Sport

Ólafur áfram með Skagamenn

Ólafur Þórðarson verður áfram þjálfari Skagamanna. Hann skrifaði í hádeginu undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum hjá félaginu. Alexander Högnason verður áfram þjálfari annars flokks jafnframt því að aðstoða Ólaf með meistaraflokk. Ólafur tók við ÍA haustið 1999. Hann stýrði liðinu til sigurs á Íslandsmótinu árið 2001 og undir hans stjórn hefur liðið fagnað sigri í bikarkeppninni tvívegis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×