Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Agnar Már Másson skrifar 10. september 2026 20:25 Þegar Trump birti umdeilt kort af Íslandi í bandarísku fánalitunum var það ekki í fyrsta sinn sem forsetinn viðraði þær hugmyndir að Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum. Samsett mynd Þegar Donald Trump hafði verið nýendurkjörinn Bandaríkjaforseti í nóvember 2024 hringdi hann í Bjarna Benediktsson, þá forsætisráðherra, og nefndi meðal annars hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna, þó í gamansömum tón. Þetta samtal var rifjað upp á fundi utanríkismálanefndar í lok ágúst.
Rúv greindi frá málinu í kvöld en á þessum tíma hafði Trump ekki verið formlega settur inn í embættið að nýju þó hann hefði verið endurkjörinn forseti. Á þessum tíma var minna en vika í þingkosningar á Íslandi. Þetta samtal Trumps og Bjarna, sem átti sér stað 26. nóvember 2024, var samkvæmt heimildum Vísis nýlega rifjað upp á aukafundi utanríkismálanefndar 31. ágúst sem haldinn var í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Á mánudaginn, 7. september, birti Trump síðan umdeilt landakort þar sem Ísland og Grænland auk allrar Norður- og Mið-Ameríku voru sveipuð bandaríska fánanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long, bandaríska sendiherrann, á sinn fund í kjölfar myndbirtingarinnar. Á blaðamannafundi næsta dag kallaði hún þetta lélegt grín af hálfu Bandaríkjaforseta, ef um grín væri að ræða. Eftir að hafa verið kjörinn forseti tók Trump sig til að hringja í hina og þessa þjóðarleiðtoga, meðal annars á Norðurlöndum. Utanríkisráðuneytið greindi frá samtali þeirra Bjarna í tilkynningu að kvöldi 27. nóvember. Rúv hefur eftir heimildarmönnum að Trump hafi í samtali sínu við Bjarna 2024 sagt í gamansömum tón að Bandaríkjamenn kölluðu Ísland gjarnan 51. ríkið. Bjarni hafi tekið ummælunum sem léttu gríni en þá hafi Bandaríkjaforsetinn sagt Bjarna að hugsa þetta vel, að loknum þingkosningum á Íslandi sem þá voru eftir fjóra daga. Fram kemur í umfjöllun Rúv að minnisblað hafi verið skrifað upp úr þessu samtali en forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið hafi neitað að afhenda þau gögn á þeim grundvelli að um væri að ræða upplýsingar um milliríkjasamskipti sem byggðust á gagnkvæmu trausti milli ríkja.
Donald Trump Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Utanríkismál Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Sjá meira