Fótbolti

Haaland tryggði Norðmönnum sigur | Svíar unnu gegn Slóvenum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erling Braut Haaland skoraði sigurmark Norðmann í kvöld.
Erling Braut Haaland skoraði sigurmark Norðmann í kvöld. Srdjan Stevanovic/Getty Images

Erling Braut Haaland skoraði eina mark leiksins er Norðmenn unnu 0-1 útisigur gegn Serbum í fjórða riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Á sama tíma unnu Svíar 0-2 sigur gegn Slóvenum í sama riðli.

Haaland skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins fyrir Norðmenn á 26. mínútu eftir stoðsendingu frá Marcus Holmgren Pedersen.

Norðmenn eru því með þrjú stig í fjórða riðli B-deildar Þjóðadeildar Evrópu, líkt og Svíar sem unnu 2-0 sigur gegn Slóvenum.

Emil Forsberg kom Svíum yfir með marki af vítapunktinum stuttu fyrir hálfleik áður en Dejan Kulusevski tryggði liðinu sigurinn með marki á 88. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×