Slæmt tap Everton í 300. úr­vals­deildar­leik Gylfa á Eng­landi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi og félagar ósáttir.
Gylfi og félagar ósáttir. Paul Greenwood/Getty

Everton tapaði 2-0 fyrir Newcastle á heimavelli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Slæmt tap Everton en mikilvægur sigur Newcastle. Þetta var jafnframt 300. úrvalsdeildarleikur Gylfa Sigurðssonar á Englandi.

Newcastle byrjaði betur í fyrri hálfleiknum og átti gott færi. Callum Wilson átti meðal annars hörkuskalla sem Jordan Pickford varði meistaralega. Dominic Calvert-Lewin komst næst því að skora fyrir Everton en Karl Darlow varði í horn.

Markalaust var í hálfleik og í síðari hálfleik var svipað uppi á teningnum. Mikið jafnræði var með liðunum. Everton var meira með boltann en gekk illa að skapa sér opin marktækifæri. Gylfi Þór spilaði allan leikinn á miðjunin hjá Everton.

Það var á 73. mínútu sem fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Eftir hornspyrnu stangaði Callum Wilson boltann í fjærhornið. Óverjandi fyrir Jordan Pickford en sofandi háttur í dekkningu Everton.

Everton reyndu allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin en það skilaði sér ekki betur en að Wilson tvöfaldaði forystuna eftir skyndisókn í uppbótartíma. Lokatölur 2-0.

Þetta var mikilvægur sigur Newcastle sem hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Þeir eru komnir með 22 stig í sextánda sætinu eftir sigurinn en Everton er í sjöunda sætinu með 33 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira