Innlent

Kven­sjúk­dóma­læknar gagn­rýna skýrslu um skimanir

Árni Sæberg og Elma Rut Valtýsdóttir skrifa
Haraldur Breim vann skýrslu um leghálsskimanir sem send var til heilbrigðisráðherra þann 16. júní.
Haraldur Breim vann skýrslu um leghálsskimanir sem send var til heilbrigðisráðherra þann 16. júní. Vísir/Egill

Stjórn Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna hefur gefið úr tilkynningu þar sem hún gagnrýnir skýrslu sem Haraldur Breim vann fyrir heilbrigðisráðherra um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir leghálskrabbameini.

FÍFK gagnrýnir efnistök skýrslunnar og segir heimildaskrá hennar einungis innihalda heimildir frá aðilum sem bera ábyrgð á núverandi starfsemi. Skýrslan beri þess merki að ekki hafi farið fram skoðun á hvort upplýsingar væru réttar og að ekki hafi verið rætt við notendur ferilsins. 

FÍFK segir skýrsluna ekki taka afstöðu til bréfa frá fagfélögum rannsóknarlækna og kvensjúkdómalækna til heilbrigðisráðherra, heilsugæslunnar og landlæknis þar sem bent er á ógnir og annmarka á ferlinum. Ekki var haft samband við fagfélögin við vinnslu skýrslunnar.

Efast um fullyrðingar í skýrslunni.

Í skýrslunni er fullyrt að biðtími eftir niðurstöðum rannsókna sé tveir til þrír mánuðir. FÍFK segir það ekki rétt. Í sumum tilfellum hafi svör ekki enn borist þremur og hálfum mánuði eftir skimun.

Félagið gerir einnig athugasemd við það að ekki sé tekið fram í skýrslunni að það hafi ekki verið gert áhættu- og öryggismat á þeim viðamiklu breytingum sem átti að innleiða. Þá telur FÍFK það vera mikla öryggisógn að breyta íslenskri kennitölu handvirkt yfir í danska og aftur til baka þegar svar er fært inn í íslenskt kerfi.

Í skýrslunni segir jafnframt að núverandi kerfi hafi ekki áhrif á aðgengi sérfræðinga að niðurstöðum rannsóknaraðila. FÍK segist ekki vita til þess að skýrsluhöfundur hafi haft samband við neinn utan kerfisins þegar það var metið. Þá gagnrýnir félagið að skýrsluhöfundur hafi ekki minnst á stopult upplýsingaflæði frá framkvæmdaraðilum til bæði sjúklinga og lækna.

„Það eru vonbrigði að sjá að skýrslan hefur nær eingöngu tekið mið af frásögn framkvæmdaraðilans og skoðar ekki viðhorf notenda, hvorki skjólstæðinga né heilbrigðisstarfsfólks,“ segir í gagnrýni félagsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×