Enski boltinn

Fullgengið frá kaupum Ratcliffe

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Laxveiðimaðurinn Jim Ratcliffe á nú rúmlega fjórðungshlut í Manchester United og mun sjá um fótboltalegan rekstur félagsins.
Laxveiðimaðurinn Jim Ratcliffe á nú rúmlega fjórðungshlut í Manchester United og mun sjá um fótboltalegan rekstur félagsins. Getty/Peter Byrne

Sir Jim Ratcliffe hefur lokið kaupferli á 27,7 prósent eignarhlut í Manchester United.

Kaupin, sem voru fyrst samþykkt og tilkynnt á aðfangadag, voru kláruð eftir að samþykki fékkst frá öllum aðkomandi aðilum málsins. Tilboð í 25 prósent eignarhlut var samþykkt, auk skilyrtra fjárfestinga upp á 300 milljónir dollara. 

Ratcliffe lagði strax til 200 af þeim 300 milljónum, sem hækkaði eignarhlut hans í 27,7 prósent af félaginu. 

Eins og kunnugt er mun hann sömuleiðis taka yfir daglegan rekstur í öllu fótboltatengdu hjá félaginu. 

„Kaupferlið kláraðist sem markar upphaf okkar vegferðar í að taka Manchester United aftur upp á topp í enskum, evrópskum og öllum heimsfótboltanum, með heimsklassaaðstöðu fyrir aðdáendur. Vinnan sem þarf að leggja á til að ná þessum markmiðum mun núna ganga mun hraðar fyrir sig“ sagði Ratcliffe. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×