Fótbolti

Sungu jóla­lag há­stöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin

Sindri Sverrisson skrifar
Gleðin var við völd hjá stelpunum okkar eftir að þær völtuðu yfir Króatíu. Nú er aðeins eitt einvígi eftir um sæti á HM en það er við sterkt lið Portúgals.
Gleðin var við völd hjá stelpunum okkar eftir að þær völtuðu yfir Króatíu. Nú er aðeins eitt einvígi eftir um sæti á HM en það er við sterkt lið Portúgals. Samsett/Instagram/Anton

Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu geta fagnað vel og lengi í kvöld eftir stórsigurinn gegn Króötum. Þær fögnuðu meðal annars með því að kyrja jólalag í gleðivímu á Laugardalsvelli.

Næst á dagskrá hjá íslenska liðinu eru tveir leikir við Portúgal í hreinu úrslitaeinvígi um að komast á HM 2027 í Brasilíu sem gæti orðið fyrsta heimsmeistaramót stelpnanna okkar. Fyrri leikurinn við Portúgal verður ytra í lok nóvember.

Seinni leikurinn við Portúgal verður svo á Laugardalsvelli í jólamánuðinum og vonandi hafa stelpurnar þá ástæðu til að fagna sigri með jólalagi eins og þær gerðu í kvöld þegar lagið „Komdu um jólin“, úr smiðju Gunnars Ólasonar, ómaði um Laugardalinn eins og sjá má.

Núna eru einvígin átta í HM-umspilinu klár en sigurliðið í hverju einvígi mun komast inn á HM í Brasilíu. Áður hafa Spánn, Danmörk, Þýskaland og Frakkland tryggt sig inn á mótið fyrst Evrópuþjóðanna.

Einvígin átta um sæti á HM:

  • Portúgal - Ísland
  • Úkraína - England
  • Finnland - Ítalía
  • Wales - Noregur
  • Sviss - Austurríki
  • Skotland - Svíþjóð
  • Pólland - Írland
  • Slóvenía - Holland

Lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur í Belgíu féllu úr leik í kvöld með tapi í vítaspyrnukeppni í æsispennandi einvígi við Pólverja sem spila því við Írland um sæti á HM.

Liðin komust annars flest nokkuð þægilega áfram í seinni umferð umspilsins og var langmesta spennan í einvígi Belgíu og Póllands.

Holland vann Ungverjaland 3-0 í kvöld og samtals 11-0, Írland vann 4-0 gegn Kasakstan og samtals 12-0, England vann Grikkland 5-0 og samtals 8-1, Skotland vann Tékkland 3-2 og samtals 5-2, Wales vann Albaníu 3-0 og samtals 4-0, Sviss vann Ísrael 2-0 og samtals 9-3, Svíþjóð vann Litháen 10-0 og samtals 15-0, Ítalía gerði 1-1 jafntefli við Hvíta-Rússland en vann einvígið 3-1, Austurríki vann Kósovó 4-0 og samtals 6-1, Finnland vann Serbíu 3-1 og samtals 6-2, Noregur vann Rúmeníu 6-0 og samtals 8-0, Úkraína vann Slóvakíu 1-0 og samtals 4-1, og Slóvenía vann Tyrkland 2-0 og samtals 5-3.


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum

Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM.

Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum

Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna.

Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.

„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“

Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok.

„Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, var afar sáttur með frammistöðu leikmanna í 5-0 sigri gegn Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland vann einvígið samtals 9-0 og mun liðið mæta Portúgal í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu 2027.

„Ég tek því hlutverki sem mér er gefið“

Íslenska kvennalandsliðið sigraði Króatíu, 5-0,  á Laugardalsvelli í kvöld. Diljá Ýr Zomers kom inn af varamannabekknum og lét heldur betur til sín taka þegar hún skoraði tvö mörk á lokamínútunum. Frábær innkoma sem gæti gefið Steina, landsliðsþjálfara,  hausverk þegar kemur að vali á byrjunarliðinu í næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×