Innlent

Reiknar með að Icelandair bæti fólki tjónið

Heimir Már Pétursson skrifar
Guðlaug Jóhannsdóttir formaður Flugfreyjufélags Íslands fagnar dómi Félagsdóms frá í gær um að Icelandair hafi staðið ólöglega að uppsögnum flugfreyja og flugþjóna og endurráðningum þeirra í fyrra.
Guðlaug Jóhannsdóttir formaður Flugfreyjufélags Íslands fagnar dómi Félagsdóms frá í gær um að Icelandair hafi staðið ólöglega að uppsögnum flugfreyja og flugþjóna og endurráðningum þeirra í fyrra. Vísir

Formaður Flugfreyjufélags Íslands reiknar með að Icelandair bæti um sjötíu flugfreyjum það tjón sem þær urðu fyrir vegna brota félagsins við uppsagnir og endurráðningar þeirra á síðasta ári. Félagið vilji viðræður við félagið um framhaldið.

Icelandair sagði upp nær öllum flugfreyjum og flugþjónum félagsins í miðjum kjaraviðræðum og kórónuveirufaraldri á síðasta ári. Þegar félagið tók síðan að endurráða fólk var ekki farið eftir reglum um að fólk yrði endurráðið samkvæmt starfsaldri eins og samningar kváðu á um. Alþýðusambandið kærði málið til Félagsdóms fyrir hönd Flugfreyjufélagsins og í gær dæmdi dómurinn flugfreyjum í vil.

Guðlaug Jóhannsdóttir formaður Flugfreyjufélags Íslands segir hennar félagsfólk fagna fullnaðar sigri í Félagsdómi í gær.vísir

Guðlaug Jóhannsdóttir formaður félagsins segir niðurstöðuna mikið réttlætismál eftir að brotið hafi verið á þessum hópi.

„Þetta er fólk sem hefur starfað áratugum saman hjá Icelandair. Það þarf að bæta þessu fólki þetta upp á einhvern hátt. Við gerum ráð fyrir viðræðum við Icelandair á næstu dögum,“ segir Guðlaug.

Hún vonist einnig til að hægt verði að funda með hópnum fljótlega í ljósi sóttvarnareglna en hún reikni með að flestir myndu vilji hefja störf á ný. Þetta fólk hafi nú fengið viðurkenningu á að uppsögn þeirra var ólögmæt.

„Einhverjir eru komnir í vinnu. Aðrir ekki. Það er nokkuð ljóst að þessi hópur er búinn að ganga í gegnum mjög erfiða tíma. Þessi hópur var allur í starfi án athugasemda fyrir þennan heimsfaraldur. Fær svo þarna skell í lok uppsagnarfrests. Það má segja að hópurinn fagni þessu en vonast að sjálfsögðu eftir góðri niðurstöðu. Ég veit að margir vilja starfa aftur. Það verður hins vegar bara að koma í ljós,“ segir formaður Flugfreyjufélags Íslands.

Vonandi verði hægt að funda með Icelandair sem fyrst og að félagið láti dóm Félagsdóms sér að kenningu verða.

„Þetta er mjög afgerandi og fullnaðar sigur fyrir okkur. Ég vona að fólk sjái sér fært um að virða þetta í framtíðinni,“ segir Guðlaug Jóhannsdóttir.


Tengdar fréttir

Reynslumiklu flugfreyjurnar lögðu Icelandair

Icelandair bar að fara eftir starfsaldri þegar félagið afturkallaði uppsagnir flugfreyja og flugþjóna rúmum þremur mánuðum eftir að fólkinu hafði verið sagt upp í apríl 2020.

Smitandi ó­svífni gagn­vart launa­fólki

Gul stéttarfélög eru félög sem eru undir áhrifavaldi atvinnurekenda og eru stofnuð til að koma í veg fyrir að starfsfólkið sé félagar í óháðum og raunverulegum stéttarfélögum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×