Skoruðu á sömu mínútu og látna íshokkímannsins var minnst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. nóvember 2023 09:31 Minning Adams Johnson var heiðruð á meðan leik Nottingham Forest og Aston Villa stóð. getty/Matthew Ashton Íshokkímannsins Adam Johnson, sem lést í leik á dögunum, var minnst á meðan viðureign Nottingham Forest og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni stóð.
Johnson lést eftir að hann skarst á hálsi í leik Nottingham Panthers og Sheffield Steelers í Challenge Cup í Bretlandi um þarsíðustu helgi. Andlát Johnsons hefur vakið mikinn óhug og í kjölfarið hefur verið rætt um að auka öryggi íshokkíkappa, meðal annars með því að láta þá spila með hálshlíf. Johnson spilaði sem fyrr sagði með Nottingham Panthers á Englandi. Aðalfótboltaliðið í Nottingham, Forest, mætti Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær og þar var minningu Johnsons haldið á lofti. Í upphafi seinni hálfleiks, nánar tiltekið á 47. mínútu, stóðu áhorfendur upp og klöppuðu fyrir Johnson sem lék í treyju númer 47. Það virtist hvetja leikmenn Forest til dáða því á sömu mínútu skoraði Orel Mangala annað mark liðsins. Heimamenn unnu leikinn, 2-0. Með sigrinum komst Forest upp í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er á sínu öðru tímabili meðal þeirra bestu eftir að hafa ekki leikið þar frá tímabilinu 1998-99.
Enski boltinn Íshokkí Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira