Upp­gjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum

Andri Már Eggertsson skrifar
KR hefur farið vel af stað í haust.
KR hefur farið vel af stað í haust. vísir/diego

Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu 18 stiga sigur gegn KR-ingum 97-115. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar settu í annan gír í seinni hálfleik sem skilaði sigri. 

Leikurinn fór vel af stað. Bæði lið skiptust á körfum og jafnræði var með liðunum. Heimakonur áttu fyrsta áhlaup kvöldsins þegar þær fundu takt á báðum endum vallarins og gerðu tíu stig gegn aðeins einu hjá Njarðvíkingum og komust sex stigum yfir.

KR-ingar voru í bílstjórasætinu eftir gott áhlaup og voru fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta 25-20.

Íslandsmeistararnir minntu á sig í öðrum leikhluta. Það var allt annað að sjá liðið og eftir átta stig í röð fékk Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, nóg og tók leikhlé. Njarðvíkingar létu það ekki slá sig út af laginu og juku forskot sitt eftir leikhlé Daníels. KR-ingar héldu sér inni í leiknum á vítalínunni á meðan allt gekk upp í hröðum leik Njarðvíkur.

Dazia Lawrence, leikmaður KR, endaði fyrri hálfleik á flautuþristi og munurinn var aðeins eitt stig í hálfleik 49-50.

Íslandsmeistararnir sýndu klærnar í þriðja leikhluta og gerðu 33 stig. Heimakonur voru í miklum vandræðum með hreyfanlegan sóknarleik Njarðvíkinga þar sem boltinn gekk hratt á milli og aukasendingin skilaði opnum skotum. Gestirnir gerðu síðustu níu stigin í leikhlutanum og staðan var 67-83 farandi inn í fjórða leikhluta.

Njarðvíkingar gáfu ekkert eftir í fjórða leikhluta og gáfu heimakonum aldrei von um að gera síðasta fjórðung spennandi. Leikurinn endaði með 18 stiga sigri Njarðvíkur 97-115.

Atvik leiksins

Njarðvík gerði síðustu níu stigin í þriðja leikhluta sem gekk endanlega frá leiknum. 

Stjörnur og skúrkar

Brittany Dinkins fór á kostum í liði Njarðvíkur. Brittany var stigahæst í liði Njarðvíkur með 30 stig en hún tók einnig 7 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. 

Varnarleikur KR-inga var langt frá því að vera góður. Njarðvíkingar voru í engum vandræðum með að finna opin skot sem skilaði 115 stigum.

Dómararnir 

Gunnlaugur Briem, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Jón Þór Eyþórsson dæmdu leik kvöldsins. Dómararnir stóðu sig vel á flautunni í kvöld og mega vera sáttir við sína frammistöðu.

Stemning og umgjörð

Það var góð mæting í Vesturbæinn enda höfðu KR-ingar ekki tapað leik og ríkjandi Íslandsmeistarar voru í heimsókn. Umgjörðin var til fyrirmyndar eins og við mátti búast í Vesturbænum.

„Að fá á sig 115 stig er óásættanlegt“

Daníel Andri, þjálfari KR,Vísir/Anton Brink

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap kvöldsins.

„Að fá á sig 115 stig er óásættanlegt. Þetta var lélegt og letilegt upplegg hjá þjálfaranum og þá var þetta niðurstaðan.“

Njarðvík endaði þriðja leikhluta á að gera níu stig í röð og Daníel viðurkenndi að það hafi verið erfitt að snúa leiknum við eftir það. 

 „Ég var orðinn svo reiður að horfa upp á þetta að ég var ekki að fylgjast með hvað það væri lítið eftir og tók leikhlé. Ég brenndi mig á því að hafa ekki átt leikhlé fyrir fjórða leikhluta og við vorum að keyra mikið á sama liðinu,“ sagði Daníel að lokum. 

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira