Innlent

Hyggjast svara sértækum spurningum kvenna um skimanir á Heilsuvera.is

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Innan skamms opnar brjóstamiðstöð á Eiríksgötu.
Innan skamms opnar brjóstamiðstöð á Eiríksgötu.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Landspítalann, hyggst setja aukið afl í netspjall við skjólstæðinga á Heilsuvera.is og bjóða upp á sérstaka svarþjónustu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra um skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameinum.

Frá þessu er greint í yfirlýsingu frá Heilsugæslunni og Landspítalanum, þar sem segir að mikilvægt sé að fólk sem upplifir óvissu eða óöryggi hafi samband við netspjallið. Markmiðið sé að svara sértækum spurningum hvers og eins.

Þá segir að innan skamms verði opnuð öflug brjóstamiðstöð Landspítala á Eiríksgötu í Reykjavík, „þar sem þessum mikilvæga og viðkvæma hópi skjólstæðinga verður sinnt af kostgæfni. Sá stóri áfangi verður mikið gleðiefni fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu.“

Í yfirlýsingunni er fjallað um þær umfangsmiklu breytingar sem hafa orðið á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum og tekið fram að í öllum verkefnum hafi gæði þjónustunnar verið höfð að leiðarljósi og leitast við að tryggja heilsu og öryggi skjólstæðinga.

„Íslensk heilbrigðisþjónusta stendur saman að baki þessu heildarverkefni, sem snýr að vandasamri og viðkvæmri yfirfærslu margvíslegra verkefna frá Krabbameinsfélagi Íslands yfir til Heilsugæslunnar, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Yfirfærslan hefur því miður ekki verið hnökralaus, ýmissa hluta vegna, og skapað bæði áhyggjur og óöryggi í samfélaginu. Í ljósi umræðu síðustu daga um þetta nýja fyrirkomulag vilja Heilsugæslan og Landspítali taka fram að aðstandendum verkefnisins þykir mjög miður að óvissa hafi skapast um þessa mikilvægu þjónustu. Við slíkt verður ekki búið og keppast nú allir aðilar verkefnisins við að bæta þar úr með fjölbreyttum hætti,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að nýtt verklag sé samkvæmt því sem mælt sé með í aþjóðlegum skimunarleiðbeiningum og í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Undir yfirlýsinguna rita Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×