„Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. október 2026 20:38 Þorsteinn H. Halldórsson var sáttur með frammistöðu liðsins en næstu skref eru að undirbúa liðið fyrir einvígið gegn Portúgal. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, var afar sáttur með frammistöðu leikmanna í 5-0 sigri gegn Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland vann einvígið samtals 9-0 og mun liðið mæta Portúgal í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu 2027. „
Mér fannst við byrja leikinn frábærlega. Fyrri hálfleikur var góður heilt yfir og við áttum auðvitað að skora þarna í byrjun, við fengum fullt af færum. Seinni hálfleikur byrjaði líka bara vel. Þannig að frammistaðan heilt yfir í dag fannst mér góð og var fagmannleg,“ sagði Steini á blaðamannafundi eftir leikinn. Ída Marín Hermannsdóttir og Katla Tryggvadóttir voru öflugar í dag og skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk. Steini var sáttur með framlag nýliðana og leikmanna í leiknum. „Mér fannst bara framlag allra leikmanna í dag jákvætt og leikmenn að taka jákvæð skref. Ég var ánægður með marga leikmenn sem voru að gera vel og af þeim sem hafa spilað færri landsleiki þá fannst mér þær grípa tækifærið og gera vel.“ Ísland mun spila úrslitaeinvígið gegn Portúgal en Ísland tapaði einmitt gegn Portúgal í hreinum úrslitaleik um sæti á HM árið 2023. Það eru því margir sem vilja hefna fyrir það súra tap. „Við förum kannski á fimmtudaginn að byrja að skoða Portúgal og fara yfir allt. Það er bara vinna framundan að undirbúa sig undir Portúgal.“ Steini óttast þó ekki að minningar um svekkjandi einvígi liðanna muni hafa áhrif á leikmenn liðsins enda dvelji þau ekki í fortíðinni. „Hver leikur og hvert einvígi á sitt líf, það þýðir ekkert að dvelja við eitthvað svona. Þetta snýst bara um nútímann og það eru þið [blaðamenn] og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina.“ Að lokum var Steini spurður út í Glódísi Perlu Viggósdóttur sem spilaði sinn 150. landsleik í kvöld. Glódís Perla tekur við viðurkenningunni úr hendi Þorvalds Örlygssonar, formanns KSÍ.Vísir/Anton Brink „Glódís er bara leiðtogi í liðinu og það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hún sé hérna. Hún er bara flottur fyrirliði, flott persóna og líka frábær leikmaður sem er náttúrulega aðalatriðið. En það er líka kostur að vera með leikmann sem er fyrirmynd innan og utan vallar og tekur af skarið í hópnum og er kröfuhörð á alla í kringum sig.“
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Sjá meira