Fótbolti

Ísraelskir blaða­menn þjörmuðu að Åge

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Åge Hareide sést hér á hliðarlínunni með íslenska landsliðinu.
Åge Hareide sést hér á hliðarlínunni með íslenska landsliðinu. Getty/Octavio Passos

Ísraelskir blaðamenn spurðu íslenska landsliðsþjálfarann út í stríðið á milli Ísraels og Hamas-samtakanna á blaðamannafundi liðsins fyrir mikilvægan leik á morgun. Fundurinn var fljótur að verða pólítískur og ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Åge Hareide landsliðsþjálfara.

Á morgun munu Ísrael og Ísland mætast í undanúrslitum umspils um sæti á EM 2024. Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðsins, ræddi við blaðamenn í Búdapest í hádeginu ásamt Jóhanni Berg Guðmundssyni fyrirliða landsliðsins.

Það var fljótt ljóst að ísraelskir blaðamenn voru mættir á fundinn til að þjarma að norska þjálfaranum.  Þeir vildu spyrja hann út í ummæli sín um stríðið. Åge sagðist ekki sjá eftir ummælum sínum þegar hann var spurður um ummæli sín varðandi stríðið í Gasa.

Klippa: Ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Age Hareide á fundinum

„Ég kem frá þjóð þar sem er málfrelsi. Stundum verður ruglingur í þýðingu. Ég hef áhuga á pólitík og veit allt um gíslana (hjá Hamas)," segir Hareide og heldur áfram að útskýra mál sitt. „Ég hef ekkert á móti Ísraelsmönnum," sagði Hareide.

Fleiri spurningar komu um stöðuna á Gasa og hvort hann skilji stöðuna. „Ég held að það sé ekki sanngjarnt að fara út í pólitíska umræðu núna. Ég vildi bara segja að við verðum að spila þennan leik, og að við erum bara að spila við knattspyrnumenn en ekki ísraelsku þjóðina," sagði Hareide.

Hareide fékk líka spurningu frá sænskri blaðakonu um hvort til greina hafi komið að sniðganga leikinn. „Nei, við höfum ekki rætt það. Við höfum ekki átt neinar pólitískar samræður varðandi þetta. UEFA og þeir sem ráða í fótboltanum verða að ákveða þetta. Við erum fótboltamenn og ráðum því ekki hvað pólitíkusarnir gera," segir Hareide.

Klippa: Blaðamannafundur Íslands í Búdapest

Leikur Ísraels og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport á morgun. Upphitun hefst tíu mínútur yfir sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×