Spilar í utandeildinni en ákvað samt að neita tilboði Tottenham Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. janúar 2022 09:00 Antonio Conte hefur átt betri félagaskiptaglugga. Robin Jones/Getty Images Það hefur hvorki gengið né rekið hjá enska knattspyrnufélaginu Tottenham Hotspur í félagaskiptaglugganum til þessa.
Eftir mikil vonbrigði stefndi félagið á að sækja Ollie Tanner frá Lewes sem leikur í Isthmian-deildinni, hann ákvað hins vegar að færa sig ekki um set. Tottenham var með miklar væntingar er félagaskiptaglugginn hófst. Luis Díaz var á leiðinni frá Porto og þá var stefnt á að sækja Adama Traoré frá Úlfunum. Það fór svo að Díaz náði samkomulagi við Liverpool og þá er Traoré farinn til Barcelona. Í von sinni um að næla allavega í einn leikmann ákvað Tottenam að bjóða í Olle Tanner sem leikur með Lewes í Isthmian-deildinni en það er 7. efsta deild enska knattspyrnupýramídans. Nú hefur Lewes staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við félag úr ensku úrvalsdeildinni en Tanner hafi ekki náð samkomulagi við úrvalsdeildarfélagið og því verði ekkert úr vistaskiptunum. Club Statement: Ollie Tannerhttps://t.co/0KdvrbwX8L pic.twitter.com/QooIgQZBK1— Lewes FC Men (@LewesFCMen) January 29, 2022 Það má því með sanni segja að það hafi ekkert gengið upp hjá Tottenham í félagaskiptaglugganum til þessa. Antonio Conte hefur helgina til að styrkja leikmannahóp sinn, nú er bara að bíða og sjá hvað gerist. Tottenham er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 36 stig eftir 20 leiki.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Lebron talaði hreint út Körfubolti Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Formúla 1 Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Fótbolti Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira