Fyrrverandi ritstjóri sagði nauðsynlegt að ákæra Geir 11. júní 2011 19:58 Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að hann ætti engan annan kost en að taka þátt í að ákæra Geir H. Haarde, ella fyki traust á flokknum út í veður og vind um langa framtíð. Viðtal við Bjarna birtist í Sunnudagsmogganum í dag þar sem hann ræðir meðal annars um stöðu flokksins, hugsjónir sínar og átökin í pólitíkinni. Þar segir hann meðal annars skiptar skoðanir hafa verið um hlutina og margir spáð endalokum flokksins gerði hann ekki þetta eða hitt. Því næst segir Bjarni því hafa verið haldið fram við sig af málsmetandi manni, sem gjörþekki stjórnmálin og þjóðmálaumræðuna langt aftur í tímann, að hann ætti engan annan kost en að taka þátt í að ákæra Geir H. Haarde, ella fyki traust á flokknum út í veður og vind um langa framtíð. Samkvæmt heimildum fréttastofu á Bjarni þarna við Styrmi Gunnarsson fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins sem í rannsóknarskýrslu Alþingis talaði eftirminnilega um ógeðslegt þjóðfélag þar sem væru engin prinsipp, engar hugsjónir heldur einungis tækifærismennska og valdabarátta. Styrmir mun hafa sagt þetta á fundi með Bjarna og fleirum áður en málið fór fyrir þingið og atkvæði voru greidd um hverja ætti að ákæra. Á fundinum mun Styrmir hafa verið þeirrar skoðunar að Sjálfstæðislfokkurinn ætti alls ekki að standa einn gegn ákærum á hendur fyrrverandi ráðherrum. Styrmir sagðist hinsvegar aðspurður um málið í dag aldrei hafa lýst slíkri skoðun við Bjarna né aðra. Hann hafi ekki hugmynd um hvern Bjarni eigi við í viðtalinu og sér hafi alltaf fundist sú niðurstaða Alþingis að ákæra einn mann, fráleit.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira