Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2026 10:48 Sigmar segir fífldjarft að láta sér detta í hug að sækjast eftir formannsembættinu í Framsókn en varaformaðurinn... þar er hann óræður. Vísir/Vilhelm „Mér finnst það mjög galið að ætla að stíga inn á sjónarsviðið beint inn í formannssætið í elsta og virtasta flokki landsins,“ segir Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir formannsembættinu í Framsóknarflokknum.
Orðrómur hefur verið uppi um mögulega stjórnmálaþátttöku Sigmars og hann segist ekki geta farið leynt með það að menn hafi komið við hann að máli, eins og þeir segja gjarnan sem eru við það að detta inn í pólitíkina. Sigmar er bæði skráður í Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn og hefur raunar daðrað við þriðja flokkinn til viðbótar, ef horft er til síðustu fimm kosninga segir hann. „Ég er klárlega miðju-hægrimaður,“ segir hann. „Þó ég vilji nú meina að allir flokkar í dag séu orðnir miðjuflokkar,“ bætir hann við. Nei, hann virðist ekki á leið í formanninn samkvæmt því sem hann segir og hann hefur ekki áhuga á að láta til sín taka á sveitarstjórnarstiginu. Þó útilokar hann ekki að það muni bera til tíðinda af honum í tengslum við pólitík á þessu ári. Ok... hvað þá með varaformanninn; er hann að horfa á varaformannsembættið í Framsókn? „Það er alveg spennandi,“ segir hann. „Það sem hefur kannski vafist fyrir mér þegar kemur að stjórnmálum er að ég er ekkert endilega aftursætisbílstjóri.“ Sigmar segist leitast eftir því að vera í leiðtogahlutverki; í forystunni. Áfram heldur spjallið og hann fer í krúsídúllur undan spurningunni eins og köttur í kringum heitan graut. Ætlar hann að sækjast eftir varaformannsembættinu? „Varaformannsembættinu? Æ, ég veit ekki með það. Ég veit ekki hvort þetta er tímapunkturinn,“ segir hann en frekar ósannfærandi ef satt skal segja. „Ég alla vega kann þetta ekki,“ segir hann um pólitíkina. „Ég er algjörlega blautur á bakvið eyrað.“ Rammpólitískur er hann þó, að eigin sögn, og hefur sterkar skoðanir. Íslendingar séu eilíft að þvælast fyrir sjálfum sér, „þegar hlutirnir þurfa ekkert að vera svo flóknir. Við erum lítið og fallegt land og mér finnst við oft ekki nýta okkur kosti þess.“ Þá vitnar hann til samtals sem hann átti við Vigdísi Finnbogadóttur forseta fyrir mörgum árum. „Hún sagði: Það tekur þjóð 100 ár að verða fullþroska. Og við eigum eftir að þurfa að ganga í gegnum ýmsa siðbót. Spillingarmál... við eigum eftir að ganga í gegnum alls konar áður en við verðum fullþroska þjóð,“ hefur Sigmar eftir frú forseta. „Mér finnst margt í þessu samtali hafa raungerst,“ bætir hann við. „Við erum fljótfær þjóð, sem einkennir líka unglinga og óþroskaða einstaklinga.“
Framsóknarflokkurinn Mest lesið Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Fleiri fréttir Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Sjá meira