Fótbolti

Sverrir Ingi byrjar á sigri í Dan­mörku

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markaskorari kvöldsins og Sverrir Ingi.
Markaskorari kvöldsins og Sverrir Ingi. Midtjylland

Midtjylland vann Hvidovre 1-0 í fyrsta leik tímabilsins í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í miðverði Midtjylland en félagið keypti hann frá gríska félaginu PAOK í sumar. 

Gue-Sung Cho skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik en í þeim fyrri brenndi Gustav Isaksen af vítaspyrnu fyrir heimamenn. Það kom þó ekki að sök og Midtjylland byrjar tímabilið á sigri, lokatölur 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×