Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Andri Broddason skrifar 25. október 2026 13:32 Florian Wirtz hélt að hann hefði skorað sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en svo var ekki. Jan Kruger/Getty Images Liverpool tók á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem gestirnir eru búnir að vera eitt heitasta lið deildarinnar. Liverpool náðu þó að stöðva gott gengi liðsins með öruggum 2-0 sigri. Heimamenn byrjuðu leikinn með látum þar sem Florian Wirtz virtist loksins skora fyrsta mark sitt á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Eftir nánari skoðun kom í ljós að boltinn fór í Þjóðverjann Pascal Groß og því er markið skráð sem sjálfsmark. Liverpool var þó ekki lengi að bæta við öðru marki þegar Svíinn Alexander Isak komst í gott færi sem hann náði að setja fram hjá Bart Verbruggen í marki Brighton. Seinni hálfleikurinn varð svo töluvert rólegri en sá fyrri þar sem bæði lið áttu erfitt með að skapa sér færi. Að lokum voru það mörkin sem Liverpool skoraði snemma sem skildu liðin að. Liverpool er því í fjórða sæti deildarinnar með fimmtán stig, aðeins einu stigi frá Brighton sem er staðsett í því þriðja. Enski boltinn Fótbolti Liverpool FC Brighton & Hove Albion