Þráðlaust net komið í Hörpuna 28. apríl 2011 14:20
Lokið hefur verið við uppsetningu á þráðlausu neti í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Um er að ræða eitt af stærri þráðlausu netkerfum á landinu en Harpan er um 28 þúsund fermetrar að stærð. Þráðlausa netið verður einkum ætlað gestum og viðskiptavinum hússins, svo sem í fyrirlestra- og fundarsölum Upplýsingafyrirtækið Nýherji sá um uppsetninguna, en rekstrarfélag Hörpunnar hefur einnig samið við Nýherja um kaup á tölvu- og tæknibúnaði fyrir starfsemina. Um er að ræða „Rent a Prent" prentlausn sem gerir Hörpunni meðal annars kleift að prenta út ráðstefnugögn fyrir skipuleggjendur ráðstefna. Ennfremur voru innleiddar Lenovo tölvur, Cisco netbúnaður, Canon prentbúnaður og APC varaaflgjafar fyrir starfsemina. Þá verður símkerfi tónlistarhússins hýst í Avaya IP símstöð Nýherja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hörpu. Rekstrarfélag Hörpunnar ákvað að velja búnað og lausnir frá Nýherja eftir ítarlega verðkönnun þar sem þær þóttu hagkvæmastar og féllu vel að rekstri tölvukerfa Hörpunnar. „Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpan þarf að reiða sig á hnökralausan rekstur upplýsingatæknikerfa og tölvu- og tæknibúnað fyrir starfsfólk og alla þá gesti og viðskiptavini sem eiga eftir að sækja húsið heim. Þess vegna leggjum við áherslu á hátt þjónustustig og ennfremur er mikilvægt að allur kostnaður sé fastur og fyrirsjáanlegur," segir Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hörpu. „Með útvistun tölvukerfa er hægt að auka öryggi og tryggja aðgengi að sérfræðiþjónustu. Þá geta fyrirtæki skapað sér mikinn fjárhagslegan ávinning með því að úthýsa tölvukerfum í stað þess að eiga og reka sitt eigið," segir Þorvaldur Jacobsen framkvæmdastjóri Rekstrarlausna Nýherja.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Sjá meira