Innlent

Sýknaður af ákæru um að hafa nýtt sér ölvunarástand stúlku

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot.
Maðurinn var sýknaður af ákæru um kynferðisbrot. Mynd/ Getty.

Piltur var í dag sýknaður af ákæru um að hafa haft samfarir við stúlku á meðan hún var svo drukkin að hún gat ekki spornað við verknaðinum. Maðurinn var í ákæru sakaður um að hafa framið brotið í október 2011. Það var móðir stúlkunnar sem tilkynnti brotið til lögreglu.

Pilturinn og stúlkan voru vinir og voru að koma af dansleik áður en þau fóru saman í heimahús. Stúlkan sagði frá því að hún hafi sofnað í rúmi sínu og vaknað við það að pilturinn væri að hafa samfarir við hana. Pilturinn sagði hins vegar fyrir dómi að samfarirnar hefðu verið með samþykki hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur segir að brotaþoli hafi vissulega verið undir áhrifum áfengis en dómurinn geti ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að meðvitund hennar hafi verið það skert að hún hafi ekki átt að geta gert sér grein fyrir því sem gerðist. Þá hafi hún skýrt svo frá að hún muni eftir því að ákærði hafi verið að klæða hana úr buxunum. Þá hafi hana rámað í að ákærði hafi sett lim sinn inn í hana og hún sjálf sagst hafa dregið sjálf upp um sig buxurnar að samförunum loknum og hlaupið á eftir ákærða þegar hann fór út úr íbúðinni.

Það verði því að telja að brotaþoli hafi verið meðvituð um það hvert stefndi í samskiptum hennar og ákærða en óumdeilt sé að hún hafi ekki gert ákærða grein fyrir því að hún væri mótfallin kynferðislegu samneyti við ákærða og þá beri til þess að líta að pilturinn hætti samförunum um leið og hann áttaði sig á því að brotaþoli væri mótfallin þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×