Innlent

Tæp­lega ára­tugs­gömul sýkna í Exeter-máli endur­reist með frá­vísun Hæsta­réttar

Kjartan Kjartansson skrifar
Hæstiréttur sneri við sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkir yfir Styrmi Þór og dæmdi hann í árs fangelsi fyrir hlutdeild í umboðssvikum árið 2013. Rétturinn telur sig nú ekki geta tekið málið fyrir aftur þrátt fyrir úrskurð endurupptökudóms.
Hæstiréttur sneri við sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkir yfir Styrmi Þór og dæmdi hann í árs fangelsi fyrir hlutdeild í umboðssvikum árið 2013. Rétturinn telur sig nú ekki geta tekið málið fyrir aftur þrátt fyrir úrskurð endurupptökudóms. Vísir/Vilhelm

Hluta svonefnds Exeter-máls sem endurupptökudómur úrskurðaði að skyldi tekið upp aftur var vísað frá Hæstarétti í dag. Niðurstaðan þýðir að sýknudómur í héraði yfir fyrrverandi forstjóra MP bank stendur óhaggaður.

Endurupptökudómur féllst á beiðni Styrmis Þórs Bragasonar, fyrrverandi forstjóra MP-banka, um taka upp hæstaréttardóm frá 2013 þar sem hann var sakfelldur fyrir hlutdeild í umboðssvikum tveggja annarra stjórnenda MP-banka og sparisjóðsins Byrs. 

Styrmir Þór var dæmdur í eins árs fangelsi en hann hafði áður verið sýknaður í héraði. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn rétti Styrmis Þórs til réttlátrar málsmeðferðar fyrir Hæstarétti þar sem ekki hefði farið fram milliliðalaus sönnunarfærsla fyrir dómi árið 2019.

Hæstiréttur vísaði málinu frá í dag. Vísaði rétturinn til þess að eftir gildistöku laga um endurupptökudómstól frá 2020 skorti Hæstarétt lagaheimild til þess að láta munnlega sönnunarfærslu fara fram. Endurupptökudómi hefði því átt að vísa málinu til meðferðar og dómsuppsögu að nýju í Landrétti.

Málið hefði ennfremur verið tekið upp aftur á þeim forsendum að meðferð þess fyrir Hæstarétti hefði verið í ósamræmi við reglu um milliliðalausa sönnunarfærslu. Ekki yrði úr því bætt nema að leiða Styrmi Þór og vitni fyrir dóm til skýrslugjafar. 

Exeter-málið snerist um meint umboðssvik vegna útlána Byrs sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. Málið var það fyrsta sem embætti sérstaks saksóknara, sem stofnað var eftir bankahrun, ákærði í.

Hæstarétti væri ókleift að bæta úr þessu. Hann hefði heldur ekki heimild til þess að hnekkja niðurstöðu endurupptökudóms að þessu leyti eða vísa málinu sjálfur til Landsréttar. Því væri óhjákvæmilegt að vísa málinu sjálfkrafa frá réttinum.

Niðurstaðan þýðir að sýkna Styrmis Þórs í héraði í janúar 2013 stendur óhögguð. Ríkissjóður þarf að greiða allan sakarkostnað vegna málsmeðferðar fyrir héraðsdómi og Hæstarétti, alls rúmlega 1,9 milljónir króna.

Fréttin hefur verið uppfærð með þeim upplýsingum að frávísunin þýðir að sýknudómur í Héraðsdómi Reykjavíkur frá 2013 stendur óhaggaður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×