þeim sem ráða ríkjum í þessu húsi hér," sagði Ögmundur Jónasson.

Kosið um lögin í byrjun ágúst

Alþingi verður kallað saman mánudaginn 5. júlí þar sem ákveðið verður fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram í byrjun ágúst.

Forsendur kjarasamninga í hættu

Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga í hættu þar sem verðbólga sé langt umfram þau mörk sem sett hafi verið. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði og jafngildir hækkunin undanfarna þrjá mánuði níu prósenta verðbólgu á ársgrundvelli.

Kynningin heldur áfram

"Ég er svolítið hissa á þessum niðurstöðum," segir Baldur Ágústsson, sem mældist með fimm prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Ólafur með mesta fylgi

Tæplega tveir af hverjum þremur Íslendingum hyggjast kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningunum sem fram fara þann 26. júní næstkomandi.

Alltaf einhverjir í viðtölum

"Við geðlæknarnir í nefndinni erum alltaf með einstaklinga, sem við erum að meta, í viðtölum" sagði Óttar Guðmundsson geðlæknir, sem sæti á í nefnd landlæknisembættisins sem metur stöðu þeirra sem óska eftir að fara í kynskiptiaðgerð.

Milljónir þurfa hjálp

Milljónir Norður-Kóreumanna líða skort og þarfnast læknishjálpar, sagði Alistair Henley, fulltrúi Rauða krossins í Peking, höfuðborg Kína.

Karatemeistari ákærður

Karatemeistari í Svartfjallalandi hefur verið ákærður fyrir morð á ritstjóra stjórnarandstöðublaðs í landinu.

Múraður úti

Íbúar fjögurra íbúða fjölbýlishúss við Spítalastíg hafa fengið dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur vegna áralangra deilna um eignaraðlid á forstofu. Árið 1994 keypti stefnandi íbúð í húsinu með leyfi til að færa vegg í forstofunni um hálfan metra og stúka svæði íbúðarinnar af.

Poppkorn í sjóinn

Norðmenn eru farnir að nota nýtt efni við æfingar gegn olíuleka í sjó. Efnið sem þeir telja hentugast til að líkja eftir olíuslikju, án þess að hafa neikvæð áhrif á umhverfið, er poppkorn.

Stal 3,6 milljónum

Maður fæddur 1975 hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir þjófnaði og fjársvik. Maðurinn braust inn á heimili við Langholtsveg í september í fyrra og hafði með sér innbú að værðmæti 700 þúsund krónur.

Fylgst með nýjum reinum

"Það er vel fylgst með því að ekki sé urðað hærra í nýjum reinum heldur en deiliskipulag segir til um," sagði Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi sveitarfélagsins Ölfuss, vegna ágreinings sem uppi er um urðun Sorpstöðvar Suðurlands.

Tvær kynskiptiaðgerðir á Íslandi

Það er Jens Kjartansson, lýtalæknir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, sem framkvæmdi báðar aðgerðirnar fyrir allnokkru síðan. Hann vann á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi áður en hann hóf störf hér heima.

Rúmlega 1000 undirskriftir

Átakshópurinn gegn færslu Hringbrautar hefur ákveðið að halda úti yfirstandandi undirskriftasöfnun til miðnættis 21. júní á forsíðu <a href="http://www.mbl.is">www.mbl.is</a> og <a href="http://www.tj44.net/hringbraut/">www.tj44.net/hringbraut/</a>.

Borgarstjóri hættir

Borgarstjóri Kaupmannahafnar, Jens Mikkelsen, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í næstu kosningum en hann hefur gegnt embættinu síðan árið 1989.

Réttlættu beitingu pyntinga

Greinargerð sem bandaríska dómsmálaráðuneytið sendi Hvíta húsinu í ágúst 2002 gefur til kynna að stjórnvöld hafi verið reiðubúin að leggja blessun sína yfir að meintir hryðjuverkamenn yrðu pyntaðir.

Allir á brott innan fimmtán mánaða

Ísraelsstjórn mun greiða þeim landtökumönnum sem flytja sjálfviljugir frá Gaza bætur frá og með ágústmánuði. Þeir landnemar sem verða ekki horfnir á braut ári síðar verða reknir burt með valdi samkvæmt tímaáætlun sem hefur verið lögð fram um brotthvarf Ísraela frá landnemabyggðum á Gaza.

Bjargað af djöflinum

Starfsmaður sirkuss, í gervi djöfulsins, kom sænskum dreng til bjargar eftir að sá síðarnefndi féll út úr einu leiktækjanna. Drengurinn greip í leiktækið og hékk í því, tíu metra uppi í lofti.

Sjá næstu 50 fréttir