Býst við að Nunes fari ekki fet þrátt fyrir verkfall leikmannsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. ágúst 2023 12:30 Matheus Nunes er ekki á förum frá Wolves ef marka má þjálfara liðsins, Gary O'Neil. Jack Thomas - WWFC/Wolves via Getty Images Gary O'Neil, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Wolves, býst við því að miðjumaðurinn Matheus Nunes verði áfram hjá félaginu eftir að félagsskiptaglugginn lokar þrátt fyrir tilraunir leikmannsins til að þvinga í gegn félagaskiptum til Manchester City.
Englandsmeistarar Manchester City hafa verið á höttunum eftir Nunes undanfarna daga, en Úlfarnir höfnuðu í vikunni tilboði frá félaginu upp á 47 milljónir punda í leikmanninn. Forráðamenn City telja nú að verðmat Úlfanna á leikmanninum sé orðið óraunhæft. Félagið er sagt vilja yfir 60 milljónir punda fyrir Nunes sem er dýrasti leikmaður Úlfanna frá upphafi. Wolves greiddi 38 milljónir punda fyrir leikmanninn fyrir síðasta tímabil. Nunes vill hins vegar ólmur komast til City og á mánudaginn bárust fréttir af því að hann væri hættur að æfa með Úlfunum til að reyna að þvinga í gegn félagaskiptum til Englandsmeistaranna. Þrátt fyrir það telur O'Neil allar líkur á því að Nunes verði enn leikmaður Wolves eftir að félagsskiptaglugginn lokar á föstudagskvöldið næstkomandi. „Hann er ekki með hópnum núna og það er hans ákvörðun,“ sagði O'Neil. „Eftir því sem ég best veit hefur ekki borist betrumbætt tilboð. Matheus Nuner er enn okkar leikmaður. Hann er með langan samning við félagið og á þessum tímapunkti býst ég við því að hann verði áfram hér þegar 2. september gengur í garð.“
Enski boltinn Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira