Fótbolti

„Ég held þetta sé jafn­­mikið ef ekki meira spurning um hausinn“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks sem verður í eldlínunni í Ísrael í kvöld.
Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks sem verður í eldlínunni í Ísrael í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks sem á morgun verður fyrsta liðið til að spila í riðlakeppni í Evrópu þegar liðið mættir Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeildinni.

Breiðablik braut blað í íslenskri knattspyrnusögu á dögunum þegar liðið varð fyrsta íslenska liðið til að tryggja sér sæti í riðlakeppni í Evrópukeppni. Höskuldur Gunnlaugsson mun leiða lið Blika til leiks gegn Maccabi Tel Aviv á morgun en leikurinn fer fram í Tel Aviv og hefst klukkan 19:00.

„Að labba inn á völlinn daginn fyrir leik þá fer þetta að verða raunverulegra. Það er að koma meiri og meiri tilhlökkun, ég held það liggi fyrir hjá öllum,“ sagði Höskuldur í samtali við Aron Guðmundsson íþróttafréttamann sem staddur er í Tel Aviv.

Klippa: Höskuldur Gunnlaugsson - Viðtal

Maccabi Tel Aviv er sigursælasta lið Ísraels og Höskuldur býst við hörkuleik.

„Við þurfum að vera á okkar allra besta degi til að ná í úrslit. Við erum að reyna að stilla okkur inn á það að halda áfram að vera trúir því sem við höfum staðið fyrir og því sem við hefur komið okkur á þennan stað. Það er að stilla hausinn á réttan stað, hvaða hugarfar við mætum með í leikinn, hversu hugrakkir við ætlum að vera og sýna það í verkum.“

„Við erum líka að greina og reynum að stöðva þeirra hættulegustu mann, skoða taktík. Ég held þetta sé jafnmikið ef ekki meira spurning um hausinn á morgun.“

Allt viðtal Arons við Höskuld má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en þar kemur hann einnig inn á gengi Blika að undanförnu og kröfu Óskars Hrafns Þorvaldssonar um að leikmenn liðsins sýni meira hungur í leiknum í Tel Aviv á morgun.

Leikur Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv hefst klukkan 19:00 á morgun og verður í beinni útsendingu á Vodafone Sport




Fleiri fréttir

Sjá meira


×