Erlent

„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Julia Petryk mun halda kyrru fyrir í Kænugarði þar sem hún telur ekki öruggt að yfirgefa borgina með sautján ára dóttur sinni.
Julia Petryk mun halda kyrru fyrir í Kænugarði þar sem hún telur ekki öruggt að yfirgefa borgina með sautján ára dóttur sinni. Vísir

„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra.

Petryk og sautján ára dóttir hennar eru búsettar í Kænugarði en þegar blaðamaður náði af henni tali var hún á leið af heimili sínu í neðanjarðarlestarstöð í nágrenninu. Loftvarnarflauturnar hringdu í bakgrunninum. 

„Í dag höfum við verið meira uppi á yfirborðinu en síðustu daga. Við erum með sprengjuskýli í kjallaranum en lyftan í húsinu okkar er biluð svo við komumst ekki niður. Þannig að síðustu daga höfum við sofið í lestarstöðinni,“ segir Petryk í samtali við Vísi.

Mæðgurnar hittu fyrir tvo unga stúdenta, sem eru ekki frá Kænugarði, á föstudag. Þær skutu yfir þá skjóli, hleyptu þeim inn á heimili sitt og hjálpuðu þeim svo eftir tveggja daga samveru að komast aftur heim til fjölskyldna þeirra. 

„Þeir eru komnir heim núna en þegar þeir fóru var ég í stöðugu sambandi við þá á samfélagsmiðlum. Ég var svo hrædd um þá. Annar þeirra lenti í því þegar hann fór um borð í lestina heim til sín var hún rýmd vegna skotárásar. Ég bað fyrir þeim, ég hélt aldrei að ég myndi biðja fyrir einhverjum heila nótt en ég gerði það þá nótt. Núna eru þeir komnir heim til fjölskyldna sinna, sem betur fer,“ segir Petryk. 

„Dóttir mín sagði við mig eftir þetta: Mamma, við erum eins og fjölskyldurnar í seinni heimsstyrjöldinni, því hún vissi að þá tók fólk aðra inn sem þurftu þak yfir höfuðið.“

Bjóst aldrei við að Pútín léti drepa börn

Hún segir það hafa verið mikið áfall þegar Rússar réðust inn í Úkraínu á aðfaranótt fimmtudags. Viðvörunarmerkin hafi verið til staðar en hún segist ekki hafa getað ímyndað sér að þeir myndu í alvöru ráðast inn í heimaland hennar. 

„Það voru sögur að ganga um að Rússar myndu ráðast inn en mér datt ekki í hug að þeir myndu ganga svona langt. Herinn okkar er svo vel undirbúinn núna og hefur verið að undirbúa sig síðan stríðið á Krímskaga hófst fyrir átta árum, þannig að við héldum að við værum tilbúin,“ segir Petryk. 

„Ég bjóst ekki við því að [Pútín] myndi ganga svona langt, að hann myndi drepa börn.“

Trúir því að Úkraína muni sigra stríðið

Hún segir að vinafólk hennar hafi hvatt hana fyrir tveimur vikum síðan að flýja Úkraínu. Hún hafi þá ekki tekið það í mál. Sömu vinir hafi hringt í hana í dag og beðið hana að yfirgefa borgina, sem hún segir aftur, ekki koma til greina. Í þetta skiptið ekki vegna þess að hana langi það ekki heldur vegna þess að ferðinn sé of hættuleg. 

„Frænka mín reyndi að fara með dóttur sinni en komst ekki einu sinni úr bænum sínum að lestarstöðinni, fólk bíður þar í röðum,“ segir hún. Fólk í mörgum smábæjum sé einfaldlega innlyksa þar sem vegir séu ófærir eftir að hafa orðið fyrir sprengjum frá Rússum. Leiðin frá Kænugarði að landamærunum að Póllandi, sem venjulega taki tvo klukkutíma, taki nú meira en sólarhring. 

„Ég efa ekki að Úkraína muni sigra þetta stríð. Við byrjuðum það ekki en við munum vinna. Svo mörg fórnarlömb, svo mikil sorg. En Úkraínumenn eru sameinaðir, við vinnum hvernig sem við getum til að tryggja sigurinn,“ segir Petryk. 

Petryk starfar sem almannatengill og hefur frá því að stríðið byrjaði farið fyrir hópi almannatengla sem vinnur að því að koma upplýsingum til alþjóðlegra fréttamiðla. Þannig segist hún geta lagt sitt af mörkum og stöðvað falsfréttirnar sem Rússar dreifi um innrásina. 

„Rússnesku áróðursvélinni gengur vel og við erum að berjast gegn því. Við erum upplýsingaher.“


Tengdar fréttir

Torgið sprungið sem Blikakonur röltu um á

Ekki eru nema fáeinir mánuðir síðan að leikmenn og fylgdarlið kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta dvöldu í borginni Karkív í Úkraínu sem varð fyrir mannskæðri eldflaugaárás Rússa.

Ekki tíma­bært að slíta stjórn­mála­sam­bandi við Rússa

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ekki á dagskrá að svo stöddu að slíta stjórnmálasambandi við Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu þar sem slíkt væri síðasta úrræði. Hún telur að þær refsiaðgerðir sem kynntar hafi verið komi til með að setja þrýsting á rússnesk stjórnvöld og segir alþjóðasamfélagið samstíga í sinni afstöðu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×