Fótbolti

EM 2024: Ís­land myndi vera með Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu í riðli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Íslensku strákarnir fara í E-riðil ef þeir komast á EM.
Íslensku strákarnir fara í E-riðil ef þeir komast á EM. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Búið er að draga í riðla fyrir Evrópumót karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Komist Ísland á mótið munu strákarnir vera í E-riðli ásamt Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu.

Dregið var í riðla fyrir EM í dag þó enn sé óljóst hvaða þjóðir taka þrjú síðustu sætin. Ísland er sem stendur í B-leiðar umspilsins. Strákarnir okkar mæta Ísrael og svo Bosníu-Hersegóvínu eða Úkraínu í úrslitum um sæti á EM fari svo að þeir vinni Ísrael.

Fari svo að Ísland vinni umspilsleikina tvo förum við í E-riðil ásamt þjóðunum sem nefndar eru hér að ofan. Hér að neðan má sjá riðla mótsins.

  • A-riðill: Þýskaland, Skotland, Ungverjaland og Sviss.
  • B-riðill: Spánn, Króatía, Ítalía og Albanía.
  • C-riðill: Slóvenía, Danmörk, Serbía og England.
  • D-riðill: Holland, Austurríki, Frakkland og sigurvegari A-leiðar umspilsins (Pólland, Wales, Finnland eða Eistland).
  • E-riðill: Belgía, Slóvakía, Rúmenía og sigurvegari B-leiðar umspilsins (Ísland, Ísrael, Bosnía-Hersegóvína eða Úkraína).
  • F-riðill: Tyrkland, Portúgal, Tékkland og sigurvegari C-leiðar umspilsins (Georgía, Grikkland, Kasakstan eða Lúxemborg).



Fleiri fréttir

Sjá meira


×