Fótbolti

Bestu mörkin: Rætt um ó­trú­legt gengi FH eftir erfiða byrjun

Smári Jökull Jónsson skrifar
FH fagnar marki í leik í sumar.
FH fagnar marki í leik í sumar. Vísir/Hulda Margrét

Nýliðar FH í Bestu deild kvenna hefur án nokkurs vafa verið spútniklið tímabilsins til þessa. Liðið situr í fjórða sæti deildarinnar og gengi liðsins var rætt í Bestu mörkunum í gær.

FH er nýliði í Bestu deild kvenna og mótið hjá liðinu hófst ekkert sérstaklega vel. Eftir þrjár umferðir var liðið með eitt stig, staða sem var kannski viðbúin hjá nýliðum í deildinni.

Síðan þá hefur liðið hins vegar safnað saman tuttugu og fjórum stigum og aðeins Valur og Breiðablik hafa náð í fleiri mörk á sama tíma.

„Þær byrjuðu illa en við sjáum að þær væru fimm stigum frá fimmta sæti. Ég man að þær áttu snemma tímabils leik gegn Val og það kom manni á óvart að FH-liðið væri að standa í þeim því það var eitthvað sem maður átti ekki endilega von á,“ sagði Helena Ólafsdóttir stjórnandi Bestu markanna í þættinum í gær.

Klippa: Bestu mörk kvenna: Umræða um FH

Helena sagði að FH hafi ekki endað ofar en í 6. sæti deildarinnar síðan liðið varð síðasti meistari á áttunda áratug síðustu aldar. Hún segist vita að fólk í Hafnarfirðinum vilji breyta þessari staðreynd.

„Við vorum ekki mörg sem trúðum því að þær ætluðu að spila þennan hápressufótbolta sem þær voru að gera í næst efstu deild. Þær hafa afsannað það,“ sagði Lilja Dögg Valþórsdóttir, sérfræðingur Bestu markanna.

„Samt ekki,“ skaut Harpa Þorsteinsdóttir þá inn í.

„Maður var að búast við því að þær væru að fara að halda í þennan hápressufótbolta. Þær hafa verið að aðlaga sig. Þær hafa dottið niður í lágpressu en hafa aðlagað sig mun hraðar að hinum liðunum en við áttum von á.“

Alla umræðu þeirrar Helenu, Lilju Daggar og Hörpu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×