Innlent

Mjólkurgrautur og slátur í Hrísey og þorrablót í kvöld

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hríseyingar komu saman í hádeginu og fengu sér mjólkurgraut og slátur í boði ferðafélags eyjunnar. Hér skammtar Þröstur Johan Jörundi graut og Ómar bíður þolinmóður á meðan.
Hríseyingar komu saman í hádeginu og fengu sér mjólkurgraut og slátur í boði ferðafélags eyjunnar. Hér skammtar Þröstur Johan Jörundi graut og Ómar bíður þolinmóður á meðan. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Íbúar í Hrísey komu nú saman í hádeginu til að gæða sér á mjólkurgraut og slátri og í kvöld er þorrablót í eyjunni. Þá er haldið upp á 112 daginn og kökubasar verður líka í eyjunni í dag .

Íbúar í Hrísey eru um 120 með fasta búsetu en yfir sumartímann fjölgar þeim þegar fólk flytur í sumarhúsin sín. Það er mikil samstaða á meðal íbúa en í hverjum mánuði býður ferðamálafélag Hríseyjar öllum upp á mjólkurgraut og slátur í hádeginu á laugardegi í félagsheimilinu eins og í dag.

Ásrún Ýr Gestsdóttir starfar fyrir byggðaþróunarverkefnið Áfram Hrísey og veit allt um dagskrá dagsins.

„Og svo klukkan 13:00 verður kökubasar í Hríseyjarbúðinni, sem foreldrafélag Hríseyjarskóla stendur fyrir og síðan erum við að halda upp á 112 daginn því að við fengum nýjan slökkviliðsbíl í vikunni og björgunarsveitin í eyjunni er búin að vera að endurnýja búnaðinn sinn, þannig að það verður opið hús hjá þeim á milli 14:00 og 16:00. Við erum alltaf að skemmta okkur í Hrísey en það er sérstaklega góð skemmtun í dag,” segir Ásrún Ýr.

Ásrún Ýr Gestsdóttir, sem vinnur fyrir byggðaþróunarverkefnið „Áfram Hrísey” Aðsend

Og áttu von á miklu stuði og stemningu á þorrablótinu í kvöld?

„Já, heldur betur. Ég held að það séu um 140 manns, sem hafa skráð sig á blótið og við vitum að maturinn verður góður þó fólki finnist hann mis góður. Svo verður skemmtileg hljómsveit með ball. Við Hríseyingar erum glöð upp til hópa þannig að ég geri ráð fyrir mikilli skemmtun.”

Nýi slökkviliðsbílinn verður til sýnis í dag á 112 deginum en hér eru þeir Ingólfur, Klas, Vigfús og Hörður við bílinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En lífið í Hrísey svona almennt, hvernig gengur það?

„Það gengur bara vel. Við fórum af stað með byggðaþróunarverkefni í haust, sem heitir “Áfram Hrísey”, sem ég starfa fyrir og við höfum fundið fyrir miklum áhuga. Fólk vill koma og prófa að búa út í eyju, þannig að núna erum við helst að vinna í því að fá langtímaleiguhúsnæði, sem virðist vera að ganga upp. Við erum búin að fá vilyrði frá Akureyrarbæ að breyta hérna lóðum úr einbýlishúsalóðum í fjölbýlislóðir og það eru áhugasamir einstaklingar og fyrirtæki, sem hafa áhuga á að byggja. Þannig að við erum mjög bjartsýni á framtíðina hérna,” segir Ýr Gestsdóttir, sem vinnur fyrir byggðaþróunarverkefnið „Áfram Hrísey.”

Byggðaþróunarverkefnið



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×